Innlent | Morgunblaðið | 16.4.2026 | 6:47 Lágar álögur og vaxandi samfélag Stefán Einar Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Margrét Gnarr á lista Miðflokksins „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Óhjákvæmilegir vaxtarverkir Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð » Fleiri tengdar fréttir Oddvitar D-lista og L-lista segja samstarf hafa verið gott en leggja áherslu á ólíka forgangsröðun fyrir næsta kjörtímabil. Sveitarstjórnarkosningar í Hrunamannahreppi fara fram í sveitarfélagi sem hefur vaxið hratt á síðustu árum og stendur nú frammi fyrir nýjum verkefnum í takt við aukna íbúafjölgun og breyttar þarfir samfélagsins. Þetta kemur skýrt fram í samtali við oddvita framboðanna tveggja í hreppnum, þá Jón Bjarnason, bónda og oddvita D-lista Sjálfstæðisflokksins sem fer með meirihluta þetta kjörtímabil, og Daða Geir Samúelsson, verkfræðing og oddvita L-listans. Hrunamannahreppur er eitt elsta sveitarfélag landsins, víðfeðmur og fornfrægur hreppur í Árnessýslu sem rekur sögu sína 1.150 ár aftur. Hann nær frá miðjum Hofsjökli til suðvesturs milli Hvítár og Stóru-Laxár. Íbúar eru þó innan við eitt þúsund og þéttbýliskjarninn á Flúðum gegnir lykilhlutverki í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins. Uppgangur og bætt þjónusta Báðir frambjóðendur lýsa liðnu kjörtímabili með jákvæðum hætti og segja samstarf meiri- og minnihluta hafa gengið vel. Daði sagði sveitarstjórnina hafa unnið saman að hagsmunum hreppsins og bendir á að þjónustustig hafi hækkað verulega á síðustu árum. Þar nefnir hann meðal annars bætta líkamsræktaraðstöðu, lengri afgreiðslutíma, nýja heilsugæslu, apótek og aukna veitingaþjónustu. Jón segir fyrri sveitarstjórnir hafa lagt góðan grunn að uppbyggingu innviða, en að núverandi meirihluti hafi lagt áherslu á að nýta betur húsnæði sveitarfélagsins, ráðast í nauðsynlegar endurbætur og tryggja jarðnæði fyrir frekari uppbyggingu. Hann nefnir meðal annars endurnýjun á þaki grunnskólans og flutning stofnana milli húsa til að bæta nýtingu. Kalt vatn og leikskólamál Þótt hreppurinn búi við gnægð af heitu vatni og mjög hagstæða hitaveitu er skortur á köldu vatni orðinn ein helsta áskorun sveitarfélagsins. Jón sagði næsta stóra verkefni felast í að tryggja nægt kalt vatn með framkvæmdum uppi við hálendisbrúnina. Hann benti á að það væri fágætt að sveitarfélög sæju bæjum í dreifbýli fyrir köldu vatni, en það væri nauðsynlegt í Hrunamannahreppi vegna landfræðilegra aðstæðna. Leikskólamál voru einnig áberandi í viðtalinu. Daði sagði mikilvægt að halda áfram uppbyggingu við leikskólann, eftir að sveitarfélagið hafði gripið til bráðabirgðalausnar með ungbarnadeild í gamla ráðhúsinu til að mæta mikilli eftirspurn. Markmiðið væri að sameina starfsemina á ný og tryggja áfram samfellu í þjónustu við barnafjölskyldur. Þörf á meira leiguhúsnæði Þar telur Daði helstan mun á framboðunum felast í forgangsröðun. Hann leggur sérstaka áherslu á að fá almenn leigufélög inn á svæðið svo fólk geti flutt í hreppinn án þess að þurfa strax að kaupa húsnæði eða reiða sig á húsnæði frá atvinnurekendum. Nú eru á leið á markað íbúðir frá Bjargi leigufélagi en bendir Daði á að þröng skilyrði fylgi því hverjir geti leigt það húsnæði, markast það meðal annars af tekjum fólks. Jón segir D-listann hins vegar leggja áherslu á áframhaldandi vöxt, lágar álögur á íbúa og öflugt atvinnulíf. Hann bendir á að afsláttur af gatnagerðargjöldum fyrir atvinnuhúsnæði hafi þegar skilað árangri og ýtt undir uppbyggingu nýrrar starfsemi. Sterk staða og bjartsýni Báðir eru þeir varfærnir gagnvart umræðu um sameiningu sveitarfélaga og segja Hrunamannahrepp standa sterkt fjárhagslega og vera hagkvæman í rekstri. Þá lýstu þeir einnig svipaðri afstöðu til Evrópumála, en þeir telja hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu geta haft neikvæð áhrif á landbúnað, aðra af tveimur mikilvægustu atvinnugreinum héraðsins. Þrátt fyrir það var tónninn bjartsýnn. Hrunamannahreppur virðist standa traustum fótum, með sterkan rekstur, vaxandi samfélag og skýra sýn á að næstu ár muni ráðast af því hvernig tekst að byggja áfram upp þjónustu, innviði og lífsgæði íbúa. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Margrét Gnarr á lista Miðflokksins „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Óhjákvæmilegir vaxtarverkir Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lágar álögur og vaxandi samfélag Earle og Cooper elda grátt silfur Andlát: Svavar Sigmundsson „Ég var hálfgerður vandræðagemlingur“ Sérskattar á fiskeldi hærri en í nágrannalöndum Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Gullkista útflutnings á Austurlandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tilraunir til þvingunar dæmdar til að mistakast Tekjurnar drógust saman um milljarð á einu ári Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Mest lesið Í gær Í vikunni „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Margrét Gnarr á lista Miðflokksins Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Áslaug Arna aftur á þing í sumar Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Engin stemning fyrir flokkshroka Gert að greiða 2,2 milljónir Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Nýjast á mbl.is » Lágar álögur og vaxandi samfélag Earle og Cooper elda grátt silfur Andlát: Svavar Sigmundsson „Ég var hálfgerður vandræðagemlingur“ Sérskattar á fiskeldi hærri en í nágrannalöndum Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Gullkista útflutnings á Austurlandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Sveitarstjórnar að ákveða um skólastarf Mest lesið Í gær Í vikunni „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Margrét Gnarr á lista Miðflokksins Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Áslaug Arna aftur á þing í sumar Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Engin stemning fyrir flokkshroka Gert að greiða 2,2 milljónir Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“