Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Það er enginn að koma hingað og bjarga okkur“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 6.5.2026 | 18:35 „Það er enginn að koma hingað og bjarga okkur“ Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Samantekt 18:35 Frétt: „Það er enginn að koma hingað og bjarga okkur“ 17:20 Frétt: X26: Þrekvirki unnið á kjörtímabilinu 16:00 Frétt: Einar sást á Smitten 14:04 Frétt: Gagnrýnir sýslumann: Bara hægt að kjósa í Hlíðasmára Oddvitar þeirra þriggja lista sem bjóða fram í Húnaþingi vestra segja atvinnumál, uppbyggingu innviða og aukið íbúasamráð meðal stærstu verkefna næsta kjörtímabils. Sveitarfélagið standi fjárhagslega vel, þrátt fyrir að hafa ráðist í stórar framkvæmdir, en nú þurfi að nýta stöðuna til sóknar. Morgunblaðsmenn eru mættir í Húnaþing vestra á ferð sinni um Norðurland í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Sveitarfélagið varð til í júní 1998 en tók á sig núverandi mynd árið 2012 þegar Bæjarhreppur sameinaðist því. Helstu byggðir eru Hvammstangi, Laugarbakki, Reykir og Borðeyri, en sveitarfélagið er víðfeðmt og nær frá Arnarvatni og Holtavörðuheiði, norður Strandir að Stikuhálsi og út á Vatnsnes. Í sveitarfélaginu búa um 1.250 manns. Í síðustu kosningum fékk B-listi Framsóknar og annarra framfarasinna þrjá fulltrúa, D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra tvo og N-listi, Nýtt afl í Húnaþingi vestra, tvo. Sömu þrjú framboð bjóða nú fram á ný. Oddvitar þeirra eru Sigurður Líndal Þórisson fyrir B-lista, Örn Arnarson fyrir D-lista og Viktor Ingi Jónsson fyrir N-lista. B- og D-listi hafa myndað meirihluta á kjörtímabilinu. Segir varnarsigur ekki duga Sigurður tekur fram að forysta B-listans sé öll ný og enginn sitjandi sveitarstjórnarfulltrúi sé á listanum. „Ég ætla hvorki að taka hrós fyrir afrek fráfarandi framsóknarmanna né svara fyrir ófarir þeirra,“ segir Sigurður. Hann segir þó margt hafa áunnist, ekki síst í húsnæðismálum, en að tveir málaflokkar hafi setið um of á hakanum. Þar nefnir hann atvinnumál og uppbyggingu innviða. „Varnarsigrar áfram eru ekki í boði að mínu viti,“ segir Sigurður. Hann vill meðal annars frysta gjaldskrár sveitarfélagsins á næsta ári, halda óskertum vistunartíma leikskóla, efla útivistar- og tómstundainnviði, kanna með byggingu nýs leikskóla og byggja upp björgunarmiðstöð þar sem viðbragðsaðilar geti verið undir einu þaki. Sigurður leggur sérstaka áherslu á atvinnuuppbyggingu við Laugarbakka þar sem saman fari heitt vatn, kalt vatn og væntanleg raforkutenging. Hann segir sveitarfélagið þurfa að vera tilbúið þegar fyrirtæki leiti að staðsetningu fyrir starfsemi sína. Lóðir þurfi að vera til reiðu. Vill meiri sátt og gagnsæi Viktor Ingi oddviti N-listans segir sveitarfélagið vera að koma niður brekkuna eftir stórar fjárfestingar, meðal annars við grunnskólann. Fjárhagsstaðan sé bærileg og skuldahlutfall lágt. Hann tekur undir að atvinnumál verði lykilverkefni næstu ára en leggur jafnframt áherslu á markaðssetningu sveitarfélagsins. „Við þurfum að vera með innviði klára, en það er ekki nóg. Við þurfum líka að sækja þetta,“ segir Viktor. N-listinn vill aukið gagnsæi og meira íbúasamráð, meðal annars um mögulega uppbyggingu leikskóla og íþróttasvæðis í Kirkjuhvammi. Viktor segir að halda eigi reglulega opna fundi með íbúum eftir fjárhagsáætlanagerð og birtingu ársreiknings. Þá vill N-listinn setja umhverfis- og ásýndarmál framar í forgangsröðina. „Þú þarft ekki að gera meira heldur en að keyra um götur bæjarins til þess að sjá götur sem hafa litið betur út,“ segir Viktor. Númer eitt, tvö og þrjú Örn segir að byggja þurfi á þeim verkum sem unnið hafi verið að á kjörtímabilinu. Hann nefnir grunnskólann, hitaveitu, ljósleiðaravæðingu, þrífösun rafmagns og endurnýjun lagna. „Fyrir sveitarfélag sem er svona smátt og hefur þriðju lægstu útsvarstekjur landsins myndi ég segja að þetta sé þrekvirki,“ segir hann. Hann segir skuldahlutfallið komið niður í um 60% þrátt fyrir stór verkefni og að sveitarfélagið hafi nú svigrúm til að horfa meira út í samfélagið. D-listinn vill setja deiliskipulagsvinnu af stað sem eitt af fyrstu verkefnum nýs kjörtímabils og skilgreina iðnaðar-, atvinnu- og hafnarsvæði. „Við verðum að eiga vörurnar til uppi í hillu,“ segir Örn. Hann segir atvinnumálin vera „númer eitt, tvö og þrjú“ og hefur áhyggjur af því að kórónuveirufaraldur og riða hafi dregið úr þrótti samfélagsins. „Það er enginn að koma hingað og bjarga okkur. Við verðum að gera þetta allt saman sjálf,“ segir hann. Ferðaþjónustan stutt komin Örn, sem rekur Hótel Laugarbakka, segir ferðaþjónustuna eiga mikil tækifæri í Húnaþingi vestra. Svæðið sé fallegt, víðsýnt og áhugavert, en uppbygging sé enn skammt á veg komin. „Kannski er okkar styrkleiki, kannski stærsta tækifærið, hversu stutt við erum komin. Það er allt eftir hér,“ segir Örn. Hann segir þörf á auknu gistirými og meiri afþreyingu, bæði fyrir ferðamenn og íbúa. Viktor tekur undir það og segir að fólk þurfi ekki aðeins atvinnu heldur líka ástæðu til að vilja búa á staðnum. Að lokum ræddu oddvitarnir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Viktor segist vilja „kíkja í pakkann“ en ekki taka afstöðu til inngöngu. Sigurður segist myndu segja nei í dag, þar sem hann treysti því ekki að rauðar línur, sem ríkisstjórnin dragi í sandinn nú, muni halda þegar á hólminn er komið. Örn segir málið ótímabært. „Þetta er galið núna,“ segir Örn. Viktor Ingi Jónsson, frá N-lista, Sigurður Líndal Þórisson, frá B-lista og Örn Arnarson frá D-lista. mbl.is/Kristófer Liljar Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang 18:35 „Það er enginn að koma hingað og bjarga okkur“ Oddvitar þeirra þriggja lista sem bjóða fram í Húnaþingi vestra segja atvinnumál, uppbyggingu innviða og aukið íbúasamráð meðal stærstu verkefna næsta kjörtímabils. Sveitarfélagið standi fjárhagslega vel, þrátt fyrir að hafa ráðist í stórar framkvæmdir, en nú þurfi að nýta stöðuna til sóknar Meira 17:20 X26: Þrekvirki unnið á kjörtímabilinu Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí, en þá verður efnt til kosninga í 62 sveitarfélögum landsins af öllum stærðum og gerðum. Meira 16:00 Einar sást á Smitten Einari Þorsteinssyni, oddvita Framsóknar í borgarstjórn, brá í brún þegar Smartland hafði samband vegna ábendingar um að hann hefði sést á stefnumótaforritinu Smitten. Meira 14:04 Gagnrýnir sýslumann: Bara hægt að kjósa í Hlíðasmára Borgarráð gerir alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu að bjóða einungis upp á einn stað fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar, á öllu höfuðborgarsvæðinu. Meira 12:25 Við minnum á borgarafund á Akureyri í kvöld Opinn borgarafundur verður haldinn á Græna hattinum á Akureyri kl. 20 í kvöld. Við minnum á spurningagáttina þar sem lesendur geta komið sínum spurningum á framfæri til frambjóðenda. 11:00 Segir Samfylkinguna hafa siglt leikskólum borgarinnar í strand Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, skýtur föstum skotum á Samfylkinguna í færslu sem hún birtir á Facebook. Meira Í gær, 21:44 Barist um hylli kjósenda á einni mínútu Áherslur framboðsflokka í Mosfellsbæ eru ólíkar þótt sleginn sé svipaður tónn um framþróun bæjarins. Þá er frambjóðendum er tíðrætt um traust. Meira Í gær, 19:30 Sjálfstæðisflokkurinn eykur forskotið Sjálfstæðisflokkurinn mælist með tvöfalt meira fylgi en Samfylkingin í Reykjanesbæ og núverandi meirihluti bæjarstjórnar myndi falla, ef marka má nýja könnun Gallup sem mbl.is hefur undir höndum. Meira í gær X26 – Oddvitar á Seltjarnarnesi etja kappi Leikskólamál, fjármál bæjarins, samgöngusáttmálinn og framtíðaruppbygging á Seltjarnarnesi eru meðal helstu ágreiningsefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Meira í gær Grindvíkingar mættu í Hádegismóana á dögunum í gær Vetrarríki á kosningaslóð Ferðalagið heldur áfram en nú er haldið úr Skagafirði yfir í Fjallabyggð. Hér hefur vetur konungur ákveðið að láta aðeins skína í sitt kalda andlit þótt kominn sé maí. í fyrradag Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu Athyglisvert er að rýna í þróun fylgis flokka í könnunum Gallup undanfarin misseri. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking voru hnífjafnir í febrúar en gengið hefur í sundur með flokkunum. Meira 4.5. X26 – Oddvitar í Mosó mætast Það stefnir í spennandi kosningar í Mosfellsbæ en Mosfellingar þurfa nú að gera upp hug sinn milli sex framboða fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 16. maí. Hér má fylgjast með oddvitum framboðanna mætast í kappræðum í Hádegismóum. Meira 4.5. „Ég hef nú ekki verið flokksbundinn allan tímann.“ Oddviti Samfylkingarinnar í Fjarðabyggð var inntur eftir afstöðu til ESB-markmiða flokksins. 4.5. Sólveig Anna: „Innihaldsrýr pólitík“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir það undarlegt að sjá Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra ráðast að Kópavogsmódelinu en tala ekki um „hrikalegt ástand mála í Reykjavík“. Meira Sýna meira Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Stjarnan, staðan er 48:33 Bjarki og Edda gift og skírðu drenginn Ósannað að síminn hafi verið afritaður Steven Tyler fer fyrir dóm „Það er enginn að koma hingað og bjarga okkur“ Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mistök en gagnrýnin stendur Ekki eins og upphaf kórónuveirufaraldursins ESB-ferlið hófst strax 2025 Leggst að bryggju á Tenerife innan þriggja daga Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhr

Share this article