Innlent | Morgunblaðið | 28.4.2026 | 22:20 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Samantekt 22:20 Frétt: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði 22:02 Frétt: X26: Oddvitum meinað að tala 21:40 Frétt: Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita 15:45 Frétt: Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Forystufólk í Strandabyggð hefur fengið stór og krefjandi verkefni í fangið á líðandi kjörtímabili og á komandi kjörtímabili bíða þau enn úrlausnar. Þar fara saman þröng fjárhagsstaða, frekari fjárfestingar í húsnæði sveitarfélagsins, húsnæðisskortur, orkumál, atvinnuuppbygging og mögulegar sameiningarviðræður. Þrjú framboð bjóða fram í Strandabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þorgeir Pálsson sveitarstjóri leiðir T-lista Strandabandalagsins, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson fer fyrir B-lista Framsóknarmanna og óháðra og Hrafnhildur Þorsteinsdóttir leiðir G-lista Vegvísi. Sveitarfélagið varð til árið 2006 við sameiningu Hólmavíkurhrepps og Broddaneshrepps. Þar búa um 440 manns og liggur fyrir að ný sveitarstjórn mun þurfa að takast á við umfangsmikil verkefni. Róstusamir tímar Nokkurs titrings hefur gætt í sveitarstjórnarmálum á svæðinu síðustu kjörtímabil. Þorgeir Pálsson og listi hans unnu sigur í síðustu kosningum eftir róstusamt kjörtímabil 2018-2022 þar sem hann var bæði ráðinn og rekinn sem bæjarstjóri á miðju kjörtímabili í kjölfar deilna sem upphófust í tengslum við ásakanir á hendur fyrrverandi sveitarstjórnarfulltrúa vegna greiðslna sem runnið höfðu úr sveitarsjóði til fyrirtækja hans. Hafði eiginkona Þorgeirs, sem var starfsmaður sveitarfélagsins, meðal annars tjáð sig um málið og hleypti það illu blóði í marga sem lyktaði með fyrrnefndum starfslokum. Voru Þorgeiri að lokum dæmdar miskabætur vegna uppsagnarinnar sem sögð var af héraðsdómi hafa borið að með of harkalegum hætti. Skólahúsin mygluð Stærsta verkefni yfirstandandi kjörtímabils reyndist mygla sem greindist í grunnskólanum haustið 2022. Skólastarfi var hætt í húsinu og kennsla færð á þrjár starfsstöðvar um bæinn. „Við höfum ekkert val,“ segir Þorgeir um þá ákvörðun að ráðast í umfangsmiklar framkvæmdir. Yngri hluti skólans var endurnýjaður frá grunni og flutt var inn í hann að nýju haustið 2024. Kostnaður við endurbætur nam yfir 400 milljónum króna og heildarfjárfesting í menntastofnunum á kjörtímabilinu er yfir 500 milljónir. Sigurbjörn segir framkvæmdirnar hafa verið þungar fyrir sveitarfélagið. Hann bendir á að rekstrarafgangur dugi ekki fyrir afborgunum lána og að um 30 milljónir vanti upp á árlegar skuldbindingar í þeim efnum. Hótel og húsnæði Miklar vonir eru bundnar við fyrirhugaða hótelbyggingu á Hólmavík. Hótel Strandir ehf. hyggst reisa 62 herbergja hótel, og er fjárfestingin í verkefninu metin á þrjá milljarða króna. Er hún talin geta til lengri tíma skapað skapað 25 til 30 bein störf á svæðinu. „Þetta er gríðarlegt tækifæri,“ segir Þorgeir og bætir við að framkvæmdin gæti orðið sú umfangsmesta í sveitarfélaginu í áratugi. Húsnæðisskortur er einnig sagður hefta vöxt. Unnið er að nýju 30 íbúða hverfi, Brandskjóli, þar sem gert er ráð fyrir einbýlishúsum, parhúsum og raðhúsum. Framkvæmdir við gatnagerð eiga að hefjast í sumar. Hrafnhildur segir skort á húsnæði þegar hafa áhrif á samfélagið. „Við erum að missa starfsfólk sem fær ekki íbúðarhúsnæði,“ segir hún. Heitt vatn og raforka Orkumálin eru fyrirferðarmikil í umræðunni. Sigurbjörn segir mikla möguleika felast í jarðhita á Gálmaströnd, sem gæti leitt til hitaveitu, landeldis eða gróðurhúsaræktar. Þorgeir segir Orkubú Vestfjarða hafa rétt til nýtingar á svæðinu en að enn sé óljóst hvenær borunum verður fram haldið. Orkubúið hefur þó fengið 25 milljóna króna styrk til verksins. Til þess að Hólmavík muni njóta góðs af heitu vatni af Gálmaströnd þarf að tryggja heitavatnsfreka starfsemi miðja vegu milli strandarinnar og byggðarinnar en þar skilja um 20 kílómetrar að. Raforkuöryggi Vestfjarða er einnig rætt í viðtali oddvitaframbjóðendanna. Þorgeir segir orkuþörf á Vestfjörðum vera um 44 megavött en framleiðsluna aðeins um tuttugu. Hann segir óhjákvæmilegt að auka raforkuframleiðslu ef orkuskipti eiga að verða að veruleika en með rafvæðingu smábátaútgerðar og annars megi áætla að orkuþörfin gæti tvöfaldast á komandi árum. Sameiningar óumflýjanlegar? Oddvitar framboðanna eru allir sem einn opnir fyrir umræðu um sameiningu sveitarfélaga. Strandabyggð hefur átt í óformlegum viðræðum við Súðavíkurhrepp og Ísafjarðarbæ og þá var erindi þess efnis sent til Dalabyggðar, Reykhólahrepps, Kaldrananeshrepps og Árneshrepps. Sigurbjörn segir að sveitarfélagið þurfi annaðhvort að leita frekari samvinnu og sameiningar eða „sanna tilverurétt sinn“. Þorgeir bendir hins vegar á að sameiningar séu ekki einföld lausn. Fyrst þarf að liggja fyrir hvaða hagsmunir séu í húfi. Hann telur útilokað að eitt sveitarfélag verði að veruleika á öllum Vestfjörðum á næsta kjörtímabili. ESB ekki flokkslína Í lokin er rætt um mögulega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þorgeir segist vilja sjá hvað sé í boði en er ekki tilbúinn að taka afstöðu til aðildar sem slíkrar. Sigurbjörn segir málið eiga að vera persónulega ákvörðun en ekki falla að flokkslínu. „Það er enginn góður stjórnmálamaður sem fer gegn vilja þjóðarinnar,“ segir hann. Hann er opinn fyrir því að sjá hvað sé í boði af hálfu ESB. Hrafnhildur segist vilja vandaða upplýsingagjöf áður en afstaða verður tekin. „Ég geri ekkert í fljótu bragði,“ segir hún en gefur ekki upp hvaða ákvörðun hún muni taka í lok ágúst, verði af fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu. Þorgeir Pálsson sveitarstjóri, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson og Hrafnhildur Þorsteinsdóttir. Morgunblaðið/Kristófer Liljar Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang 22:20 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Forystufólk í Strandabyggð hefur fengið stór og krefjandi verkefni í fangið á líðandi kjörtímabili og á komandi kjörtímabili bíða þau enn úrlausnar. Þar fara saman þröng fjárhagsstaða, frekari fjárfestingar í húsnæði sveitarfélagsins,… Meira 22:02 X26: Oddvitum meinað að tala Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí, en þá verður efnt til kosninga í 62 sveitarfélögum landsins af öllum stærðum og gerðum. Meira 21:40 Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Árni M. Mathiesen, fyrrverandi ráðherra og fyrrum stjórnarformaður Betri samgangna hf., leyfir sér að vera á það að leyst verði úr þeim eilífu töfum sem einkennt hafa samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu á næsta kjörtímabili. Meira 15:45 Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Allir oddvitar framboðanna sem bjóða fram í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum segjast ósáttir við stöðu samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu. Meira 14:05 Ekki kosningabrella Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir það ekki kosningabrellu að kynna uppbyggingu 1.200–1.400 íbúða á lóðum ríkisins í Reykjavík hálfum mánuði fyrir sveitarstjórnarkosningar. Meira 11:15 Enn deilt um mál sem klauf sveitarstjórnina Þrír listar bjóða fram í Þingeyjarsveit þar sem tekist er á um virkjunarmál, innviði, skólastarf, atvinnuuppbyggingu og framtíð stærsta sveitarfélags landsins að flatarmáli. Þingeyjarsveit er um margt einstakt sveitarfélag Meira 08:40 Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Fundur um umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu undir yfirskriftinni Greiðari leið – hugmyndir óskast verður hann haldinn á Hilton Nordica við Suðurlandsbraut í dag. Fundurinn hefst kl. 9.00 og stendur til kl. 10.45. Meira 08:30 X26: Skýr skil í Þingeyjarsveit 08:28 Strandabyggð: spjall við oddvitana þrjá í gær Höfnin er lífæð bæjarfélagsins Höfnin í Bolungarvík, húsnæðisuppbygging og ábyrg fjármálastjórn eru helstu málefnin sem ber á góma í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í samtali Morgunblaðsins við oddvita framboðanna tveggja sem bjóða fram í bænum Meira í gær „Einkennilegt framlag í kosningabaráttuna“ „Garðbæingar athugið að atkvæði á aðra en sjálfstæðismenn í bæjarstjórnarkosningunum er stuðningur við Alþýðubandalagið.“ Meira í gær Gerólíkar skoðanir á styttingu vinnuviku Stytting vinnuvikunnar var áhorfanda í sal hugleikin á borgarafundi Morgunblaðsins sem haldinn var á Ísafirði á miðvikudaginn en skiptar skoðanir voru meðal oddvita á framkvæmdinni. Meira í gær „Ef það eru byggð hús, þá kemur fólk og býr í þeim“ í gær „Óásættanlegt að fólk þurfi að óttast að vera utandyra“ „Góð loftgæði eru hagsmunamál okkar allra en sérstaklega barna, aldraðra og fólks sem glímir við sjúkdóma. Það er óásættanlegt að fólk þurfi að óttast að vera utandyra eða senda börn í skólann vegna loftmengunar.“ Meira 26.4. Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Oddviti Miðflokksins í Kópavogi segir gagnrýni dómsmálaráðherra á hugmyndir flokksins er varða heimgreiðslur til foreldra til að brúa bilið frá fæðingarorlofi til leikskóla ekki koma sér á óvart, enda hafi ráðherra áður sett sig upp á móti tillögum Miðflokksins hvað varði forræði foreldra yfir eigin fæðingarorlofi. Meira Sýna meira Nýjast á mbl.is » Snorri: Erum ekki að fara á tunglið Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Ekki séð þetta áður á kvennaleik X26: Oddvitum meinað að tala Þær gerðu litlu hlutina betur Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tal