Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Skuldsett en öflugt sveitarfélag

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2026 | 13:48 Skuldsett en öflugt sveitarfélag Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Vilja bjóða fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum Ævintýralegur vöxtur í Ölfusi Nýta þarf orkuna á svæðinu Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra » Fleiri tengdar fréttir Þegar blaðamaður sest niður með oddvitaframbjóðendunum tveimur sem leiða kosningabaráttuna í Stykkishólmi kemur fljótt í ljós að umræðan á vettvangi sveitarfélagsins snýst að verulegu leyti um hvernig finna megi jafnvægið milli áframhaldandi uppbyggingar og aðhalds í rekstri. H-lista framfarasinnaðra Hólmara leiðir Björn Ásgeir Sumarliðason, og oddviti Í-lista Íbúalistans er Sigurður Grétar Jónasson. Í samtali sem fram fer á Fosshótelinu í bænum fara þeir yfir stöðu bæjarins, helstu áskoranir og áherslur fyrir komandi kjörtímabil. Stykkishólmur, sem varð til í núverandi mynd við sameiningu Stykkishólms og Helgafellssveitar árið 2022, er lítið en öflugt sveitarfélag með um 1.350 íbúa. Atvinnulífið á svæðinu byggist einkum á opinberri þjónustu, ferðaþjónustu, landbúnaði og matvælaframleiðslu. Í síðustu kosningum fékk H-listinn fjóra fulltrúa gegn þremur fulltrúum Íbúalistans og hefur fyrrnefnda framboðið farið með stjórn sveitarfélagsins síðustu átta árin. Fólk sækir í bæinn Björn Ásgeir segir síðasta kjörtímabil einkennast af fjölgun íbúa og aukinni uppbyggingu. „Við búum við það að fólk vill flytja í Stykkishólm og því hafa fylgt ákveðnar áskoranir,“ segir hann og bendir á að á liðnu kjörtímabili hafi verið opnað á úthlutanir lóða í nýju íbúðahverfi þar sem þegar hafi verið byggðar 20 til 30 einingar. Hann segir jafnframt að sveitarfélagið hafi brugðist við vextinum með því að styrkja grunnþjónustuna. Leikskólinn hafi verið stækkaður og biðlistar þar heyri nú sögunni til. Þá hafi grunnskólinn einnig verið stækkaður. Að sögn Björns sækir fólk í Stykkishólm vegna lífsgæða, nálægðar við höfuðborgarsvæðið og öflugrar þjónustu. „Við erum með öflug íþróttamannvirki, sundlaug og íþróttahús. Stofnanir bæjarins eru öflugar. Við erum með öflugan grunnskóla og leikskóla,“ segir hann. Sigurður Grétar tekur undir að margt hafi gengið vel á kjörtímabilinu. Hann nefnir uppbyggingu í Víkurhverfi, framkvæmdir við grunnskólann og skipulagsvinnu fyrir iðnaðarsvæði við Hamraenda og Kallhamra. „Það er búið að tryggja að einhverju marki til framtíðar, bæði uppbyggingu á íbúðum og eins iðnaði og slíku, sem er bara mjög gott,“ segir hann. Skuldirnar í forgrunni Þar skilur þó á milli framboðanna hvað leggja eigi mesta áherslu á næstu fjögur ár. Sigurður Grétar segir aðalverkefnið vera að rétta af fjárhag sveitarfélagsins. „Áhersla okkar er í rauninni mjög einföld. Við verðum að greiða niður skuldir,“ segir hann. Að hans sögn námu skuldir sveitarfélagsins 3,3 milljörðum króna árið 2024, eða um 2,3 milljónum króna á hvern íbúa. „Við bara höfum ekki efni á að vera að framkvæma mikið. Við þurfum að borga niður skuldirnar okkar og viðhalda innviðum,“ segir hann og bætir við að fjölmargar byggingar sveitarfélagsins séu komnar undir viðhald. Markmiðið sé að koma rekstrinum í það horf að sveitarfélagið uppfylli skilyrði eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Björn Ásgeir leggur hins vegar áherslu á að halda áfram ábyrgri fjármálastjórn samhliða því að vera tilbúin til sóknar. Hann segir skuldaviðmið hafa lækkað undanfarin tíu ár þrátt fyrir töluverðar framkvæmdir. „Á þeim nótum ætlum við að halda áfram með ábyrga fjármálastjórn en samt að sækja til framtíðar,“ segir hann. Eitt stærsta hagsmunamál Stykkishólms um þessar mundir tengist fyrirhuguðum breytingum ríkisvaldsins á fiskveiðistjórnunarkerfinu, þar sem rækju- og skelbætur gætu fallið niður og hlutdeild færst yfir á strandveiðar. Þar voru oddvitarnir sammála um að málið gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir bæjarfélagið. Titringur vegna skelbóta „Það er náttúrulega ósanngjarnt að við sem bæjarfélag skulum líða fyrir það að það eigi að efla strandveiðar og þá verði tekin af okkur aflahlutdeild,“ segir Björn Ásgeir. Hann bendir á að sá fiskur sem komi í stað skelbóta hafi um árabil verið unninn í Stykkishólmi og að illa fari á því að taka þá atvinnu frá samfélaginu. Sigurður Grétar gagnrýnir einnig skort á samráði og aðlögun. „Að þetta sé bara gert, klippt á þetta, að það sé enginn aðlögunartími eða neitt. Og samráðsleysi,“ segir hann. Hann bendir á að áhrifin gætu orðið umtalsverð, meðal annars á útsvarstekjur sveitarfélagsins. Þá hafi flutningafyrirtækið BB og synir dregið til baka áform um uppbyggingu á nýju iðnaðarsvæði vegna óvissunnar. „Grundvöllurinn fyrir byggingu höfuðstöðva þar er ekki til staðar lengur,“ segir hann. Menning og samgöngur Þrátt fyrir áherslumun í fjármálum sveitarfélagsins eru oddvitar framboðanna sammála um ýmis lykilverkefni. Þar ber hæst húsnæðismál Tónlistarskólans, sem báðir segja að þurfi að leysa. Sigurður Grétar sér þar fyrir sér stærri möguleika og nefnir menningarmiðju þar sem Tónlistarskólinn, félagsstarf eldri borgara og félagsmiðstöð gætu myndað sterka heild. Samgöngumál eru einnig ofarlega á baugi í stjórnmálunum í Hólminum. Oddvitarnir segja vegakerfið á Snæfellsnesi hafa setið á hakanum of lengi og þeir kalla eftir samstilltu átaki sveitarfélaganna á svæðinu. Björn Ásgeir segir versta kaflann á leiðinni til Stykkishólms verða lagaðan í sumar en bætir við að fleiri vegarkaflar séu í slæmu ástandi. Kosningabaráttan í Stykkishólmi virðist því ætla að snúast um klassísk sveitarstjórnarmál: skuldastöðu, þjónustu, innviði, atvinnulíf og framtíðarsýn. Ágreiningurinn liggur einkum í spurningunni um hraða og áherslur í mikilvægri framsókn á svæðinu. Oddvitarnir tveir, Björn Ásgeir Sumarliðason og Sigurður Grétar Jónasson, hafa þekkst frá barnsaldri. Morgunblaðið/Kristófer Liljar Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Vilja bjóða fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum Ævintýralegur vöxtur í Ölfusi Nýta þarf orkuna á svæðinu Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skuldsett en öflugt sveitarfélag KR-ingar að rassskella Eyjamenn – staðan 0:4 City að kræja í stjörnu Chelsea? Andlát: Valdimar Örnólfsson Skjóta eigi á öll skip sem leggja tundurdufl Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Fjölgunin ekki aðeins hjá ríki Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Sviptur ökuréttindum á staðnum Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Þrír hafa verið náðaðir Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Logi Einarsson fundaði með Apple Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Skuldsett en öflugt sveitarfélag KR-ingar að rassskella Eyjamenn – staðan 0:4 City að kræja í stjörnu Chelsea? Andlát: Valdimar Örnólfsson Skjóta eigi á öll skip sem leggja tundurdufl Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Hvað vildu þeir til Mexíkó? Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Sviptur ökuréttindum á staðnum Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Þrír hafa verið náðaðir Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Logi Einarsson fundaði með Apple Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rake

Share this article