Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hvar eru flokkarnir að bjóða fram?

  • What: An article discussing the political parties running in the upcoming local elections in Iceland.
  • Impact: Provides an overview of the political landscape in Iceland.
Read Full Article →

Miðflokkurinn stefnir á að bjóða fram í nær helmingi fleiri sveitarfélögum í kosningunum í vor en fyrir fjórum árum og það sama má segja um Viðreisn. Sjálfstæðisflokkurinn býður fram í 36 sveitarfélögum og Píratar í einu - en þeir buðu fram í sex síðast. Flestir flokkar búnir að ákveða fjölda sveitarfélaga sem boðið verður fram í Sveitarstjórnarkosningar eru 16. maí. Síðast var kosið 2022 og þá voru kosnir alls 470 aðalmenn í sveitarstjórnir, 233 karlar og 237 konur. Það var í fyrsta skipti sem konur voru fleiri en karlar. Sveitarfélög á Íslandi eru 62: Stjórnmálaflokkarnir eru í óðaönn að undirbúa kosningarnar og nú liggur í grófum dráttum fyrir hvar flokkarnir bjóða fram. Víða bjóða flokkar og samtök fram saman undir ólíkum nöfnum en svona lítur þetta út hjá helstu flokkum eins og staðan er núna: Flokkur fólksins bauð fram í tveimur sveitarfélögum síðast en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvar verður boðið fram í vor. Framsóknarflokkurinn bauð fram í 26 sveitarfélögum síðast og stefnir að því að bjóða fram í þeim öllum í vor. Miðflokkurinn bauð fram í 11 sveitarfélögum síðast og stefnir að því að bjóða fram í að minnsta kosti 18 sveitarfélögum nú. Píratar buðu fram í 6 sveitarfélögum síðast en ætla nú að bjóða fram aðeins í Reykjavík. Samfylkingin bauð fram í 12 sveitarfélögum síðast en ætlar nú að bjóða fram í 15 sveitarfélögum. Sjálfstæðisflokkurinn bauð fram í 35 sveitarfélögum síðast en býður fram í 36 núna. Sósíalistaflokkurinn bauð fram í 2 sveitarfélögum síðast og líka núna en verið er að skoða framboð í 3 öðrum sveitarfélögum. Viðreisn bauð fram í 5 sveitarfélögum síðast en stefnir á framboð í 10 í vor. Vinstri græn buðu fram í 11 sveitarfélögum síðast en það skýrist á næstu dögum hvar verður boðið fram í vor. En Vinstri græn í Reykjavík hafa myndað bandalag með Sönnu Magdalenu Mörtudóttur og ætla að bjóða fram saman þar í vor. Miðflokkurinn stefnir á að bjóða fram í nær helmingi fleiri sveitarfélögum í kosningunum í vor en fyrir 4 árum og það sama má segja um Viðreisn. Sjálfstæðisflokkurinn býður fram í 36 sveitarfélögum og Píratar í einu, en þeir buðu fram í 6 síðast.

Share this article