Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Helmingi fleiri kosið utan kjörfundar

Read Full Article →

Yfir 16.550 hafa skilað inn atkvæði sínu í sveitarstjórnarkosningunum til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Töluvert fleiri hafa greitt atkvæði utan kjörfundar en á sama tíma í síðustu sveitarstjórnarkosningum og aðsókn hefur verið mikil síðustu daga, segir sýslumaður. Búast má við að einhverjir séu á faraldsfæti og lengi jafnvel helgina vegna uppstigningardags í dag. „Við erum að sjá rúmlega 50% aukningu síðan í sveitarstjórnarkosningunum 2022,“ segir Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu. Kjörsókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu sé almennt minni í sveitarstjórnarkosningum en í öðrum kosningum. Tæplega 24 þúsund greiddu atkvæði utan kjörfundar í síðustu sveitarstjórnarkosningum fyrir fjórum árum. Mikil aðsókn en lítil bið Um 3.200 greiddu atkvæði hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í gær og um 3.300 í fyrradag. Sigríður segir það vera nokkuð meira en undanfarið. „Svo virðist ætla að vera mikil aðsókn í dag.“ Á fyrsta hálftímanum eftir opnun hafi yfir 100 þegar skilað inn atkvæði sínu. „En það gengur mjög vel,“ segir Sigríður. „Það er ekki löng bið hjá okkur. Fólk er að fara í gegn á svona tíu mínútum.“

Share this article