Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ævintýralegur vöxtur í Ölfusi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 21.4.2026 | 11:12 Ævintýralegur vöxtur í Ölfusi mbl.is/Kristófer Liljar Stefán Einar Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Samantekt 11:12 Frétt: Ævintýralegur vöxtur í Ölfusi 09:14 Hvað vilt þú vita? 08:06 S og D eru í framboði í Ölfusi 10:55 Frétt: Nýta þarf orkuna á svæðinu Sveitarfélagið Ölfus hefur verið í gríðarmiklum vexti undanfarin ár og það mótar kosningabaráttuna þar sem nú er komin í fullan gang. Hvernig fer best á því að stýra sveitarfélagi sem í raun er að taka stakkaskiptum? Til svara eru oddvitar þeirra tveggja framboða sem nú bjóða fram í sveitarfélaginu, þeir Grétar Ingi Erlendsson fyrir D-lista Sjálfstæðisflokksins, sem nú fer með meirihluta, og Gunnsteinn R. Ómarsson fyrir lista Samfylkingarinnar og félaga. Ölfus hefur stækkað hratt á undanförnum árum. Í sveitarfélaginu búa nú 3.062 og hefur þeim fjölgað um ríflega 500 á yfirstandandi kjörtímabili. Gangi spár eftir gæti íbúafjöldinn farið í 4.500 á næsta kjörtímabili. Fram undan eru því stór verkefni, bæði í innviðauppbyggingu, skipulagi og til að tryggja þjónustu við íbúana. Ólíkt mat á liðnu kjörtímabili Gunnsteinn er ekki nýgræðingur í sveitarstjórnarmálum á svæðinu, var bæjarstjóri í Ölfusi á árunum 2013 til 2018 og hann er gagnrýninn á stjórnarhætti meirihlutans. Hann segir að vissulega hafi margt gengið vel, en telur að skort hafi á jákvæðni í samskiptum við bæði íbúa og nágrannasveitarfélög. „Það sem við horfum til á okkar lista er auðvitað ásýnd samfélagsins og það hvernig stjórnendur sveitarfélagsins koma fram og hvernig samskipti og samstarf eru, upplýsingaflæði til íbúa og þátttaka íbúa í stjórnsýslunni,“ segir Gunnsteinn. Hann nefnir sem dæmi að Ölfus hafi hafnað þátttöku í sameiginlegri atvinnustefnu fyrir neðri hluta Árnessýslu og segir sveitarfélagið með því hafa einangrað sig að einhverju leyti. Grétar hafnar þeirri gagnrýni afdráttarlaust og segir samvinnu bæði við minnihluta og nágrannasveitarfélög hafa verið góða. „Ég hafna þessu algjörlega, að það sé einhver skortur á samstarfi og samvinnu,“ segir hann og bendir á samstarf um tónlistarskóla, brunavarnir, listasafn og fleiri sameiginleg verkefni. Að hans sögn var ástæðan fyrir því að Ölfus tók ekki þátt í sameiginlegri atvinnustefnu einföld: sveitarfélagið vildi fyrst klára sína eigin stefnu. Grétar lýsir kjörtímabilinu sem tíma „fordæmalausrar uppbyggingar“ og segir rekstur sveitarfélagsins líklega aldrei hafa gengið betur. Rekstrarafgangur nam rúmum 1,5 milljörðum á árinu 2024 en ársreikningur fyrir síðastliðið ár hefur enn ekki verið birtur. Tekist á um fortíðina Í samtali oddvitaframbjóðendanna kemur fram misjöfn sýn á árangur fyrri ára og hvernig lýsa eigi stöðu sveitarfélagsins þegar núverandi meirihluti tók við. Gunnsteinn telur að núverandi forysta hafi gert of lítið úr þeim árangri sem náðist á árunum 2014 til 2018, þegar unnið var úr þungri stöðu í kjölfar hrunsins. Hann nefnir þar lausn leikskólamála í dreifbýli, flutning fiskþurrkunarverksmiðju úr miðbæ Þorlákshafnar og komu Smyril Line á svæðið sem gjörbreytt hafi stöðu sveitarfélagsins. „Smyril Line ofan á þetta allt hefur gjörbreytt öllu landslagi hér í Þorlákshöfn,“ segir Gunnsteinn. Grétar segir að það hafi aldrei verið ætlunin að gera lítið úr störfum fyrri bæjarstjórna. „Mér þykir leitt ef einhver hefur upplifað það að það væri verið að gera lítið úr störfum annarra,“ segir hann. Hann bendir þó á að staða sveitarfélagsins hafi verið erfið eftir hrun og að árið 2018 hafi nýr meirihluti þurft að samþykkja yfirdráttarheimild þar sem handbært fé dugði ekki fyrir skuldbindingum. Að hans mati er viðsnúningurinn afleiðing margra þátta yfir langan tíma, þar á meðal hafnarframkvæmda, aukinnar atvinnustarfsemi og bættrar stöðu sveitarfélagsins í huga fjárfesta og íbúa. Skipulagsmál helsta hitamálið Þótt ýmis samhljómur sé milli framboðanna um áframhaldandi uppbyggingu er ágreiningur uppi milli þeirra um ákveðin skipulagsmál. Þar ber hæst áform meirihlutans um íbúðabyggð á opnu svæði milli elsta hverfisins í Þorlákshöfn og hafnarinnar. Gunnsteinn telur þessar hugmyndir ótímabærar og varasamar. „Við teljum bara að það sé ekki tímabært að skipuleggja íbúðabyggð ofan í höfnina á meðan höfnin er í þróun og uppbyggingu,“ segir hann. Hann leggur áherslu á að höfnin þurfi svigrúm til að þróast áfram og að hlusta verði á áhyggjur fyrirtækja sem starfa á hafnarsvæðinu. Grétar segir hins vegar að ekki sé verið að þrengja að höfninni heldur nýta hagkvæman reit nálægt innviðum. Hann bendir á að börn sem flytji í ný hverfi þurfi að hafa stutt í skóla og þjónustu. „Þetta eru ekki bara íbúðir, þetta eru heimili fólks,“ segir hann. Þá tengjast áformin einnig fyrirhuguðu hjúkrunarheimili, sem hann segir mikilvægt verkefni fyrir sveitarfélagið. Fjölbreytt atvinnulíf Oddvitarnir eru hins vegar sammála um að eitt stærsta tækifæri Ölfuss felist í atvinnuuppbyggingu við ströndina, ekki síst vegna landeldis. Gunnsteinn segir ljóst að svæðið sé „sennilega eitt það besta í heimi til landeldis“ en leggur um leið áherslu á varfærni gagnvart vatnsauðlindinni og ásýnd svæðisins. Grétar sér í því gríðarleg verðmæti og nefnir að ef þrjú stór verkefni gangi eftir gæti útflutningsverðmæti afurða þeirra numið nærri því jafn hárri fjárhæð og útflutningsverðmæti alls villts fisks á Íslandi. Jafnframt leggur hann áherslu á fjölbreyttara atvinnulíf með fleiri fyrirtækjum og fleiri stoðum undir rekstur sveitarfélagsins. Á sviði þjónustu vilja Gunnsteinn og Grétar leggja áherslu á málefni barna og fjölskyldna, þótt Gunnsteinn tali einnig sérstaklega um að efla þjónustu við eldri borgara og hlusta betur á íbúa í dreifbýli. Kosningarnar í Ölfusi virðast því fyrst og fremst snúast um hvernig eigi að stýra vextinum. Ekki um hvort uppbygging eigi að halda áfram. Samtalið úr Ölfusi má nálgast í hljóði og mynd á mbl.is og Spotify Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang 11:12 Ævintýralegur vöxtur í Ölfusi Sveitarfélagið Ölfus hefur verið í gríðarmiklum vexti undanfarin ár og það mótar kosningabaráttuna þar sem nú er komin í fullan gang. Hvernig fer best á því að stýra sveitarfélagi sem í raun er að taka stakkaskiptum? Til svara eru oddvitar þeirra… Meira 09:14 Hvað vilt þú vita? Við minnum á spurningaboxið , nýja og skemmtilega viðbót á kosningavef mbl.is , þar sem lesendum Morgunblaðsins og mbl.is gefst kostur á að beina spurningum beint til oddvita og/eða framboða í komandi sveitarstjórnarkosningum. Blaðamenn Morgunblaðsins og mbl.is munu svo velja nokkrar spurningarnar og bera undir frambjóðendur á kosningaferðalagi sínu vítt og breitt um landið. Markmiðið er að efla umræðu og auka aðgengi kjósenda að upplýsingum um stefnu og áherslur framboðanna ásamt því að stuðla að lýðræðislegri þátttöku kjósenda um allt land. 08:06 S og D eru í framboði í Ölfusi í gær Nýta þarf orkuna á svæðinu Rangárþing ytra gengur til sveitarstjórnarkosninga í vor með stór verkefni í farangrinum, traustan rekstur að mati meirihlutans og skýran áherslumun milli framboðanna um forgangsröðun næstu ára. Meira í gær Lesendur geta nú spurt frambjóðendur Nú gefst lesendum Morgunblaðsins og mbl.is kostur á að beina spurningum beint til oddvita og/eða framboða í komandi sveitarstjórnarkosningum. Á kosningavef okkar má nú nálgast spurningabox þar sem hægt er að senda inn spurningar. Blaðamenn Morgunblaðsins og mbl.is munu velja nokkrar spurningarnar og bera undir frambjóðendur á kosningaferðalagi sínu vítt og breitt um landið. Markmiðið er að efla umræðu og auka aðgengi kjósenda að upplýsingum um stefnu og áherslur framboðanna ásamt því að stuðla að lýðræðislegri þátttöku kjósenda um allt land. í gær Staðan tekin í Rangárþingi ytra í fyrradag Mikið talað um vegaframkvæmdir en lítið um efndir í fyrradag X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí, en þá verður efnt til kosninga í 62 sveitarfélögum landsins af öllum stærðum og gerðum. Meira í fyrradag Rangárþing eystra heimsótt View this post on Instagram A post shared by mbl.is (@mblfrettir) 19.4. „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Sveitarstjóri Rangárþings eystra segir mikið talað um vegaframkvæmdir en að lítið sé um efndir hjá hinu opinbera. Hann vill að sveitarfélagið taki á sig aukna ábyrgð þegar kemur að uppbyggingunni. Meira 19.4. Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, fráfarandi oddviti Viðreisnar í borgarstjórn Reykjavíkur, hefur ákveðið að samþykkja boð L-listans í Þingeyjarsveit um að taka að sér starf sveitarstjóra í Þingeyjarsveit að loknum sveitarstjórnarkosningum. Meira 19.4. Sátt um Írisi hjá D-lista? 19.4. Spurt um bæjarstjóraefni og framkvæmdir í Eyjum Líf færðist í umræðurnar á borgarafundinum í Vestmannaeyjum þegar frambjóðendur fengu sjálfir að beina spurningum hver að öðrum. Þar komu ekki aðeins fram pólitískar pillur heldur svör um innri stöðu framboðanna og ágreining um framkvæmdir í bænum. Meira 19.4. Pétur vill rauða dregilinn út „Við viljum setja dúndurfókus á leikskólamálin og leysa þau í eitt skipti fyrir öll og eins hefur margt fólk talað um að erfitt sé að vera með rekstur og opna nýjan atvinnurekstur í Reykjavík,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík við mbl.is, aðframkominn eftir chili-sósu frá Sýn. Meira 18.4. Engar kosningar í fjórum sveitarfélögum Kjósendur í fjórum sveitarfélögum munu ekki

Share this article