Íslandsmótið í áhaldafimleikum fer fram um helgina í Ármannsheimilinu í Laugardal. Í dag er keppt í fjölþraut karla og kvenna og á morgun er keppt til úrslita á stökum áhöldum. Bein útsending frá fjölþraut hefst á RÚV í dag klukkan 13. Aðeins örfáa metra frá Ármannsheimilinu er svo Laugardalsvöllur og þar er leikur Íslands og Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta 2027. Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Íslands, slær landsleikjametið í leiknum þegar hún leikur 146. landsleik sinn. Leikurinn hefst klukkan 16:30 og er sömuleiðis sýndur beint á RÚV og hefst útsending í Stofunni klukkan 15:50.