Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íranar loka enn fyrir Hormússund

Read Full Article →

Íranski herinn hefur aftur sett í lás á Hormússundi, degi eftir að opnað var fyrir skipaumferð um þessa mikilvægu siglingaleið milli Persaflóa og Ómansflóa. Í tilkynningu í morgun sögðust Íranar munu hafa strangt eftirlit með umferð um sundið þar sem Bandaríkin hefðu gengið á bak orða sinna og haldið höfnum landsins í herkví. Ekki yrði opnað fyrir umferð um sundið að fullu fyrr en Bandaríkjaher hleypti skipum til og frá Íran. Vart opið í sólarhring Íranar féllust á að opna fyrir óhefta skipaumferð um Hormússund í gær, á meðan vopnahlé milli Írans og Ísraels og Bandaríkjanna stæði, en það á að renna út á miðvikudaginn næstkomandi. Þetta voru góðar fréttir fyrir hagkerfi heimsins, enda fer um fimmtungur af allri heimsframleiðslu olíu þar um, og olíuverð lækkaði skarpt í kjölfar yfirlýsingarinnar. Bandaríkjamenn létu þó ekki af herkvínni sem þeir höfðu sett á Íran og sögðust ætla að halda henni til streitu þar til fullnaðarsamningur næðist. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gærkvöldi að hann krefðist þess að allt auðgað úran yrði flutt úr kjarnorkuverum Írana til Bandaríkjanna. Íranar segja það ekki koma til greina.

Share this article