Íranski byltingarvörðurinn tilkynnti í dag að hægt yrði að opna Hormússund fyrir skipaumferð þar sem ógn af árásarmönnum hefði verið hrundið. Ekki er fyllilega ljóst hvað þar er átt við en getum hefur verið leitt að því að þarna vísi Íranar til þess að Bandaríkjaforseti hætti við herfylgd flutningaskipa í gegnum sundið. Skipstjórum og eigendum flutningaskipa er þakkað fyrir að virða reglur Írana um siglingar á Hormússundi í færslu íranska byltingarvarðarins á samfélagsmiðlinum X. Þar segir að með því að ógnum árásarmanna hafi verið hrundið og nýtt samkomulag sé í gildi sé hægt að tryggja aftur öruggar og stöðugar siglingar um Hormússund. Yfirlýsing íranska byltingarvarðarins er talin til marks um að Íranar ætli að hleypa umferð í gegnum sundið. Siglingar þar í gegn hafa verið mikil háskaför síðan árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hófust og það hefur haldist óbreytt þrátt fyrir vopnahlé. Íranar hafa ráðist að skipum á sundinu. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir á dögunum að flutningaskip fengju fylgd bandaríska flotans um Hormússund. Í gær lýsti hann því yfir að ekkert yrði af slíku þar sem reyna ætti á friðarsamninga við Írana. Fréttin verður uppfærð.