Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Halla enn á lægri launum en Ragnar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.4.2026 | 12:35 Halla enn á lægri launum en Ragnar Heildaraun Höllu eftir hækkun eru um 200 þusund krónum lægri en laun Ragnars Þórs voru. Samsett mynd/Eyþór/Eggert/Anton Brink Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Heildarlaun Höllu Gunnarsdóttur, formanns stéttarfélagsins VR, hafa verið hækkuð úr 1.724.064 krónum í 1.913.000 krónur eftir að tillaga launanefndar félagsins var samþykkt af stjórn. Í samtali við mbl.is fyrr í dag hélt Jónas Yngvi Ásgrímsson, stjórnarmaður í VR, því fram að laun Höllu hefðu hækkað úr 1,4 milljónum í 1,95 milljónir króna. Minnisblað launanefndar VR skýtur skökku við fullyrðingar Jónasar og þar segir að um tilfærslu launa sé að ræða. Frétt af mbl.is Laun formanns VR hækkuð Halla óskaði eftir skoðun Í minnisblaðinu kemur fram að Halla hafi sjálf óskað eftir því að launanefnd tæki til skoðunar umgjörð starfskjara formanns í heild sinni með það fyrir augum að tryggja gagnsæi og sanngirni í launakjörum. Halla benti á mikilvægi þess að launanefnd ákvarði heildarlaun formanns fyrir starf sitt í þágu VR og að ef formaður taki að sér önnur launuð störf á vegum verkalýðshreyfingarinnar komi þau til frádráttar eða renni til VR. Eins og staðan er núna ráðast heildarlaun formanns VR af því hvaða öðrum embættum viðkomandi sinnir innan LÍV og ASÍ. „Með þessu móti skapast hvati fyrir þann einstakling sem gegnir formannsembætti að taka að sér önnur launuð störf, óháð því hvort það þjónar best hagsmunum VR og hreyfingarinnar í heild eða ekki. Þessi aukaembætti koma ekki til umræðu innan launanefndar eða stjórnar VR en hafa engu að síður áhrif á heildarkjör formanns og þann tíma sem hann hefur til að sinna störfum fyrir félagið,“ segir í minnisblaði VR. Laun Ragnars ekki rædd í stjórn Þar kemur einnig fram að fyrrverandi formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, sem nú gegnir embætti félags- og húsnæðismálaráðherra, hafi hækkað í heildarlaunum vegna starfa sinna fyrir ASÍ og LÍV en það hafi aldrei verið rætt innan launanefndar VR eða stjórnar félagsins. Launanefnd VR lagði til að samið yrði við formann um ákveðna launafjárhæð og tæki formaður að sér önnur launuð störf tengd formennsku í VR rynnu þær launagreiðslur til VR. Heildarlaun Ragnars Þórs, þegar hann gegndi embætti formanns VR, námu 2.119.924 krónum sem er tæpum 400 þúsund krónum meira en heildarlaun Höllu fyrir breytingar. Vert er þó að nefna að samhliða formennsku í VR gegndi Ragnar embætti formanns LÍV, Halla tók ákvörðun um að sækjast ekki eftir því embætti en tók þar sæti í stjórn. „Launanefndin leit til þess hvað fyrrverandi formaður hafði í heildarlaun sem og til launa annarra aðila innan verkalýðshreyfingarinnar í sambærilegum stöðum. Var þar einkum litið til launa formanns SGS og BSRB sem bæði eru með um kr. 1.950.000,“ segir í minnisblaðinu. Formaður fari reglulega í frí Launanefndin lagði til að setja viðmið við launatölu formannsins, sem væri meðaltal miðgildislauna VR árið 2025 margfaldað með 2,3. Launanefnd muni svo fara árlega yfir laun formanns og sjá hvernig þau hafa þróast miðað viðkjarasamningsbundnar hækkanir, líta til meðaltals miðgildislauna í VR og skoða laun annara í sambærilegum stöðum. Þá lagði launanefnd til að formaður safni ekki upp orlofi heldur fari reglulega í frí og að aukaorlof sem kæmi til vegna kjarasamningsgerðar væri að öllu jöfnu tekið út innan tveggja ára og utan hefðbundins orlofstímabils. Launanefnd myndi árlega fara yfir orlofsstöðu formanns og upplýsa stjórn. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Halla enn á lægri launum en Ragnar Fagna vorinu með ýmsum viðburðum Skipakomur verða 221 í sumar Snýr aftur í uppeldisfélagið Prime Minister invited to meeting with Grindavík residents Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veruleg skerðing á bílastæðum Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Agabrot flugstjórans ólíðandi Sjávarútvegsstjórinn albúinn til viðræðna Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Laun formanns VR hækkuð Komu saman og rifjuðu upp ferðina um Hormússund Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu Réðst á leigubílstjóra Kristrún boðuð á fund Grindvíkinga Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Halla enn á lægri launum en Ragnar Fagna vorinu með ýmsum viðburðum Skipakomur verða 221 í sumar Snýr aftur í uppeldisfélagið Prime Minister invited to meeting with Grindavík residents Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Loka Hormússundi aftur Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Laun formanns VR hækkuð Komu saman og rifjuðu upp ferðina um Hormússund Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu Réðst á leigubílstjóra Kristrún boðuð á fund Grindvíkinga Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article