Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Pétur kynnti áherslur Samfylkingarinnar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.4.2026 | 13:48 | Uppfært 15:27 Pétur kynnti áherslur Samfylkingarinnar Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. mbl.is/Ólafur Árdal Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána 1150 ára saga elsta hrepps landsins Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Uppgangur samfélags í þjóðbraut Samgöngur og vatnsöryggi á oddinum » Fleiri tengdar fréttir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, kynnti áherslur flokksins við opnun kosningamiðstöðvar Samfylkingarinnar í Reykjavík í dag. Á meðal áherslna flokksins er fjölgun leikskólaplássa og að standa við þá samninga sem borgin hefur gert við ríki og nágrannasveitarfélög í samgöngumálum. Í tilkynningu frá Samfylkingunni segir að í kosningaáherslum flokksins í Reykjavík, sem beri yfirskriftina Nýjar áherslur – sama markmið: Borg fyrir fólk, séu kynntar fjórar megináherslur sem flokkurinn muni setja í forgang á næsta kjörtímabili, fái flokkurinn traust til þess hjá kjósendum. Þá hyggst flokkurinn setja börnin í fyrsta sæti og „rúlla út rauða dreglinum” fyrir fólk og fyrirtæki sem vilja láta gott af sér leiða í borginni. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var mætt á fundinn. mbl.is/Ólafur Árdal Vilja að réttur til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi verði lögfestur „Við megum ekki láta grunninn okkar, þjónustuna við borgarbúa, líða fyrir mikinn vöxt og breytingar í skipulagsmálum. Jú, okkur hefur fjölgað mikið og það hefur aukið álag á kerfinu. En við þiggjum þjónustu sem einstaklingar, ekki sem meðaltal eða íbúatala. Traust til borgarstjórnar hefur minnkað og við þurfum að sýna í verki að við séum traustsins verð,” er haft eftir Pétri Marteinssyni. Þá kemur fram að tillögur Samfylkingarinnar um að setja börnin í fyrsta sæti feli meðal annars í sér fjölgun leikskólaplássa um 1.500 og hækkun framlags til viðhalds og uppbyggingar leikskólahúsnæðis. Flokkurinn vilji að réttur barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi verði lögfestur í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. „Við megum ekki lifa á fornri frægð. Það hafa verið gefin of mörg loforð og þrátt fyrir að við höfum fjárfest mikið í leikskólakerfinu hafa fjölmennustu sveitarfélög landsins enn ekki náð að standa við stóru orðin um að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskólavistar,” er haft eftir Pétri. mbl.is/Ólafur Árdal Íslenskukennsla barna af erlendum uppruna verði tekin föstum tökum „Við megum ekki lifa á fornri frægð. Það hafa verið gefin of mörg loforð og þrátt fyrir að við höfum fjárfest mikið í leikskólakerfinu hafa fjölmennustu sveitarfélög landsins enn ekki náð að standa við stóru orðin um að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskólavistar,” er haft eftir Pétri. „Og höfum það alveg á hreinu. Samfylkingin mun alltaf standa gegn tvöföldu kerfi í leikskólum og gegn barnaskatti á fjölskyldur. Þvert á móti þá höldum við áfram með systkinaafslátt, tekjutengingar og pössum upp á að það sé þak á leikskólagjöldum hverrar fjölskyldu.” Þá er til viðbótar lagt til að stuðningur verði aukinn í grunnskólum og að íslenskukennsla barna af erlendum uppruna verði tekin föstum tökum til að stuðla að þátttöku allra í íslensku samfélagi. Til að styðja við framtakssamt fólk og fyrirtæki hyggst Samfylking „rúlla út rauða dreglinum”. Það vill flokkurinn gera með því að eftirlit komi í stað langra og ófyrirsjáanlegra leyfisferla og fyrirtæki fái einn tengilið til samskipta við borgina. mbl.is/Ólafur Árdal Flækjustig orðið of hátt Til að styðja við framtakssamt fólk og fyrirtæki hyggst Samfylking „rúlla út rauða dreglinum”. Það vill flokkurinn gera með því að eftirlit komi í stað langra og ófyrirsjáanlegra leyfisferla og fyrirtæki fái einn tengilið til samskipta við borgina. Leyfisveitingar vegna reksturs og framkvæmda verða einfaldaðar til að stytta biðtíma, segir í tilkynningu flokksins. Þá er haft eftir Pétri að flækjustig sé orðið of hátt og að afgreiðsla mála taki of langan tíma. Borgin eigi að vera staður þar sem hlutirnir gerast, en ekki staður þar sem góðar hugmyndir deyja í biðröð. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri tók til máls á fundinum. mbl.is/Ólafur Árdal Munu halda áfram framkvæmdum borgarlínunnar Þriðja megináhersla flokksins er að hefja framkvæmdir og standa við þá samninga sem Reykjavíkurborg hefur gert við ríkið og öll nágrannasveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. „Það versta sem gæti komið fyrir umferðina í Reykjavík væri að hér yrði myndaður meirihluti sem hendir öllu í ruslið sem unnið hefur verið að á síðustu árum í samgöngumálum, til þess eins að setjast aftur að teikniborðinu. Þetta er það sem hægriflokkarnir í Reykjavík boða núna: Nýjar nefndir, meiri tafir, minni framkvæmdir, engar breytingar,” er haft eftir Pétri. Þá segir að flokkurinn standi með uppbyggingu Borgarlínu og muni halda áfram þeim framkvæmdum sem þegar séu hafnar. Aukinheldur verði áfram byggðir upp hjólastígar með áherslu á að tengja hverfi borgarinnar saman. Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Ólafur Árdal Vill byggja upp íþróttamannvirki um alla borg Fjórða megináhersla flokksins er svo að rækta hverfiskjarnann, að því er kemur fram í tilkynningunni. Tillögur flokksins snúa að því að einfalda framtakssömu fólki að stofna til reksturs. Aukinheldur vill flokkurinn byggja upp íþróttamannvirki um alla borg, skipuleggja nýjan golfvöll og klára uppbyggingu skíðasvæðis í Breiðholti. Þá kemur fram að á næsta kjörtímabili verði byggðar 6.000 nýjar íbúðir og að flokkurinn muni styðja áfram við óhagnaðardrifna uppbyggingu til að tryggja húsnæðisöryggi fyrir alla en ekki aðeins þá sem standa sterkast. „Það er jafnaðarmennska fyrir venjulegt fólk og þannig byggjum við betra samfélag,” er haft eftir Pétri. Hér er hægt að skoða áherslur Samfylkingarinnar nánar. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána 1150 ára saga elsta hrepps landsins Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Uppgangur samfélags í þjóðbraut Samgöngur og vatnsöryggi á oddinum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Paid parking introduced at Egilshöll Bjarki magnaður í Íslendingaslagnum Bjarki og félagar skrefi nær efstu deild Haukar – ÍBV kl. 16, bein lýsing 300 ferðir á spítalann Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 300 ferðir á spítalann Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Málið komið fram á fölskum forsendum Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Laun formanns VR hækkuð Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Báru særðan mann yfir úfið hraun Komu saman og rifjuðu upp ferðina um Hormússund Halla enn á lægri launum en Ragnar Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Paid parking introduced at Egilshöll Bjarki magnaður í Íslendingaslagnum Bjarki og félagar skrefi nær efstu deild Haukar – ÍBV kl. 16, bein lýsing 300 ferðir á spítalann Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Laun formanns VR hækkuð Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Báru særðan mann yfir úfið hraun Komu saman og rifjuðu upp ferðina um Hormússund Halla enn á lægri launum en Ragnar Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article