Innlent | mbl | 19.4.2026 | 8:06 Pétur vill rauða dregilinn út Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir ákveðin málefni einkum njóta áherslu flokks hans þótt málefnaskráin sé mun lengri en það sem hann tíundar í viðtali við mbl.is. mbl.is/Ólafur Árdal Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sjálfkjörið á fjórum stöðum á landinu Pétur kynnti áherslur Samfylkingarinnar Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána 1150 ára saga elsta hrepps landsins Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið » Fleiri tengdar fréttir Málefni Reykjavíkurborgar Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Borgin greiði einstaklingum á biðlista milljónir Vaxandi óánægja með störf borgarstjóra „Hættu bara samtali við Alvotech“ Vill samstarf við atvinnulífið um leikskóla » Fleiri tengdar fréttir „Þetta leggst gríðarlega vel í mig, við erum nú loks að kynna stefnumálin við frambjóðendur eftir að hafa setið saman dálítið langan tíma,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, í samtali við mbl.is, inntur eftir helstu stefnumálum í borginni sem flokkur hans kynnti í dag. Frétt af mbl.is Pétur kynnti áherslur Samfylkingarinnar Kvartar Pétur einkum yfir því að í viðtali við dagskrárliðinn Á vængjum fram á Sýn, skömmu fyrir þetta viðtal, hafi honum verið borin chili-sósa allsterk og sé hann varla með sjálfum sér eftir þá reynslu. Nær hann þó að koma hjartans málum Samfylkingarinnar í Reykjavík frá sér. Dúndurfókus á leikskólamálin „Stemmningin hefur verið góð og mér fannst mikilvægt að fá ákveðna nánd og ræða málefnin,“ segir oddvitinn. „Við erum óhrædd við að segja að við erum breytingaafl, margt nýtt fólk er á listanum og ég er nýr maður í brúnni. Við höfum rætt við fjölda fólks og við heyrum svo reglulega að fólk vilji breytingar,“ heldur hann áfram og byrjar á málefnum barna. Frétt af mbl.is Pétur H. Marteinsson hafði betur í oddvitaslagnum „Við viljum setja dúndurfókus á leikskólamálin og leysa þau í eitt skipti fyrir öll og eins hefur margt fólk talað um að erfitt sé að vera með rekstur og opna nýjan atvinnurekstur í Reykjavík. Við viljum rúlla rauða dreglinum út fyrir atvinnulífið og framtakssamt fólk. Ég hef verið hinum megin við borðið og veit alveg hvar pottur er brotinn,“ segir Pétur og vísar meðal annars til allra þeirra sem farið hafa bónleiðir til búðar þegar að því kemur að hefja rekstur en mbl.is fjallaði í haust um þá Krýsuvíkurleið sem umsækjendur um veitingaleyfi hafa mátt fara til borgarinnar. Frétt af mbl.is Ekki hægt að hringja í heilbrigðiseftirlitið „Ég þekki það frá Svíþjóð hvernig kerfið hefur verið einfaldað þar ef menn ætla að opna veitingahús eða kaffihús. Framtakssamt fólk sem vill gera gott í borginni, hvort sem það er inni í hverfunum eða niðri í miðbæ, það skiptir ekki máli, á að finna fyrir Reykjavíkurborg sem er með því í liði. Við viljum að hverfin séu sterk og við viljum hjálpa fólki sem er að opna nýjan rekstur,“ segir oddvitinn hispurslaust. Hundleiðinlegt að sitja í umferð Einnig segir hann samgöngumál hafa borið á góma. „Við heyrum það og við vitum það sjálf að það er hundleiðinlegt að sitja í umferð á annatímum. Við teljum það óábyrgt að halda ekki áfram með þann samgöngusáttmála sem ríki og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa komið sér saman um. Við stefnum á að einfalda hlutina og bjóða raunverulega valkosti fyrir þá sem ætla að ferðast um borgina. Ef 70 nýir bílar koma á götuna hverja viku getum við ekki byggt endalaust af bílstæðum eða akreinum. Við styðjum samgöngusáttmálann og teljum það óábyrgt að hverfa frá honum og fresta öllu um mörg ár,“ segir Pétur. Inntur eftir fleiru segir hann þetta þau mál sem eru efst á blaði, að gera gangskör að því að leikskólaganga barna gangi snurðulaust fyrir sig, einfalda sókn að nýjum rekstri og gera borgarbúum kleift að komast leiðar sinnar klakklaust. Börn með annað móðurmál „Þær breytingar sem við gerum tillögu um eru á grundvelli jafnaðarmennsku,“ segir hann, „við setjum okkur upp á móti tvöföldu kerfi leikskólanna, að einhver börn fái ekki að fara á einhverja leikskóla út af stöðu sinni. Leikskólinn og grunnskólinn eru lykiljafnaðartæki. Börn eiga ekki að finna mismunun eða ójöfnuð, þegar 25 prósent barna í sumum hverfum, og jafnvel meira í öðrum hverfum, eru með annað móðurmál þurfum við að leggja mun meira kapp á íslenskukennslu fyrir börn af öðrum uppruna. Við erum með stóra málefnaskrá fyrir okkur sjálf en svo erum við með það sem við kynnum út á við og leggjum höfuðáherslu á – börnin í fyrsta sæti, rauði dregillinn fyrir atvinnulífið og að rækta hverfiskjarnana. Hverfin okkar eru svo mismunandi og frábær,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, að lokum við mbl.is um stefnumál flokksins fyrir komandi kosningar. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sjálfkjörið á fjórum stöðum á landinu Pétur kynnti áherslur Samfylkingarinnar Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána 1150 ára saga elsta hrepps landsins Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið » Fleiri tengdar fréttir Málefni Reykjavíkurborgar Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Borgin greiði einstaklingum á biðlista milljónir Vaxandi óánægja með störf borgarstjóra „Hættu bara samtali við Alvotech“ Vill samstarf við atvinnulífið um leikskóla » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Akureyringar lagfæra lýsinguna Pétur vill rauða dregilinn út Kirkjan verður af háum fjárhæðum Allt að 11 stiga hiti Íþróttaparið fræga í sitt hvora áttina Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Olíuverð hríðfellur Agabrot flugstjórans ólíðandi „Við eigum hérna frábært hús á frábærum stað og sagan er djúp“ Uppgangur samfélags í þjóðbraut Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Milljónir gengu út í kvöld Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Frjáls ferða sinna eftir árás á leigubílstjóra 300 ferðir á spítalann Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur X26: Ekki kosið í fjórum sveitarfélögum Halla enn á lægri launum en Ragnar Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað Nýjast á mbl.is » Akureyringar lagfæra lýsinguna Pétur vill rauða dregilinn út Kirkjan verður af háum fjárhæðum Allt að 11 stiga hiti Íþróttaparið fræga í sitt hvora áttina Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Milljónir gengu út í kvöld Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Frjáls ferða sinna eftir árás á leigubílstjóra 300 ferðir á spítalann Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur X26: Ekki kosið í fjórum sveitarfélögum Halla enn á lægri launum en Ragnar Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað