Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þýskur vorboði á Ísafirði

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.4.2026 | 19:00 Þýskur vorboði á Ísafirði Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Íslenskir fossar fá afleita dóma frá ferðamönnum „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Telja ferðamenn örugga við jökulinn Rúður brotnuðu í tugum bíla við Hvalnes Ræða hættumerki í íslensku hagkerfi » Fleiri tengdar fréttir „Þetta er fyrsta skemmtiferðaskipið sem kemur til okkar á þessu tímabili, það kom til Reykjavíkur fyrir tveimur dögum og svo hingað,“ segir Hilmar Lyngmo, hafnarstjóri á Ísafirði, í samtali við mbl.is um þýska skemmtiferðaskipið AIDAsol sem nú hefur heimsótt bæinn með 2.317 farþega innanborðs, sannkallaður vorboði að sögn Hilmars. Færleikurinn þýðverski kom til Ísafjarðar í dag og skrifaði lunkinn ritari Facebook-síðu Ísafjarðarhafnar í fróðlegri færslu sinni í gær að Ísafjörður yrði iðandi af lífi milli fjalls og fjöru við komuna. „Í fjöllunum ofan bæjarins munu mörg hundruð manns ganga Fossavatnsgönguna, en niðri við sjávarmál tökum við á móti fyrsta skemmtiferðaskipi ársins, þegar AIDAsol leggst að Sundabakkanum með 2.317 farþega innanborðs. Áætlað er að skipið komi klukkan 8 og stoppi til 16,“ ritar sá. 179 skip væntanleg í ár Hilmar hafnarstjóri segir skipið svo halda för sinni áfram til Akureyrar og Seyðisfjarðar áður en það verði horfið fósturjarðar strönd og hlíðum og segir aðspurður að heimsóknin hafi sett svip sinn á bæjarbraginn á Ísafirði. „Jú jú, þetta er byrjunin á sumrinu, við tókum á móti 188 skipum í fyrra og í ár eru 179 heimsóknir bókaðar. Þetta er okkar vorboði,“ segir Hafnarstjóri og kveður vel hafa verið tekið á móti farþegunum þýsku, bærinn sé að vakna úr vetrardvala og hvalaskoðunar- og ýmsar fleiri ferðir í boði. Við sláum botninn í þessa ferð með frásögn Facebook-ritara hafnarinnar sem Hilmar kveður „mjög pennalipran dreng“. AIDAsol er komin á táningsaldurinn, en hún var tekin í notkun árið 2011. Hún var að mestu smíðuð í Papenburg í Þýskalandi og þegar smíðinni var næstum alveg lokið var henni fleytt til sjávar eftir ánni Ems. Það er vinsælt sjónarspil að fylgjast með þegar ný skip eru flutt þessa leið úr skipasmíðastöðinni, enda er áin rétt nógu stór til að ráða við stærstu skipin. Þessir viðburðir eru fyrir Þjóðverja svipaðir og sólmyrkvinn er fyrir Íslendinga, fólk kemur hvaðanæva að úr heiminum til að fylgjast með. Þýski færleikurinn AIDAsol speglar sig í haffletinum á Eyri við Skutulsfjörð sem eitt sinn hét, vorboði Ísfirðinga. Ljósmynd/Guðbjartur Ásgeirsson Smíðin var síðan kláruð í Kiel og þá var boðað til hátíðar þar sem skipið átti að fá nafnið AIDAsphinx V. Eigendurnir voru þó eitthvað tvístígandi með nafnið og á endanum skiptu þeir um skoðun og AIDAsol varð niðurstaðan. Guðmóðirin heitir Bettina Zwickler en hún náði sér í þennan virðulega titil í gegnum Facebook leik sem útgerðin efndi til. Sá leikur var eingöngu ætlaður konum og því er rétt að árétta að Facebook leikur Hafna Ísafjarðarbæjar er opinn öllum, óháð kyni. En talandi um konur þá varð AIDAsol fyrsta skip AIDA útgerðarinnar til að sigla undir stjórn konu. Það gerðist árið 2018, þegar Nicole Langosch sem fékk stöðuhækkun og skipstjóratign. Þegar þetta er skrifað er þó ekki vitað hvort hún muni sjálf standa við rattið í heimsókninni á morgun. AIDAsol í Ísafjarðarhöfn, voldugur mastra-jór þótt möstrin vanti en þar fer gömul skáldskaparkenning um skip. Ljósmynd/Guðbjartur Ásgeirsson Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Íslenskir fossar fá afleita dóma frá ferðamönnum „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Telja ferðamenn örugga við jökulinn Rúður brotnuðu í tugum bíla við Hvalnes Ræða hættumerki í íslensku hagkerfi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lærisveinar Arnós slógu Magdeburg úr leik Ágúst og Thelma Íslandsmeistarar Fór mikinn þegar Sporting fór í úrslit Þýskur vorboði á Ísafirði Chelsea – Man. Utd, staðan er 0:0 Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé „Við eigum hérna frábært hús á frábærum stað og sagan er djúp“ Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Halla enn á lægri launum en Ragnar „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Laun formanns VR hækkuð Báru særðan mann yfir úfið hraun Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Lærisveinar Arnós slógu Magdeburg úr leik Ágúst og Thelma Íslandsmeistarar Fór mikinn þegar Sporting fór í úrslit Þýskur vorboði á Ísafirði Chelsea – Man. Utd, staðan er 0:0 Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Olíuverð hríðfellur Sjávarútvegsstjórinn albúinn til viðræðna Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Halla enn á lægri launum en Ragnar „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Laun formanns VR hækkuð Báru særðan mann yfir úfið hraun Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article