Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi

  • What: A popular store that specialized in alcoholic products is accused of violating its own privacy policy.
  • Impact: The incident involves a business and its compliance with privacy regulations.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 18.4.2026 | 21:00 Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Vinsæl verslun sem sérhæfði sig í lífrænum vörum. Ekki var amast við netsölu með náttúruvín hennar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki „ÁTVR tók þátt í þessu og fannst þessi starfsemi bara lítil og sæt. Staðreyndin er sú að þetta er sama starfsemi og netverslanir eru með í dag,“ segir Arnar Sigurðsson, vínkaupmaður í Santé. Málefni netverslana með áfengi hafa mikið verið til umfjöllunar að undanförnu. Fyrir Alþingi liggur frumvarp um vefverslun með áfengi og nýverið féll dómur þar sem forsvarsmaður Smáríkisins var dæmdur í prófmáli fyrir sölu á hvítvínsbelju. Arnar segir að það sé holur hljómur í röksemdafærslu um mikilvægi starfsemi ÁTVR því stofnunin hafi sjálf brotið gegn eigin einkaleyfi. Vísar hann þar til netverslunar sem Frú Lauga rak fyrir rúmum áratug. Frú Lauga kynnti vín á netinu, tók við pöntunum og framsendi þær til ÁTVR – sem síðan afhenti vínin í vínbúðum sínum. Lögfræðiálit frá 2014 Kaupmaðurinn vekur athygli á því að lögfræðiálit hafi verið unnið fyrir ÁTVR árið 2014 sem síðan var kynnt fjármála- og dómsmálaráðuneyti. Í því hafi komið fram að sú starfsemi hafi verið talin brjóta í bága við einkaleyfi ÁTVR: „Með þessari háttsemi verður að teljast líklegt að seilst sé inn á smásölusviðið þannig að brjóti gegn einkaleyfi ÁTVR. Að auki virðist augljóst að Frú Lauga brjóti með þessari starfsemi gegn auglýsingabanni áfengislaga.“ Arnar segir að niðurstaða álitsins hafi verið að rétt væri að vekja athygli lögreglu á starfseminni. ÁTVR hafi hins vegar áfram unnið með Frú Laugu. „Þarna var litli einyrkinn að selja lífrænar appelsínur frá Sikiley og svo einhver náttúruvín. Það þótti vera í góðu lagi,“ segir hann og bætir við að starfsemi Frú Laugu hafi verið sambærileg þeirri sem Smáríkið og aðrar netverslanir reki í dag. Frú Lauga hafi boðið upp á áfengi til sölu á vefsíðu sinni, áfengið var flutt inn af áfengisheildsala en var ekki í almennu vöruúrvali ÁTVR, vörurnar voru kynntar í máli og myndum á netinu, neytendur lögðu inn pöntun á vefsíðu Frú Laugu og hún var svo framsend rafrænt til ÁTVR. Stofnunin kallaði eftir vörunni frá heildsala, tók við henni og afhenti neytandanum í vínbúð gegn greiðslu. Arnar Sigurðsson og Elías Blöndal Guðjónsson eiga og reka heildsöluna Santé. mbl.is/Eggert Jóhannesson Réttarfarið safn valrétta í huga embættismanna Smáríkið býður áfengi til sölu á vefsíðu sinni, það er flutt inn og tollafgreitt, vörurnar eru kynntar á netinu og neytendur leggja inn pöntun og greiða á vefsíðunni. Varan er svo afhent á afhendingarstað eða með heimsendingu. Arnar segir að ÁTVR hafi sjálft verið ómissandi hlekkur í meintri ólöglegri starfsemi Frú Laugu. „ÁTVR tók við rafrænum pöntunum frá vefsíðu sem braut, að mati álitsins, auglýsingabann, kallaði eftir vörunum og afhenti þær. ÁTVR hélt því reyndar ítrekað fram að netverslun væri brot á auglýsingabanni þar til stofnunin opnaði eigin netverslun. Sama átti við þegar því var haldið fram að engir aðrir en starfsmenn stofnunarinnar mættu afhenda áfengi þar til stofnunin hóf sjálf að láta sjö matvöruverslanir afhenda fyrir sig áfengi. Embættismenn virðast líta á réttarfarið sem safn valrétta.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Frjáls ferða sinna eftir árás á leigubílstjóra Mikilvæg stig fyrir United "Geggjað að hafa komist í þessi færi" Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi „Segir mikið að við séum svekktar eftir leik á móti Englandi“ Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við eigum hérna frábært hús á frábærum stað og sagan er djúp“ Sjávarútvegsstjórinn albúinn til viðræðna Veruleg skerðing á bílastæðum Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Halla enn á lægri launum en Ragnar „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Laun formanns VR hækkuð Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Báru særðan mann yfir úfið hraun Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Frjáls ferða sinna eftir árás á leigubílstjóra Mikilvæg stig fyrir United "Geggjað að hafa komist í þessi færi" Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi „Segir mikið að við séum svekktar eftir leik á móti Englandi“ Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Uppgangur samfélags í þjóðbraut Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Halla enn á lægri launum en Ragnar „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Laun formanns VR hækkuð Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Báru særðan mann yfir úfið hraun Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article