Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fólk þurfi að vera hrætt

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.4.2026 | 23:05 Fólk þurfi að vera hrætt Sólveig Anna fær sér einn og hæðist að stöðu Höllu Gunnarsdóttur og launahækkun hennar á Facebook-síðu sinni. Ljósmynd/Facebook Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Átök innan verkalýðshreyfingarinnar „Með fullt og óskorað umboð“ BSRB og SNS funda hjá ríkissáttasemjara Stjórnvöld dýpki verðbólguna Verkfallsaðgerðir árið 2023 fjarstæðukenndar Átökin bitna einungis á hinum almenna félagsmanni » Fleiri tengdar fréttir „Ég hef ákveðið að fá á næsta stjórnarfundi vinveittan og góðhjartaðan stjórnarmeðlim til að bera upp tillögu um gríðarlega rausnarlega launahækkun handa mér,“ skrifar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður stéttarfélagsins Eflingar, á Facebook-síðu sína og gerir þar augljóslega gys að nýlegri launahækkun Höllu Gunnarsdóttur, formanns stéttarfélagsins VR, úr 1.724.064 krónum í 1.913.000 krónur eftir að tillaga launanefndar félagsins var samþykkt af stjórn. Áfram heldur Sólveig Anna og skrifar: „Hækkunin á að bæta mér upp þá fáránlegu ákvörðun sem ég tók árið 2018 um að lækka eigin laun um 300.000 krónur – ég taldi að með þessu yrði ég mér útum pólitískt auðmagn og gæti viðhaldið svokölluðu street-cred, sem mér var þá mjög umhugað um. Þá vissi ég ekki að íslensk verkalýðsforysta á aðeins það besta skilið – sérstaklega þegar kemur að launakjörum.“ Ýjar Sólveig Anna því næst að því að Halla hafi sjálf sannfært stjórn VR um að horfið yrði af þeirri stefnu VR að enginn sem vinnur á skrifstofu félagsins mætti hækka í launum um meira en sem kjarasamningsbundnum hækkunum nemur. Frétt af mbl.is Halla enn á lægri launum en Ragnar „Það er reyndar ég sjálf sem hef innleitt og fylgt eftir stefnunni – en það var vegna þess að ég taldi mikilvægt að forystan sýndi hófsemd – ég er mjög misþroska og í sumum málum nokkurskonar hálfviti – en er sem betur fer fær um að læra af öðrum – sérstaklega yfirburðafólki langbestu verkalýðshreyfingar í heimi,“ skrifar Eflingarformaðurinn enn fremur. Sólveig Anna rifjar upp þau ummæli Ragnars Þórs Ingólfssonar, fyrrverandi formanns VG og forvera Höllu í starfi, við Morgunblaðið að Halla væri Lenínisti. Einn maður – tveir kettir „Ég ákvað að móðgast ægilega en það var óttalegur leikaraskapur svo það sé sagt – mér finnst bara gaman að vera uppnefnd Lenínisti. Lenín átti víst bara einn stól, eitt borð, eina konu og einn kött. Ég á reyndar bara einn mann en tvo ketti og töluvert marga stóla, sama má segja um borðin. Ég hef viljað reyna að muna eitthvað af gömlu gildum verkalýðsbaráttunnar – byltingarsinnaðrar eða ekki – en nú nenni ég þessu rugli ekki lengur. Launahækkun fyrir mig, feit og girnileg – allavega 15%, en helst 30%. Eins og kveðið var forðum: I'm worth it!“ Halla Gunnarsdóttir formaður VR er „worth it“ segir Sólveig Anna í pistli sínum en er þó augljóslega allt annarrar skoðunar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Baldvin Nielsen, varamaður í stjórn VR fyrir Suðurland, gagnrýnir launahækkun Höllu í samtali við mbl.is og segir það eindregna skoðun sína að ráðningarsamningar formanns og framkvæmdastjóra VR, sama hverjir séu og verði, séu upp á borðum og birtir í heild sinni á heimasíðu félagsins undir liðnum kjaramál auk þess sem verktakagreiðslur til þeirra og annarra, sem eru á launaskrá VR, séu bannaðir með öllu. „Ég er búinn að vera varamaður í stjórn VR fyrir Suðurland í nokkur ár og hef alltaf verið kallaður inn á fundi af því að það hefur aldrei verið full mæting hjá aðalmönnum sem voru kosnir til þeirra verka en svo kom babb í bátinn fyrir síðustu jól þegar mér var ekki boðið í árlegt jólaboð aðalstjórnar VG í Reykjavík og það var engin jólagjöf sem beið eftir mér fyrir hátíð kærleikans það drottins ár 2025,“ segir Baldvin. Kosningar í kortunum Kveðst hann í framhaldinu hafa vitað upp á sig skömmina sem meðal annars hafi verið sú að hafa skoðun á fundi fyrir síðustu kjarasamninga þegar starfslok Ragnars Þórs bar á góma, „sem er í dag félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir Flokk fólksins og berst sem slíkur fyrir leiguþaki á húsnæði sem er vel nema að ég hefði viljað sjá að það væri líka vaxtaþak svo þetta líti ekki út eins og það séu kosningar í kortunum“, segir Baldvin enn fremur. Hann segir Ragnar Þór hafa sagt að þessi starfslokasamingur væri neyðarsjóður fjölskyldu sinnar þar sem atvinnuöryggi hans gæti verið í hættu eftir að hans tíma lyki sem formanns VR eins og frægt hafi verið og fjallað nokkuð um í fjölmiðlum enda rök Ragnars Þórs gegn starfslokasamningum hjá einkafyrirtækjum þekkt þegar eigendur hafi verið hressir og gert vel við sína stjórnendur. Baldvin Nielsen sendir þessa mynd til jarteikna um að hann hafi sótt 45. þing Alþýðusambands Íslands og kveðst enga þóknun hafa tekið fyrir. Ljósmynd/Aðsend Áfram heldur Baldvin „Kolbrún, formaður deildar VR á Suðurlandi, virkar mjög hrædd um sitt starfsöryggi þegar ég hef verið að ræða við hana en hún er starfsmaður af lífi og sál á skrifstofu VR í Reykjavík og á Selfossi svo það er kannski eitthvað til í þessum orðum Ragnars Þórs, að fólk þurfi að vera hrætt þegar kemur að stjórnunarstíl þeirra sem ráða hjá VR á skrifstofunni í Reykjavík sem dæmi,“ segir hann. Baldvin vitnar að lokum í frétt DV í dag um launamál Höllu og segir Stefán Sveinbjörnsson framkvæmdastjóra VG birta launamál hennar, væntanlega með leyfi hennar. Að lokum segir Baldvin: „Af hverju ekki að birta allan ráðningarsamninginn og á netinu líka hjá Stefáni sem mig grunar að hafi töluvert hærra kaup en formaður VR en hann er líka stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna sem ég hef líka komið inn á í mínum störfum fyrir VR að sé ekki gott því þar gætu orðið hagsmunaárekstrar á kostnað þeirra sem minna mega sín.“ Pistill Sólveigar Önnu: Tengdar fréttir Átök innan verkalýðshreyfingarinnar „Með fullt og óskorað umboð“ BSRB og SNS funda hjá ríkissáttasemjara Stjórnvöld dýpki verðbólguna Verkfallsaðgerðir árið 2023 fjarstæðukenndar Átökin bitna einungis á hinum almenna félagsmanni » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fólk þurfi að vera hrætt Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Óheppni Orra kom ekki að sök í úrslitaleiknum Getur ekki beðið um meira Fór á pennann, léttist um 40 kíló og er komin með kaupfíkn Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum 300 ferðir á spítalann Málið komið fram á fölskum forsendum Olíuverð hríðfellur Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Báru særðan mann yfir úfið hraun Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Fólk þurfi að vera hrætt Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Óheppni Orra kom ekki að sök í úrslitaleiknum Getur ekki beðið um meira Fór á pennann, léttist um 40 kíló og er komin með kaupfíkn Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við eigum hérna frábært hús á frábærum stað og sagan er djúp“ Uppgangur samfélags í þjóðbraut „Erum ennþá í pólitík,“ segir Kristrún Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Báru særðan mann yfir úfið hraun Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article