Innlent | mbl | 21.4.2026 | 16:23 Líður eins og Sólveig sé pólitískur eltihrellir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Átök innan verkalýðshreyfingarinnar „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ Fólk þurfi að vera hrætt „Með fullt og óskorað umboð“ BSRB og SNS funda hjá ríkissáttasemjara Stjórnvöld dýpki verðbólguna » Fleiri tengdar fréttir Höllu Gunnarsdóttur, formanni VR, segist stundum líða eins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sé pólitískur eltihrellir hennar. Hún segist ekki hafa tölu á þeim Facebook-færslum og fjölmiðlaviðtölum Sólveigar þar sem hún fjallar um Höllu. „Hún hefur skammast yfir því hvað ég segi, yfir því hvað ég segi ekki, yfir því hvað hún segir að ég hafi einhvern tímann sagt (og það er iðulega farið ranglega með) og yfir þeim sjónarmiðum, jafnvel hvötum, sem hún gerir mér upp,“ skrifar Halla í færslu á Facebook þar sem hún svarar færslu Sólveigar um launahækkun þeirrar fyrrnefndu. Greint var frá því nýlega að heildarlaun Höllu hefðu verið hækkuð um tæpar 200 þúsund krónur eftir að tillaga launanefndar félagsins var samþykkt af stjórn. Halla segir að í grunninn vilji Sólveig ekki að hún tjái sig um mál félagsfólks verkalýðshreyfingarinnar. „Eitt skýrasta dæmið um þetta eru ítrekaðar athugasemdir hennar við að ég hafi nálgast umræðu um þjónustuskerðingar og gjaldskrárhækkanir á leikskólum út frá vinnandi foreldrum, sem eru félagsfólk í VR, en ekki út frá þeim hluta félagsfólks Eflingar sem starfar á leikskóla og er samþykkt nálgun formannsins í málaflokknum.“ Frétt af mbl.is Fólk þurfi að vera hrætt Launin enn lægri „Mér líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli. Ef ég tjái mig er líklegt að næsta frétt á eftir verði upp úr einhverjum Facebook-orðaflaumi Sólveigar Önnu. Ég hef almennt haft þá afstöðu að svara ekki,“ skrifar Halla og bætir við að það séu takmörk fyrir hversu „mikið þvaður“ sé hægt að láta viðgangast án þess að svara. „Um launamál í VR er það að segja að launanefnd og stjórn VR hafa verið að koma á gagnsæi er varðar heildarkjör formanns félagsins. Þau voru ógagnsæ og óþarfur hvati til að gegna mörgum embættum, óháð því hvað þjónar hagsmunum félagsins best hverju sinni. Eftir ákvörðun stjórnar, sem ég hafði eðlilega ekki aðkomu að, eru heildarlaun fyrir störf formanns VR 1.913.000, en voru áður 1.724.064,“ skrifar Halla. Bætir hún við að laun hennar núna séu lægri en forvera hennar, Ragnars Þórs Ingólfssonar ráðherra, þar sem heildarlaun hans væru í dag rúmar 2,1 milljón. Frétt af mbl.is Halla enn á lægri launum en Ragnar Hafi ekkert með Eflingu að gera Halla segir að hvort launagreiðslur gangi til VR eða komi til frádráttar á launum hennar sé útfærsluatriði sem hafi ekkert með Eflingu eða Sólveigu Önnu að gera. Þá hafi það heldur ekki áhrif á Alþýðusamband Íslands, þvert á það sem Sólveig Anna hefur haldið fram. „Þetta á við um þau laun sem ég hef fengið fyrir að gegna embætti varaforseta ASÍ, en það gerum við báðar. Í starfinu felst að sitja tvo fundi í mánuði á hefðbundnum vinnutíma og þeir taka að jafnaði á milli 15 og 45 mínútur. Fyrir það fáum við varaforsetar 243.900 kr. á mánuði sem er nú hluti af heildarkjörum mínum fyrir að gegna formennsku í VR,“ segir Halla, Hún segir störf forystufólks í stéttarfélögum hápólitískt mál og því verði að vera gagnsæi um kjörin. Hún segir laun formanns VR ekki leyndarmál, þau séu birt í ársskýrslu félagsins ólíkt fyrirkomulaginu hjá Eflingu. „Þessi umræða af hálfu formanns Eflingar snýst hins vegar ekki um ákvarðanir stjórnar VR heldur persónulega herferð hennar gegn félaginu og mér sem persónu. Rætur þessarar þráhyggju liggja í því að hún hefur viljað að önnur félög innan ASÍ setji hagsmuni síns eigin félagsfólks til hliðar og heyi heldur kjarabaráttu á forsendum sem þóknast hagsmunum Sólveigar Önnu.“ Að lokum segist Halla aldrei ætla að láta upphlaup Sólveigar og afskipti hennar af málefnum VR hafa áhrif á störf hennar fyrir félagið. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. mbl.is/Kristinn Magnússon Halla segir ekkert vera á milli sín og Sólveigar. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Kristinn Magnússon Tengdar fréttir Átök innan verkalýðshreyfingarinnar „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ Fólk þurfi að vera hrætt „Með fullt og óskorað umboð“ BSRB og SNS funda hjá ríkissáttasemjara Stjórnvöld dýpki verðbólguna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lygilegur leikur Reynis – skoraði 21 mark Líður eins og Sólveig sé pólitískur eltihrellir 20 milljarða arður til ríkissjóðs Þremenningarnir áfram í haldi Fengu frí fyrir Liverpool-leikinn Umræðan Homo Reykjavicus Líkami Krists Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ Hugrekkið kostaði hana lífið Óljósir samningar um aðlögun Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Ragnar vill breyta lögum „Öfgakennd forsjárhyggja“ Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Nýjast á mbl.is » Lygilegur leikur Reynis – skoraði 21 mark Líður eins og Sólveig sé pólitískur eltihrellir 20 milljarða arður til ríkissjóðs Þremenningarnir áfram í haldi Fengu frí fyrir Liverpool-leikinn Umræðan Homo Reykjavicus Líkami Krists Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ljúfsárt að kveðja þingið Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hugrekkið kostaði hana lífið Dónaskapur og ruddaleg framkoma ógn við lýðræðið Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Ragnar vill breyta lögum „Öfgakennd forsjárhyggja“ Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils