Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.4.2026 | 23:04 Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ „Ég segi fyrir mína parta að ég get bókstaflega ekki beðið eftir því að sýningin hefjist.“ Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Tengdar fréttir Átök innan verkalýðshreyfingarinnar Líður eins og Sólveig sé pólitískur eltihrellir „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ Fólk þurfi að vera hrætt „Með fullt og óskorað umboð“ BSRB og SNS funda hjá ríkissáttasemjara » Fleiri tengdar fréttir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar telur Höllu Gunnarsdóttur formann VR misskilja hvað felist í starfi varaforseta Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Orð hennar skiljist sem svo að henni þyki starfið ómerkilegt og gagnlaust. Sólveig segist hafa verið sökuð um ýmsa glæpi af Höllu og „vinkonum hennar“ en verst þykir henni að vera sögð stunda „karllæga átakasækni“. Halla og Sólveig hafa skipst á skotum á internetinu undanfarna daga eftir að sú síðarnefnda gagnrýndi launahækkun Höllu. Halla sagði í færslu í dag að sér liði stundum eins og hún væri með pólitískan eltihrelli og átti þar við Sólveigu Önnu. Frétt af mbl.is Líður eins og Sólveig sé pólitískur eltihrellir Ekkert komi lengur á óvart Í færslunni sagði Halla einnig að varaforsetar ASÍ hefðu ekkert lagalegt hlutverk innan sambandsins annað en að gegna starfi forseta ef hann forfallast. Sólveig hefur svarað þeim skrifum með Facebook-færslu þar sem hún segir ekki hægt að skilja þessi orð öðruvísi en svo að Höllu finnist embættið „nauðaómerkilegt og algjörlega gagnslaust“. Í kjölfarið fer hún yfir hvaða verkefnum varaforsetar sinna. Þeir séu hluti af miðstjórn ASÍ sem hafi samkvæmt lögum æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. „Ég vildi að ég gæti sagst verið sjokkeruð yfir þeirri sýn sem formaður VR hefur á embætti varaforseta ASÍ, svo yfirborðskennd sem hún er, og í raun skaðleg þeirri tilraun að viðhafa lýðræði á vettvangi sambandsins – en eftir að hafa dvalið eins lengi og ég hef gert á vettvangi hreyfingarinnar verð ég að viðurkenna að eiginlega ekkert sjokkerar mig lengur,“ skrifar Sólveig. Frétt af mbl.is Fólk þurfi að vera hrætt Frétt af mbl.is Halla enn á lægri launum en Ragnar Forseti Alþingis lækar færsluna Sólveig rifjar upp að síðasta sumar hafi Halla gagnrýnt 5,6% launahækkun þingmanna. Greint var frá því í síðustu viku að laun Höllu hefðu hækkað um tæplega 200 þúsund krónur. Sólveig segist sammála gagnrýni Höllu á launahækkanir þingmanna en segir þau orð greinilega ekki eiga við um þá sem létu ummælin falla. „Halla Gunnarsdóttir vill auðvitað verja eigin launahækkun. Hún nýtur líka mikils stuðnings fjölbreytts hóps í málinu – Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis lækar færsluna hennar um hvað ég sé agalega vond með sætum knúskalli,“ skrifar Sólveig. Hún segist hlakka til næsta hausts þegar hún og Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, geti hallað sér aftur eftir að forsendur kjarasamninga hafa brostið og samningaviðræður við Samtök atvinnulífsins hefjist. „ Þá hlýtur það að gerast að forysta VR sæki fram af miklum krafti, með djarfa kröfugerð um allavega 12% hækkun launa og mögulega miklu, miklu meira en það. Fregnin af rausnarlegri launahækkun formanns VR er einfaldlega fyrsti herlúðrablásturinn, kannski ekkert sérstaklega ómþýður en óumdeilanlega mjög áhrifamikill – upptakturinn að því sem koma skal,“ skrifar Sólveig og bætir við: „Ég segi fyrir mína parta að ég get bókstaflega ekki beðið eftir því að sýningin hefjist.“ Tengdar fréttir Átök innan verkalýðshreyfingarinnar Líður eins og Sólveig sé pólitískur eltihrellir „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ Fólk þurfi að vera hrætt „Með fullt og óskorað umboð“ BSRB og SNS funda hjá ríkissáttasemjara » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Carlsberg tryggir sér samning við Pepsi Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Segir af sér í kjölfar fjölda brota Lést nokkrum dögum eftir að barnið kom í heiminn Umræðan Homo Reykjavicus Um samræmi í siðferðilegri afstöðu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi „Af hverju fólk festist í afbrotum“ „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Mest lesið Í gær Í vikunni Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Sérsveitin kölluð út á Akureyri Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Carlsberg tryggir sér samning við Pepsi Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Segir af sér í kjölfar fjölda brota Lést nokkrum dögum eftir að barnið kom í heiminn Umræðan Homo Reykjavicus Um samræmi í siðferðilegri afstöðu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Þórdís þakkaði fyrir sig Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás á Akureyri „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Sérsveitin kölluð út á Akureyri Guðmundur Ingi færir sig um set

Share this article