Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kirkjan verður af háum fjárhæðum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 19.4.2026 | 8:04 Kirkjan verður af háum fjárhæðum Guðrún Karls Helgudóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Þjóðkirkjan er afar ósátt við þetta, en ég vona innilega að þetta standi til bóta,“ segir Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands í samtali við Morgunblaðið. Sóknir landsins hafa orðið af miklum tekjum frá því að hið opinbera tók lögbundna vísitöluhækkun sóknargjaldsins úr sambandi. Frá árinu 2008 hefur upphæð sóknargjalda verið ákveðin föst tala af stjórnvöldum og þinginu og hefur það aldrei hækkað umfram verðlag. Nemur uppsöfnuð skerðing nú tæpum 3 milljörðum króna. Ljóst er að ófyrirsjáanleikinn og skerðingin hefur komið verulega niður á kirkjustarfi um land allt. Lek þök og kaldar kirkjur Nú er svo komið að kirkjur víða um land geta ekki sinnt eðlilegu viðhaldi vegna fjárskorts og hefur mikil viðhaldsskuld safnast upp. Árleg viðhaldsþörf fasteigna þjóðkirkjunnar er áætluð ríflega 2,2 milljarðar og er nú svo komið í einstaka kirkjum að þök þeirra eru lek og ekki til fjármunir til viðgerða. Þá eru dæmi um að ekki séu til fjármunir til að kynda kirkjurnar. Einnig eru þess dæmi að ekki sé hægt að halda guðsþjónustur þar sem ekki eru til peningar til að greiða laun organista. Sóknargjöld verði fest í sessi Guðrún bindur vonir við að farið verði að tillögum starfshóps sem dómsmálaráðherra skipaði á sínum tíma og hefur nú skilað af sér, en þar er m.a. lagt til að sóknargjöld verði fest í sessi og ekki verði hægt að hrófla við þeim, en þau hafa verið skert árlega með lögum frá Alþingi. Nái það fram að ganga þýði það meiri fyrirsjáanleika í kirkjustarfinu. Þá er einnig lagt til að settur verði á laggirnar sjóður sem friðaðar kirkjur geti sótt fjárstyrk í til viðhalds kirkjubygginganna. Verði það niðurstaðan, segir Guðrún að unnt verði að nýta fjármuni úr jöfnunarsjóði kirkjunnar til að hlaupa undir bagga við viðhald annarra kirkna. Hún segir að söfnuðir þjóðkirkjunnar eigi um helming friðaðra bygginga á Íslandi. Alls eru 215 kirkjur landsins friðaðar, en þar af eru 210 innan þjóðkirkjunnar. „Þetta er eini skatturinn sem fólk greiðir sem rennur beint til nærumhverfisins, til kirkjunnar í hverfinu þar sem fólkið býr. Sóknargjöldin fara ekki í að greiða laun presta, heldur til að halda kirkjubyggingum við og til að greiða organistum og öðru starfsfólki, kórstjórum og kirkjuvörðum,“ segir Guðrún. Aðspurð tekur Guðrún því ekki fjarri að til greina komi að krefjast þess að ríkið bæti sóknum landsins upp þessa skerðingu, a.m.k. að hluta, en nefnir að til greina komi af hálfu kirkjunnar að peningarnir renni inn í áðurnefndan sjóð sem lagt er til að stofnaður verði og kirkjan geti sótt í til viðhalds friðaðra kirkna. Fjölga skráningum Guðrún segir mjög mikilvægt að fjölga skráðum einstaklingum í þjóðkirkjunni, en vinna sem að því snýr sé farin að skila árangri. „Við erum líka farin að taka skráningarmál okkar fastari tökum og fylgjast betur með skráningum í þjóðkirkjuna en gert hefur verið,“ segir hún og nefnir að þess séu mörg dæmi að fólk haldi að það sé skráð í þjóðkirkjuna þótt svo sé ekki. Kirkjan hafi jafnan veitt öllum þjónustu en ekki fylgst nægilega vel með félagatalinu. Hún nefnir að sú kerfisbreyting hafi verið gerð árið 2013 að barn sé ekki lengur skráð í trúar- eða lífsskoðunarfélag, nema báðir foreldrarnir séu í sama félagi. Ef aðeins annað foreldrið sé í þjóðkirkjunni, þá stendur barnið utan trúfélaga. Áður var fyrirkomulagið þannig að barn var sjálfkrafa skráð í sama trú- eða lífsskoðunarfélag og móðir þess. Segir Guðrún að nú sé farið að bera á því að mun lægra hlutfall fermingarbarna sé skráð í þjóðkirkjuna en áður var. Skírn ekki sjálfkrafa skráning Sú fækkun sem orðið hefur í þjóðkirkjunni undanfarin ár skýrist af tvennu. Annars vegar vegna andláta, en einnig hefur talsverð fækkun orðið í hópi barna á aldrinum frá 0-16 ára. Börnin hafi aldrei verið skráð í þjóðkirkjuna, þrátt fyrir að þau hafi verið skírð. Guðrún segir kirkjuna hafa miklar áhyggjur af þessu. Skírn ætti almennt að vera skráning í kirkjuna, en svo sé ekki. „Ég hvet fólk til þess að kanna trúfélagaskráninguna sína. Við erum að vinna að því núna að prestar geti skráð börn í þjóðkirkjuna þegar þau hafa verið skírð. Við erum að vinna að þessu í samstarfi við Þjóðskrá,“ segir Guðrún. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Akureyringar lagfæra lýsinguna Pétur vill rauða dregilinn út Kirkjan verður af háum fjárhæðum Allt að 11 stiga hiti Íþróttaparið fræga í sitt hvora áttina Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Málið komið fram á fölskum forsendum Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ „Við eigum hérna frábært hús á frábærum stað og sagan er djúp“ Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Milljónir gengu út í kvöld Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Frjáls ferða sinna eftir árás á leigubílstjóra 300 ferðir á spítalann Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur X26: Ekki kosið í fjórum sveitarfélögum Halla enn á lægri launum en Ragnar Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað Nýjast á mbl.is » Akureyringar lagfæra lýsinguna Pétur vill rauða dregilinn út Kirkjan verður af háum fjárhæðum Allt að 11 stiga hiti Íþróttaparið fræga í sitt hvora áttina Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ 300 ferðir á spítalann Agabrot flugstjórans ólíðandi Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Milljónir gengu út í kvöld Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Frjáls ferða sinna eftir árás á leigubílstjóra 300 ferðir á spítalann Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur X26: Ekki kosið í fjórum sveitarfélögum Halla enn á lægri launum en Ragnar Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað

Share this article