Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óvenjulegt messuhald um helgina

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 8.5.2026 | 14:10 Óvenjulegt messuhald um helgina Leifur Ragnar sóknarprestur segir vel mætt í kirkjuna. mbl.is/Kristinn Magnússon Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki „Þetta snýst um að hafa gaman og koma boðskap kirkjunnar til sem flestra,“ segir séra Leifur Ragnar Jónsson, sóknarprestur í Guðríðarkirkju í Grafarholti, en á sunnudaginn kl. 11 verður Stjörnustríðsmessa í kirkjunni. „Hilmir Þór Kolbeins guðfræðingur hefur verið að aðstoða okkur í vetur, en hann skrifaði lokaritgerð sína í guðfræði um biblíuleg þemu í Stjörnustríðsmyndunum. Hann mun flytja hugleiðingu í messunni og félagar í búningafélaginu 501 mæta, en þeir eru hluti af alþjóðlegum samtökum sem koma fram í búningum úr Stjörnustríðsmyndunum.“ Tónlist úr Stjörnustríði verður spiluð og Arnhildur Valgarðsdóttir organisti leiðir tónlistina ásamt kór kirkjunnar. „Arnhildur ætlar að vera með hárkollu eins og Leia prinsessa í messunni og svo geta gestir fengið að taka af sér myndir með þeim sem eru uppáklæddir í Stjörnustríðsskrúða,“ segir Leifur Ragnar og segir strax komna mikla stemningu hjá sóknarbörnum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Guðríðarkirkja hefur verið með skemmtileg þemu í messum, en áður hefur hún t.d. verið með Abba-messu og Gunnars Þórðarsonar-messu. „Gunnar Þórðarson mætti í sína messu, sem var mjög skemmtilegt, og sóknarbörnin kunna virkilega vel að meta þetta og það er alltaf mjög vel mætt í kirkjuna okkar,“ segir Leifur Ragnar og bætir við að um daginn hafi Kór Fjölmenntar sungið við messu. „Það var yndisleg stund hjá okkur í kirkjunni,“ segir hann. „Við vonumst til að kærleikskrafturinn verði með okkur á sunnudaginn, því til þess er leikurinn gerður. Guð er alls staðar og við viljum að allir geti fundið sína fjöl í helgihaldinu.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þjálfarinn hættur á Skaganum Óvenjulegt messuhald um helgina Milli sopa: Samstarf Lavazza og Helenu Reynis Áfall rétt fyrir HM Sveinn tilnefndur fyrir tónlistina í Hildi Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Eru Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur ósammála um borgarlínu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif Myndir: Selkópur í fjöru á Akureyri „Afskaplega lítil“ hætta fyrir almenning Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna 85 þúsund fengu 250 milljarða Vegið að yfirbragði Grafarvogs Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » Þjálfarinn hættur á Skaganum Óvenjulegt messuhald um helgina Milli sopa: Samstarf Lavazza og Helenu Reynis Áfall rétt fyrir HM Sveinn tilnefndur fyrir tónlistina í Hildi Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Eru Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur ósammála um borgarlínu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Um 1.500 skip föst í Persaflóa Meira fjármagn myndi flýta Miklubrautargöngum Ársæll: „Ráðherrar hafa bara alræðisvald“ Íslenski skálinn tekur ekki þátt í verkfallinu Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna 85 þúsund fengu 250 milljarða Vegið að yfirbragði Grafarvogs Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka

Share this article