Innlent | Morgunblaðið | 11.5.2026 | 18:20 Mátturinn og dýrðin í fyrirrúmi Fjölmennt var í Stjörnustríðsmessunni. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Mátturinn var með kirkjugestum í Guðríðarkirkju í gær, en þá var haldin guðsþjónusta þar með „Stjörnustríðsþema“. Á meðal gesta var Svarthöfði sjálfur ásamt ýmsum keisaraliðum, og afhentu þeir gestum sálmabækur áður en athöfnin fór fram. Voru þar á ferðinni félagar í búningasamtökunum 501st Legion, sem gefa sig m.a. að góðgerðarmálum. Svarthöfði rétti kirkjugestum sálmabækur. mbl.is/Anton Brink Séra Leifur Ragnar Jónsson sóknarprestur leiddi hina helgu stund, en Hilmir Þór Kolbeins guðfræðingur flutti hugleiðingu, þar sem boðskapur Stjörnustríðsmyndanna var tengdur við kristni. Sr. Leifur segir í samtali við Morgunblaðið að þetta hafi verið vel heppnuð stund og að hátt í annað hundrað manns hafi sótt guðsþjónustuna. Séra Leifur Ragnar Jónsson stýrði athöfninni. mbl.is/Anton Brink Hann bætir við að ýmsar tengingar séu á milli boðskapar Stjörnustríðsmyndanna um baráttu góðs og ills og kristni sem vert sé að íhuga nánar, en Hilmir Þór ritaði m.a. lokaritgerð í guðfræði um þessar tengingar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem farið er óvenjulegar leiðir við messuhald í Guðríðarkirkju, en áður hafa verið t.d. ABBA-messur, sem og messur sem tileinkaðar eru tónskáldunum Gunnari Þórðarsyni og Magnúsi Eiríkssyni, svo dæmi séu nefnd. „Við erum alltaf að leita að nýjum tækifærum til að höfða til fólks og miðla til þess fagnaðarerindinu,“ segir séra Leifur. Lífverðir keisarans létu sig ekki vanta. mbl.is/Anton Brink Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mátturinn og dýrðin í fyrirrúmi Breiðablik - Valur, staðan er 1:2 Njarðvík – Haukar kl. 19.15, bein lýsing Leitar inn á við eftir ölvunarakstur Tottenham – Leeds kl. 19, bein lýsing Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Viðurkennum vandann Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Rúmeninn keypti bíl og stakk af með Norrænu X26: Samhljómur um frekari vöxt Fleiri smitaðir af hantaveirunni Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Jörð skelfur við Ok Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Sjö sóttu um embætti skólameistara Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Mátturinn og dýrðin í fyrirrúmi Breiðablik - Valur, staðan er 1:2 Njarðvík – Haukar kl. 19.15, bein lýsing Leitar inn á við eftir ölvunarakstur Tottenham – Leeds kl. 19, bein lýsing Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Viðurkennum vandann Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Margt bendir til óformlegra verkfallsaðgerða Þungt högg og fjárfestingar í hættu Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Jörð skelfur við Ok Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Jörð skelfur við Ok Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Sjö sóttu um embætti skólameistara Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið