Innlent | mbl | 19.4.2026 | 15:45 Sérstakt að tala um krónur og aura þegar líf barna eru að veði Berglind Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Foreldrahúss, segir mennta- og barnamálaráðherra ekki hafa haft áhuga á því að funda með forsvarsmönnum úrræðisins. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Karítas Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar » Fleiri tengdar fréttir Foreldrahús mun að öllu óbreyttu loka dyrum sínum þann 1. maí vegna fjármagnsskorts eftir að hafa veitt foreldrum barna sem glíma við vímuefnavanda aðstoð í hartnær fjörutíu ár. Framkvæmdastjóri hússins segir það sérstakt að í landslagi stútfullu af vímuefnum og fíknivanda barna þurfi Foreldrahús, sem er eina úrræði sinnar tegundar, að rökstyðja tilvist sína fyrir mennta- og barnamálayfirvöldum sem ákváðu að verða ekki við síðustu styrkjarbeiðni Foreldrahúss. „Þetta er raunverulegur vandi og það þarf að styrkja þetta úrræði ef við eigum að vera til,“ segir Berglind Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Foreldrahúss, í samtali við mbl.is. „En við erum að loka og mennta- og barnamálaráðherra hefur ekki haft neinn áhuga á samtali.“ Foreldrar sem þegið hafa aðstoð Foreldrahúss hafa komið á undirskriftarlista til þess að krefjast þess að stjórnvöld styðji áfram við bakið á starfseminni sem nálgast má hér . Frétt af mbl.is Fleiri börn og meiri neysla: Tólf ára jafnvel í vanda Eina úrræðið fyrir foreldra með börnum Foreldrahús hefur boðið foreldrum barna sem eiga við vímuefnavanda að stríða upp á aðstoð um fjörutíu ára skeið, og hefur starfsemin reitt sig á fjárhagsstuðning fyrirtækja, einstaklinga og ríkisins til þess að standa við reksturinn. Fjárframlög ríkisins hafa hins vegar lækkað milli ára, nú síðast um meira en helming úr 30 milljónum niður í tólf, og segir Berglind að mennta- og barnamálaráðherra hafi ekki haft áhuga á því að funda með forsvarsmönnum Foreldrahúss. „Við erum eina úrræðið sem er að taka á móti foreldrum með börnum, og það er mjög sérstakt ef að við þurfum að rökstyðja það að við séum til í stað þess að tala um vandann sem við erum að berjast gegn.“ Foreldrahús þjónustaði um 600 börn og yfir 1200 foreldra í fyrra, auk þess sem um 300 foreldrar þáðu aðstoð í gegnum hjálparsímann sem er opinn allan sólarhringinn. Frétt af mbl.is Skýr merki um að neysla hefur aukist Hefðu getað eflt starfsemi sína með auknu fjármagni Í samtali við Ríkisútvarpið í morgun bar Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, það fyrir sig að Foreldrahús hefðu sótt um meira fé en þurfti til rekstursins, og að því hefði beiðninni verið hafnað. Ekki standi til að endurskoða fjárveitingar til Foreldrahúss þrátt fyrir að til standi að húsinu verði lokað innan tveggja vikna vegna fjárskorts. „Auðvitað sækjum við um það fé sem við teljum okkur þurfa til rekstrarins og höfum sótt um alls konar fjárhæðir til hennar í gegnum tíðina. En það virðist enginn áhugi vera fyrir því að tala við okkur í rauninni,“ segir Berglind. Ráðherra segir það hafa komið á óvart að umsókn Foreldrahúss hafi hljóðað upp á 100 milljónir króna þegar gefið hafi verið út að reksturinn kostaði 60 milljónir króna. Berglind segir að með auknu fjármagni hefðu Foreldrahús getað aukið við starfsemi sína og eflt forvarnastarf sitt, svo og að það sé ekki alltaf búist við því að hægt sé að verða við fullri upphæð styrkjarbeiðna. „Við þurfum að efla forvarnir, við þurfum að efla allt sem við getum í þessu landslagi sem er svona stútfullt af vímuefnum.“ Frétt af mbl.is Svona á að styrkja þjónustu við börnin Sérstakt í ljósi umræðu um snemmtæk úrræði Í ljósi þess neyðarástands sem ríkir vegna vímuefnafaraldurs hér á landi, sem og umræðu um mikilvægi snemmtækra úrræða þegar kemur að fíknivanda barna, segir Berglind sér finnast það sérstakt að Foreldrahús fái ekki þann stuðning sem til þurfi til þess að það geti haldið áfram starfsemi. „Það er svo sérstakt, að við ætlum að fara að tala um krónur og aura í þessu samhengi. Okkur vantar stuðning ríkisins, hvort sem það eru 60 milljónir eða 100 milljónir á ári í stað þess að efla forvarnir og efla allt sem við getum í þessu landslagi sem er bara stútfullt af vímuefnum,“ segir hún. Frétt af mbl.is 14 ára „að éta xanax og oxy“ Brýtur í bága við farsældarlög Berglind segir það samfélagslega ábyrgð stjórnvalda að standa vörð um svona úrræði, enda sé engin sambærileg úrræði að finna hjá ríkinu eða annars staðar. „Þess vegna er staðan ennþá sorglegri, í rauninni. Samkvæmt farsældarlögunum verður að vera til úrræði fyrir foreldra til að fá þá aðstoð sem þeir þurfa, og það er verið að skerða það.“ Þá séu aðgerðirnar sannarlega ekki í takt við áætlanir ríkisstjórnarinnar um að grípa fyrr inn í vímuvanda barna. „Þetta er allt svo öfugsnúið. En þetta er bara svona, því miður.“ Frétt af mbl.is „Þessi börn eru í lífshættu“ Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þrír háskólanemar særðir eftir skotárás Man. City - Arsenal, staðan er 1:1 Two arrested with over 30 Kilos of amphetamine Óttar skoraði Sérstakt að tala um krónur og aura Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veruleg skerðing á bílastæðum Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna „Erum ennþá í pólitík,“ segir Kristrún Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Pétur vill rauða dregilinn út Kirkjan verður af háum fjárhæðum Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki Milljónir gengu út í kvöld Kíkti í dagbækur vinkvennanna „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað Nýjast á mbl.is » Þrír háskólanemar særðir eftir skotárás Man. City - Arsenal, staðan er 1:1 Two arrested with over 30 Kilos of amphetamine Óttar skoraði Sérstakt að tala um krónur og aura Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við eigum hérna frábært hús á frábærum stað og sagan er djúp“ Veruleg skerðing á bílastæðum Jón komst í gegn en Trump ekki Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Pétur vill rauða dregilinn út Kirkjan verður af háum fjárhæðum Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki Milljónir gengu út í kvöld Kíkti í dagbækur vinkvennanna „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað