Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fást hvorki svör né samtal vegna Foreldrahúss

Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.4.2026 | 21:37 Fást hvorki svör né samtal vegna Foreldrahúss Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það fyrir neðan allar hellur að ríkisstjórnin virðist ekki einu sinni hafa áhuga á því að ræða málin við framkvæmdastjórn Foreldrahúss. mbl.is/Karítas Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Börnin vilja vinna meira með fíknivanda sinn Sérstakt að tala um krónur og aura Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt » Fleiri tengdar fréttir Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir það fyrir neðan allar hellur að ríkisstjórnin hyggist ekki verða við beiðnum ráðgjafamiðstöðvarinnar Foreldrahúss um það fjármagn sem stofnunin þarf til reksturs og virðist ekki einu sinni hafa áhuga á því að ræða málin við framkvæmdastjórn stofnunarinnar. „Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur, að það sé verið að leggja niður fjörutíu ára gömul samtök sem hafa hjálpað þúsundum ólögráða barna og ungmenna í fíkniefnavanda í þessum málum og að það fáist hvorki svör né samtal við ráðuneytið,“ segir hann í samtali við mbl.is. Jens Garðar beindi óundirbúinni fyrirspurn um lokun Foreldrahúss til Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og spurði hana þar hvort réttlætanlegt væri að skerða framlög til hússins um þrjátíu milljónir og verða þar með til þess að stofnunin mun loka 1. maí. Frétt af mbl.is Sérstakt að tala um krónur og aura Þrjátíu milljóna króna skerðing Málaflokkurinn heyrir undir mennta- og barnamálaráðuneytið, en þar sem Inga Sæland sat ekki fyrir svörum á þingfundi gærdagsins í óundirbúnum fyrirspurnartíma beindi Jens Garðar fyrirspurn sinni til Ölmu, enda varðar vímuefnavandi ungmenna á Íslandi heilbrigðismál. Hann benti þar meðal annars á að 1.213 foreldrar og 586 ólögráða einstaklingar hafi fengið þjónustu hjá Foreldrahúsi á síðasta ári auk þess sem stofnunin hafi tekið á móti á fjórða hundraði símtala eftir þjónustutíma. Hann benti jafnframt á að ef að úrræði eins og Foreldrahús loki muni úrræðin og þessir einstaklingar að mörgu leyti lenda á könnu heilbrigðisráðherra. „ Því langar mig að spyrja hæstvirtan heilbrigðisráðherra: Er réttlætanlegt að skerða framlög til Foreldrahúss um 30 millj. kr. og verða til þess að stofnunin lokar núna 1. maí?“ Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/María Þótti svörin rýr Svör ráðherra þótti honum heldur rýr, en Alma benti meðal annars á að Foreldrahús rukkuðu um 20.000 króna gjald á tímann fyrir þjónustu samkvæmt heimasíðu þess, og að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hafi gert úttekt á Foreldrahúsi árið 2024 og bent á ýmislegt sem þyrfti að laga, en hún hafi sjálf ekki fylgt málinu eftir. Hún bar það að öðru leyti fyrir sig að málið væri ekki á hennar könnu, en sagðist þó mundu ræða málið við barnamálaráðherra þegar hún fengi færi á. Alma Möller heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Gagnrýnir þögn þingmanna Viðreisnar Jens Garðar gerir sérstaklega athugasemd við þögn þingmanna Viðreisnar í málinu, en þeir hafa fram að þessu verið „Mér finnst ekki fara saman hljóð og mynd, sérstaklega hjá þingmönnum Viðreisnar sem tala hástöfum um þennan málaflokk, fíknivanda ungs fólks, en síðan þegar verið er að taka eitt slíkt úrræði og leggja það af heyrist ekki múkk,“ segir hann. „Það næst ekki í stjórnvöld og þau sinna þessu ekki.“ Frétt af mbl.is „Þessi börn eru í lífshættu“ Úrræðinu lokað en ekkert tekur við Jens Garðar segir það alvarlegasta í málinu vera það að verið sé að loka úrræðinu án þess að neitt komi í staðinn, og segir það vel geta staðist að aðgerðir ráðherra í þessum efnum standist ekki farsældarlögin sem kveða á um að það verði að vera til úrræði fyrir foreldra til að fá þá aðstoð sem þeir þurfa. „Það sem er líka alvarlegast í málinu er að það er verið að loka þessu úrræði, en það er ekkert sem tekur við. Þetta er einfaldlega til skammar,“ segir hann. Foreldrahús sé þar að auki sjálfseignarstofnun sem sinni starfinu á miklu hagkvæmari hátt en ríkinu væri fært. Foreldrar sem þegið hafa aðstoð Foreldrahúss hafa komið á undirskriftarlista til þess að krefjast þess að stjórnvöld styðji áfram við bakið á starfseminni sem nálgast má hér . Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Börnin vilja vinna meira með fíknivanda sinn Sérstakt að tala um krónur og aura Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Undirbúningur að alþingishátíð hafinn Segir vopnahléið framlengt um þrjár vikur Björn drap konu í Póllandi Gönguvæna borgin í samráðsgáttina Hann er vél! Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Hvað vildu þeir til Mexíkó? Minntist ekki á varanlegar undanþágur Mest lesið Í gær Í vikunni Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Undirbúningur að alþingishátíð hafinn Segir vopnahléið framlengt um þrjár vikur Björn drap konu í Póllandi Gönguvæna borgin í samráðsgáttina Hann er vél! Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja bjóða fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum Heimsókn konungsins muni endurreisa sambandið Börnin vilja vinna meira með fíknivanda sinn Hvað vildu þeir til Mexíkó? Mest lesið Í gær Í vikunni Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum

Share this article