Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ágúst vann fimmfalt og Thelma tvöfalt

Read Full Article →

Íslandsmótinu í áhaldafimleikum lauk í dag með keppni á stökum áhöldum. Ágúst Ingi Davíðsson bar af í karlaflokki og vann fimm af sex áhöldum, auk þess að taka brons í því sjötta. Thelma Aðalsteinsdóttir vann tvö áhöld af fjórum í kvennaflokki. Thelma vann keppni á slá og gólfi. Í gær urðu þau Ágúst og Thelma Íslandsmeistarar í fjölþraut. Auður Anna Þorbjarnardóttir úr Stjörnunni vann keppni í stökki og Lilja Katrín Gunnarsdóttir úr Gerplu vann tvíslá. Lilja varð í öðru sæti í fjölþraut í gær. Hér má sjá helstu tilþrif dagsins auk viðtala. Ágúst Ingi Davíðsson varð í dag fimmfaldur Íslandsmeistari í áhaldafimleikum og Thelma Aðalsteinsdóttir vann tvær greinar. Keppt var á stökum áhöldum í dag. Efstu þrjár í kvennaflokki Gerplukonur unnu þrjú áhöld og áttu flest sæti á palli. Auður Anna og Rakel Sara úr Stjörnunni tóku gull og silfur í stökki. Þá var Sigurrós Ásta Þórisdóttir í þriðja sæti á gólfi. Minnstur var munurinn á tvíslá þar sem aðeins munaði 0,033 stigum á Lilju Katrínu og Thelmu. Þá náði Agnes Suto bronsi og sýndi þar í hvað henni býr. Stökk Auður Anna Þorbjarnardóttir, Stjarnan – 12.066 stig Sigurrós Ásta Þórisdóttir, Gerpla – 11.933 stig Rakel Sara Pétursdóttir, Stjarnan – 11.900 stig Tvíslá Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Gerpla – 12.033 stig Thelma Aðalsteinsdóttir, Gerpla – 12.000 stig Agnes Suto, Gerpla – 10.933 stig Jafnvægisslá Thelma Aðalsteinsdóttir, Gerpla – 12.366 stig Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Gerpla – 12.200 stig Rakel Sara Pétursdóttir, Gerpla – 11.766 stig Gólf Thelma Aðalsteinsdóttir, Gerpla – 12.333 stig Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Gerpla – 11.766 stig Sigurrós Ásta Þórisdóttir, Stjarnan – 11.666 stig Öll úrslit dagsins í kvennaflokki Efstu þrír í karlaflokki Ágúst Ingi vann allar greinar nema hestinn. Í stökki vann Sigurður Ari Stefánsson sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á stöku áhaldi í fullorðinsflokki. Hann og Ágúst enduðu jafnir og fengu báðir gull. Dagur Kári Ólafsson keppti einungis á hesti eftir meiðsli á tvíslá í gær. Hann stóð uppi sem sigurvegari en er meiddur á öxl. Gerpla átti alla sigurvegara dagsins en Jón Sigurður Gunnarsson úr Ármanni vann silfur í hringjum. Jón féll í afstökki sínu í lokin eftir ágætis æfingu. Þá náði Lúkas Ari Ragnarsson úr Björk á pall í tveimur greinum. Gólf Ágúst Ingi Davíðsson, Gerpla – 13.450 stig Martin Guðmundsson, Gerpla – 12.700 stig Jónas Ingi Þórisson, Gerpla – 12.650 stig Hestur Dagur Kári Ólafsson, Gerpla – 12.250 stig Sigurður Ari Stefánsson, Gerpla – 11.800 stig Ágúst Ingi Davíðsson, Gerpla – 11.350 stig Hringar Ágúst Ingi Davíðsson, Gerpla – 12.900 stig Jón Sigurður Gunnarsson, Ármann – 12.200 stig Martin Guðmundsson, Gerpla – 12.150 stig Stökk Deildu fyrsta sæti: Sigurður Ari Stefánsson – 12.650 stig og Ágúst Ingi Davíðsson – 12.650 stig Þriðja sæti. Atli Snær Valgeirsson – 12.475 stig Tvíslá Ágúst Ingi Davíðsson, Gerpla – 12.950 stig Atli Snær Valgeirsson, Gerpla – 12.850 stig Lúkas Ari Ragnarsson, Björk – 12.550 stig Slá Ágúst Ingi Davíðsson, Gerpla – 12.950 stig Atli Snær Valgeirsson, Gerpla – 12.900 stig Lúkas Ari Ragnarsson, Björk – 11.400 stig Öll úrslit dagsins í karlaflokki. Útsending dagsins Hér má sjá útsendingu dagsins. Ágúst Ingi Davíðsson varð í dag fimmfaldur Íslandsmeistari í áhaldafimleikum og Thelma Aðalsteinsdóttir vann tvær greinar. Keppt var á stökum áhöldum í dag.

Share this article