Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Thelma og Ágúst Íslandsmeistarar í fjölþraut

Read Full Article →

Þau Thelma Aðalsteinsdóttir og Ágúst Ingi Davíðsson eru Íslandsmeistarar í fjölþraut í áhaldafimleikum 2026. Bæði eru þau úr Gerplu. Gerpla átti efstu þrjú sætin í bæði karla- og kvennaflokki. Þetta er fimmta árið í röð sem Thelma verður Íslandsmeistari en sigurganga hennar hófst árið 2022. Thelma var 1,134 stigi á undan Lilju Katrínu Gunnarsdóttur. Ágúst Ingi var að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í fjölþraut. Hér má sjá helstu tilþrif dagsins og viðtöl við sigurvegarana tvo. Gerplufólkið Thelma Aðalsteinsdóttir og Ágúst Ingi Davíðsson eru Íslandsmeistarar í fjölþraut í áhaldafimleikum. Thelma vann fimmta árið í röð en þetta er fyrsti titill Ágústar í fjölþraut. Efstu þrjár í kvennaflokki Thelma Aðalsteinsdóttir Stig Thelmu: Stökk: 12,7. Tvíslá: 12,266. Jafnvægisslá: 12,7. Gólf: 12,266 2. Lilja Katrín Gunnarsdóttir 3. Kristjana Ósk Ólafsdóttir Efstu þrír í karlaflokki Ágúst Ingi Davíðsson Stig Ágústar: Gólfæfingar: 13,3. Hestur: 13,5. Hringar: 11,4. Stökk: 13,7. Tvíslá: 12,9. Slá: 12,9 2. Martin Guðmundsson 3. Atli Snær Valgeirsson Öll úrslitin má sjá hér. /m

Share this article