Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Frá fjölmiðlum til fjármálageirans

Read Full Article →

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) réðu Véstein Örn Pétursson sem sérfræðing í samskiptum og lögfræðilegum verkefnum síðasta nóvember en hann starfaði áður hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Hann hóf störf sem fréttamaður árið 2018 og sinnti meðal fréttaflutningi á vef, í útvarpi og í sjónvarpi. Vésteinn starfaði einnig sem ritstjóri Stúdentablaðsins í Háskóla Íslands veturinn 2024 til 2025 á meðan hann var í meistaranámi í lögfræði. „Ég var búinn að ákveða það frekar ungur að ég ætlaði alls ekki í lögfræðina. Pabbi er lögfræðingur og ég hélt alltaf að það virkaði mjög leiðinlegt. Eftir Versló byrjaði ég í sagnfræði en gafst upp á því og á endanum þurfti ég að játa mig sigraðan og fór í lögfræðina.“ Nánar er fjallað um Véstein í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article