Tveir nýir starfsmenn hafa hafið störf hjá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) en það eru þeir Bjartur Elíasson og Vésteinn Örn Pétursson. Bjartur starfar sem lögfræðingur hjá samtökunum og Vésteinn sem sérfræðingur í samskiptum og lögfræðilegum verkefnum. Bjartur kemur til SFF frá lögmannsstofunni BBA//Fjeldco, en hann hafði áður starfað hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur og í lögfræðiteymi alþjóðlega netöryggisfyrirtækisins WithSecure. Hann er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Vésteinn starfaði áður hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, síðar fréttastofu Sýnar, og hafði gert frá árinu 2018 og sinnti þar fréttaflutningi á vef, í útvarpi og í sjónvarpi. Hann starfaði einnig sem ritstjóri Stúdentablaðsins í Háskóla Íslands veturinn 2024 til 2025. Vésteinn er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands.