Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Úthluta 12 mánaða gömlum börnum leikskólaplássi í haust

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 13 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Út­hluta 12 mánaða gömlum börnum leik­skóla­plássi í haust Brynjólfur Þór Guðmundsson Tólf mánaða gömul börn fá í fyrsta skipti leikskólapláss í Kópavogi í haust, samkvæmt tilkynningu frá bænum í dag. Þar segir að öllum börnum sem fædd eru í ágúst 2025 eða fyrr hafi verið boðið leikskólapláss frá og með haustinu. Yngstu börnin verða því tólf mánaða gömul þegar aðlögun hefst í leikskólum bæjarins eftir sumarfrí. Barn með bók í leikskóla. RÚV / Bragi Valgeirsson Fyrir 26 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Sekt­að­ur fyrir hat­urs­orð­ræðu Karlmaður sem sagði að endurvekja þyrfti þýsku sturturnar og kvað Grikki kunna að berja hælisleitendur til hlýðni var sakfelldur fyrir hatursorðræðu. Fyrir 55 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Líforku­ver hvorki ábata­samt né fljót­legt – Vilja byrja sem fyrst að brenna hræin Í minnisblaði til atvinnuvegaráðherra segir að líforkuver sem til stóð að byggja í Dysnesi við Eyjafjörð sé ekki æskilegasta lausnin til að farga dýraleifum, eins og fyrri ríkisstjórn lagði upp með. Óvissa hafi verið um ýmsan kostnað verkefnisins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Ró­leg­heita­veð­ur og létt­skýj­að Allt að fjórtán stiga hiti verður í rólegheitaveðri í dag. Áfram verður milt næstu daga. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Orri í afar fá­menn­an hóp Ís­lend­inga Orri Steinn Óskarsson varð bikarmeistari í fótbolta á Spáni með liði sínu Real Sociedad í gærkvöld. Þar með komst hann í fámennan hóp íslenskar fótboltamanna sem hafa unnið bikarkeppni í landi sem telst ein af toppþjóðum Evrópufótboltans. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bretland Þing­menn þjarma að Starm­er í dag Forsætisráðherra Bretlands hyggst í dag reyna að sannfæra þingið um að hann vissi ekkert um að Peter Mandelson, góðvinur Jeffreys Epstein, stóðst ekki öryggiskröfur áður en hann var skipaður sendiherra í Bandaríkjunum. Búast má við hörkusnerrum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Ís­lenski geita­stofn­inn enn í út­rým­ing­ar­hættu Íslenski geitastofninn er enn í útrýmingarhættu þrátt fyrir fjölgun. Hákon Bjarki Harðarson, formaður deildar geitfjárbænda hjá Bændasamtökunum, telur þörf á frekari fjárstuðningi þess að styðja við stéttina. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Perú Þús­und­ir mót­mæltu töfum á taln­ingu at­kvæða í for­seta­kosn­ing­um Nokkur þúsund þyrptust út á götur perúsku höfuðborgarinnar Líma í gær og kröfðust þess að atkvæði í forsetakosningum um síðustu helgi yrðu talin umsvifalaust. Einn frambjóðandi sakar kjörstjórn um svindl og hefur krafist ógildingar kosninganna. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Stjórn­völd í Michig­an vilja ekki af­henda kjör­gögn vegna for­seta­kosn­ing­anna 2024 Markús Þ. Þórhallsson Stjórnvöld í Michigan hafa hafnað beiðni dómsmálaráðuneytisins um að afhenda kjörseðla úr forsetakosningunum 2024. Gretchen Whitmer ríkisstjóri í Michigan. EPA / WILL OLIVER Ríkisstjórinn og demókratinn Gretchen Whitmer, innanríkisráðherrann Jocelyn Benson og Dana Nessel, dómsmálaráðherra Michigan, segja í sameiginlegri yfirlýsingu kröfuna hvort tveggja tilhæfulausa og fáránlega. Þær segja að bréf ráðuneytisins hafi borist þar sem auk kjörseðla var farið fram á að fá umslög afhent auk skriflegrar staðfestingar fyrir hverju greiddu atkvæði. „Við erum tilbúnar að verja rétt almennings til leynilegra kosninga ætli alríkisstjórnin að færa þetta hringleikahús til Michigan,“ segir í yfirlýsingunni. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sameinuðu þjóðirnar Fjórir þaul­reynd­ir stjórn­mála­menn og dipl­óm­at­ar sækj­ast eftir emb­ætti að­al­fram­kvæmda­stjór­ans Tvær konur og tveir karlar sækjast eftir að taka við sem aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna um næstu áramót. Fulltrúar aðildarríkjanna spyrja þau spjörunum úr á morgun og miðvikudaginn. Úrslitavaldið liggur hjá fimm ríkjum með neitunarvald. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar segj­ast ekki ætla að mæta til frið­ar­við­ræðna Íranar segja óraunhæfar kröfur Bandaríkjanna verða til þess að sendinefnd þeirra mætir ekki til friðarviðræðna í Pakistan í dag. Bandaríkjaforseti segir sína sendinefnd þegar á leiðinni. Vopnahléi lýkur á miðvikudaginn. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Skipa­smíða­stöð í Turku nánast dælir út risa­f­ar­þega­skip­um Næststærsta farþegaskip heims er senn tilbúið og mun sigla um Miðjarðarhaf í sumar. Um það bil vikulöng reynslusigling hófst í gær. Finnsk skipasmíðastöð á heiðurinn af smíði skipsins og fleiri lúxusskipa í sama flokki. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Líbanon Hart verður brugð­ist við eyði­legg­ingu Krists­lík­neskis Markús Þ. Þórhallsson Ísraelskur hermaður í skriðdreka. Mynd úr safni. AP / ASSOCIATED PRESS Ísraelsher segir að hart verði brugðist við eftir að myndir birtust á samfélagsmiðlum sem sýna ísraelskan hermann eyðileggja líkneski af Jesú Kristi í borginni Deir Siryan í Suður-Líbanon. Í yfirlýsingu hersins á Telegram segir að athæfið brjóti gegn öllum gildum og sé nú til ítarlegrar rannsóknar. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ol­íu­verð hækk­aði þegar mark­að­ir voru opn­að­ir í Asíu Markús Þ. Þórhallsson Olíutankar í japönsku höfuðborginni Tókíó. EPA / FRANCK ROBICHON Verð á West Texas Intermediate hráolíu hækkaði um 7,5 prósent þegar Asíumarkaðir voru opnaðir upp í rúmlega 90 bandaríkjadali tunnan. Hækkunina má rekja til ásakana Írana um að Bandaríkin hafi rofið skilmála vopnahlés með árás á íranskt flutningaskip á Ómanflóa. Verðið á Brent-Norðursjávarolíu hækkaði minna eða um 6,5 prósent upp í 96,27 dali tunnan. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Búlgaría Flokka­banda­lag fyrr­ver­andi for­seta hlýtur meiri­hluta þing­sæta sam­kvæmt út­göngu­spám Útlit er fyrir að flokkabandalag fyrrverandi forseta Búlgaríu fái 44 af hundraði atkvæða í þingkosningum dagsins. Það fengi þá meirihluta þingsæta. Aðrir flokkar fá mun lægra hlutfall atkvæða. Forsetinn fyrrverandi hefur lýst yfir sigri. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær „Það má ekki keyra of hratt í sím­an­um“ Börnin á Ystakletti í Vestmannaeyjum gripu til sinna ráða þegar þau sáu að ekki fóru allir ökumenn eftir umferðarreglunum og sendu lögreglunni bréf. Lögreglan vonar að bílstjórarnir bæti ráð sitt. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Róbót­ar spreyttu sig í hálfmara­þoni Nokkrir róbótar tóku þátt í hálfmaraþoni á tæknisýningu í Beijing í dag. Sá fljótasti var á skemmri tíma en heimsmet manna í greininni. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar hóta við­brögð­um við árás Banda­ríkja­hers á flutn­inga­skip Íranar hóta hörðum viðbrögðum við árás bandarísks herskips á flutningaskip á Ómanflóa. Bandaríkjaforseti segir hermenn hafa farið um borð til að kanna farm skipsins. Írönsk stjórnvöld segjast ekki ætla að ræða frið við Bandaríkin. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Hlutu dóm fyrir svið­setta árás á lúx­us­bíla íklædd­ir bjarn­ar­bún­ing Þrír menn í Kaliforníuríki hafa verið dæmdir fyrir tryggingasvindl. Mennirnir sviðsettu árás á lúxusbíl klæddir í gervi skógarbjarnar. 19. apríl 2026 kl. 21:45ÍÞRÓTTIR Körfubolti Grinda­vík tók for­skot­ið gegn Njarð­vík Grindavík leiðir undanúrslitaeinvígið gegn Njarðvík í Íslandsmóti kvenna í körfubolta. Grindavík vann 81-87 sigur en leikið var í Njarðvík í kvöld. 19. apríl 2026 kl. 21:35ÍÞRÓTTIR Körfubolti Odda­leik­ur af bestu sort og Valur í und­an­úr­slit Valur fór áfram í undanúrslit um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta eftir sigur gegn Keflavík í oddaleik, 90-76. Leikurinn var nokkuð jafn en Valsmenn stungu gestina frá Keflavík af í fjórða leikhluta. 19. apríl 2026 kl. 21:14ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Hug­ar­fars­breyt­ing orðið í hjálp­ar­starfi Hugarfarsbreyting hefur orðið í hjálparstarfi að mati formanns alþjóðastjórnar SOS-barnaþorpanna. Ekki sé nóg lengur að leggja til peninga heldur þurfi hjálparsamtökin að sýna fram á að það sem þau geri hafi áhrif. 19. apríl 2026 kl. 20:48INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Hundar á starfs­manna­skrá Fjöl­brauta­skóla Garða­bæj­ar Hundarnir Askur og Laddi eru á starfsmannaskrá Fjölbrautaskólans í Garðabæ og með sinn eigin tölvupóst. Hundarnir eru til aðstoðar í tímum á sérnámsdeildinni og hafa reynst einstaklega vel þar. 19. apríl 2026 kl. 20:06INNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Blaða­mað­ur segir Pál og Pál hafa varað sig við því að fjalla um ís­lensk­an sjáv­ar­út­veg Blaðamaður Berlingske, sem vann að umfjöllun um íslenskan sjávarútveg, segir Pál Vilhjálmsson og Pál Steingrímsson hafa sent sér fjölda erinda eftir að hann sendi Samherja fyrirspurn. Nafnarnir hafi varað hann við því að fjalla um málið. 19. apríl 2026 kl. 19:57ERLENDAR FRÉTTIR Mexíkó 130.000 manns­hvörf í Mexíkó síð­ustu 20 ár Þúsundir manna hverfa ár hvert í Mexíkó. Maður sem hefur ekki séð son sinn árum saman leitar líkamsleifa ásamt öðrum ástvinum. Hann segir mikilvægt að hver og einn fái virðulegan hvílustað eftir dauða sinn. Mannshvörfin eru rakin til glæpagengja. 19. apríl 2026 kl. 19:47INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Segir vinnu­brögð borg­ar­inn­ar hafa ýtt undir ótta Um sex vikur eru í að Kaffistofa Samhjálpar, taki til starfa við Grensásveg. Framkvæmdastjóri segir að vinnubrögð borgarinnar hafi alið á ótta, íbúi í nágrenninu segir starfsemina þarfa - en hún þurfi að vera á öðrum stað. 19. apríl 2026 kl. 18:10INNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Segir unnið af fullum þunga í fang­els­is­mál­un­um Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir að unnið sé af fullum þunga að því að létta á yfirfullum fangelsum. Ekki sé hægt að leysa vandann samstundis. 19. apríl 2026 kl. 18:04ÍÞRÓTTIR Fótbolti For­skot Ars­en­al að gufa upp — City vann tit­il­s­lag­inn Manchester City vann Arsenal 2-1 í uppgjöri toppliða ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta rétt í þessu. Þar með er munurinn milli liðanna einungis þrjú stig og City á leik til góða. 19. apríl 2026 kl. 17:27ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Átta börn skotin til bana í Lou­isi­ana Maður skaut átta börn til bana og særði tvæ

Share this article