Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ekki innritað í fjóra leikskóla vegna framkvæmda

  • What: Reykjavík will not be able to allocate places in four kindergartens due to expansion, repair, and relocation work.
  • Impact: 169 kindergarten places will be unavailable, but the city plans to add 277 new places to compensate.
Read Full Article →

Leikskólaplássum í Reykjavík fyrir næsta haust verður úthlutað 2. mars. Þá bregður svo við að ekki verður hægt að úthluta í fjóra leikskóla. Stækkun, viðgerð og flutningur koma í veg fyrir að ný börn verði tekin inn í Sæborg, Borg og Grandaborg og húsnæði Vinagerðis í Safamýri hefur verið lokað og verða börn þar flutt í aðra leikskóla. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að 277 ný leikskólapláss verði í boði á móti þeim 169 plássum sem detta út vegna framkvæmda og viðhalds. Borgin gerir ráð fyrir að búið verði að fjölga leikskólaplássum í Reykjavík um 372 um mitt næsta ár. Það gerist með nýjum leikskóla á Fossvogsbletti og viðbótarhúsum við Vesturborg, Grandaborg, Jörfa, Maríuborg og Hólaborg.

Share this article