Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Viðskiptablaðið

Gervihnöttur endaði á rangri sporbraut

  • What: Blue Origin's New Glenn rocket failed to reach the correct orbit.
  • Impact: Affects space missions and company operations.
Read Full Article →

Geimferðafyrirtæki Jeff Bezos, Blue Origin, lenti í óheppilegu atviki í gær í sínu fyrsta geimskoti fyrir viðskiptavin þegar eldflaugin, New Glenn, náði ekki að koma gervihnetti fyrir á réttri sporbraut. Á vef WSJ segir að geimskotið hafi gengið hnökralaust fyrir sig á Canaveral-höfða í Flórída en þetta var þriðja flug eldflaugarinnar. New Glenn hafði það verkefni að koma gervihnetti frá fyrirtækinu AST SpaceMobile á sporbraut jarðar. Blue Origin staðfesti síðan að honum hefði verið komið fyrir á rangri sporbraut og að unnið væri að því að greina örsökina. Sjá einnig Blue Origin segir upp 10% af starfsfólki sínu AST SpaceMobile, sem vinnur nú að uppbyggingu farsímanets í geimnum, segir að fyrirtækið hyggist fjarlægja hann af sporbrautinni og munu tryggingar standa undir kostnaðinum. Blue Origin er ekki eina fyrirtækið sem hefur glímt við tæknilega erfiðleika en önnur vandamál hafa komið upp hjá fyrirtækjum innan geimgeirans. United Launch Alliance, sem er í eigu Boeing og Lockheed Martin, átti til að mynda í erfiðleikum með Vulcan Centaur-eldflaug sína og lenti Starship-eldflaug Space X einnig í vandræðum á síðasta ári.

Share this article