Utanríkisráðherra hefur ákveðið að skipa Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur í embætti sendiherra til fimm ára. Skipunin tekur gildi þann 1. ágúst næstkomandi og er gerð á grundvelli laga um utanríkisþjónustu Íslands. Ráðgefandi hæfninefnd, sem skipuð var reyndum sendiherrum og mannauðsstjóra ráðuneytisins, mat Þórdísi Kolbrúnu mjög vel hæfa til að gegna embættinu. Þórdís Kolbrún á að baki viðamikinn feril í íslenskum stjórnmálum en hún settist fyrst á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 2016 og gegndi varaformennsku í flokknum á árunum 2018 til 2025. Hún hefur yfirgripsmikla reynslu úr ríkisstjórn og hefur á ferli sínum gegnt embættum utanríkisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, dómsmálaráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Frá því í febrúar á síðasta ári hefur Þórdís starfað á alþjóðavettvangi sem sérstakur erindreki framkvæmdastjóra Evrópuráðsins um málefni barna í Úkraínu. Hún er lögfræðingur að mennt og hefur auk stjórnmálastarfa starfað sem lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, verið framkvæmdastjóri þingflokks og stundakennari í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík.