Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Haukar unnu fyrsta leik einvígisins gegn Keflavík

Read Full Article →

Fyrsti leikur undanúrslitaeinvígis Hauka og Keflavíkur í úrslitakeppni kvenna í körfubolta var spilaður í Ólafssal á Ásvöllum í kvöld. Haukar byrjuðu af miklum krafti en fyrri hálfleikur var þó nokkuð jafn og í hálfleik var staðan 39-33, Haukum í vil. Heimakonur bættu svo áfram við forskotið í þriðja og fjórða leikhluta og unnu að lokum nokkuð þægilegan 85-71 sigur. Amandine Toi fór mikikinn fyrir Hauka í kvöld.RÚV / Mummi Lú Amandine Toi var drjúg í stigaskorun Hauka í kvöld með 34 stig auk þess að taka tvö fráköst og eiga fimm stoðsendingar. Liðin mætast næst í Keflavík á föstudag en Njarðvík og Grindavík eigast við í hinu undanúrslitaeinvíginu, þar sem Grindavík leiðir eftir sigur í gær.

Share this article