Innlent | mbl | 20.4.2026 | 21:46 „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ Gjaldtaka verður tekin upp á bílastæðinu við Egilshöll. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Gjaldtaka á bílastæðum við Egilshöll hefur verið til skoðunar í langan tíma. Fasteignafélagið Heimar, sem á Egilshöll, fundar nú með rekstraraðilum innan Egilshallar þar sem farið er yfir fyrirkomulagið. Greint var frá því um helgina að fyrirhuguð gjaldtaka hefjist í sumar. Áfram verði hægt að leggja án endurgjalds í stæði næst húsinu, en þó aðeins í 15 mínútur. Í önnur stæði verður hægt að leggja endurgjaldslaust í þrjár klukkustundir. Þá sé markmið Heima að tryggja að gestir og viðskiptavinir eigi alltaf auðvelt með að finna laust stæði nálægt húsinu sem hefur á undanförnum misserum reynst mörgum erfitt á álagstímum. Það megi m.a. rekja til þess að stæði hafi verið nýtt til langtímageymslu á bílum, ferðavögnum og fleiru án leyfis. mbl.is/Karítas Frétt af mbl.is Hefja gjaldtöku við Egilshöll Finna fyrir fjölgun bíla á höfuðborgarsvæðinu „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi hjá okkur,“ segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum, í samtali við mbl.is. Hann segir ákveðna þróun hafa lengi verið að eiga sér stað á höfuðborgarsvæðinu sem snúi að fjölgun bíla. „Við vorum að taka þetta saman og það er talað um að það fjölgi um 70 bíla á viku á höfuðborgarsvæðinu. Ef þú horfir á það yfir lengra tímabil þá eru þetta einhverjir tugir þúsunda bíla sem hafa bæst við á göturnar hérna frá því að Egilshöll var opnuð og við finnum það að fólk er að nota stæði, hvort sem það er við Egilshöll eða önnur svona stór stæði sem eru vel aðgengileg - það er verið að nota þetta sem alls konar geymslur,“ segir Baldur. mbl.is/Karítas „Við viljum bara að stæðin séu fyrir viðskiptavini okkar sem eru að sækja þjónustu í Egilshöll og þess vegna höfum við þrjá tíma ókeypis. Það ætti að duga langflestum sem eru að koma í Egilshöllina.“ „Flestir skilja þetta“ Á meðal þeirra fyrirtækja sem reka starfsemi í Egilshöll má nefna Sambíóin, Keiluhöllina og World Class. Aðspurður segir Baldur Heima hafa undanfarna viku verið að funda með forsvarsmönnum fyrirtækja í Egilshöll og að á þeim fundum hafi almennt verið tekið jákvætt í hina fyrirhuguðu gjaldtöku. „Flestir skilja þetta og taka bara jákvætt í þetta og vita alveg að þeirra viðskiptavinir þurfa oft að labba langan veg af því að stæðin sem eru næst húsinu eru oftar en ekki full. En auðvitað er starfsemin í húsinu mismunandi og við erum í samtali við leigutakana.“ mbl.is/Karítas „Við viljum bara flýta okkur hægt“ Spurður um hvort hægt sé að veita upplýsingar um nánari tímaramma, þ.e. hvenær gjaldtakan hefjist nákvæmlega, segir Baldur að unnið sé nú að framkvæmd gjaldtökunnar, en greint hefur verið frá því að kerfið muni byggja á sjálfvirkri númeraplötugreiningu. Segir Baldur að setja þurfi upp tæknikerfin og prófa þau og að það verði gert einhvern tímann í sumar. „Við viljum bara flýta okkur hægt og gera þetta vel og læra á þetta allt þannig að þegar þetta verður tekið í gang þá verði sem minnstir hnökrar í þessu.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ Selfoss jafnaði einvígið Myndir: Eftirlitsferð hersins í Arabíuhafi Vinnumálaráðherra Bandaríkjanna lætur af embætti Fundir átt sér stað milli Bandaríkjanna og Kúbu Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Þurfum að tuttugufalda hraða uppbyggingar hjúkrunarrýma Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Viðgerð í Kópavogi að ljúka Tókust á um ESB: „Ég kalla þetta þvælu“ „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Óska eftir launalausum liðsauka Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Iðrast eftir óhöpp og slysfarir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Kirkjan verður af háum fjárhæðum Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Kíkti í dagbækur vinkvennanna Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Nýjast á mbl.is » „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ Selfoss jafnaði einvígið Myndir: Eftirlitsferð hersins í Arabíuhafi Vinnumálaráðherra Bandaríkjanna lætur af embætti Fundir átt sér stað milli Bandaríkjanna og Kúbu Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Þurfum að tuttugufalda hraða uppbyggingar hjúkrunarrýma Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óska eftir launalausum liðsauka Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Iðrast eftir óhöpp og slysfarir Stórfelld líkamsárás á Akureyri: Tveimur sleppt úr haldi Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Óska eftir launalausum liðsauka Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Iðrast eftir óhöpp og slysfarir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Kirkjan verður af háum fjárhæðum Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Kíkti í dagbækur vinkvennanna Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi