Innlent | Morgunblaðið | 12.3.2026 | 9:25 Bið eftir læknatíma 27 dagar að meðaltali Guðm. Sv. Hermannsson [email protected] Setja bókamerki Meðalbiðtími eftir tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu er 27 dagar en fer upp í allt að 115 daga samkvæmt úttekt sem Viðskiptaráð hefur gert á þjónustu heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu. Er meðalbiðtíminn fimmfalt lengri en fimm daga viðmið, sem embætti landlæknis hefur sett, en aðeins tvær heilsugæslustöðvar, Hamraborg og Kirkjusandur, ná þessu viðmiði. Viðskiptaráð segir í úttektinni að hröð íbúafjölgun undanfarin ár hafi aukið álag á heilbrigðiskerfið og þar með á heilsugæslur. Aðgerðir, sem ætlað var að stemma stigu við ástandinu, hafi dugað skammt. Fyrir vikið hafi þjónusta heilsugæsla skerst, með lengri biðtíma og neikvæðum afleiðingum fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Segir Viðskiptaráð að ávinningurinn af því að tryggja gott aðgengi að föstum heimilislækni sé verulegur. Rannsóknir sýni að einstaklingar með fastan heimilislækni séu síður líklegir til að leggjast inn á spítala og nota kostnaðarsama sérfræðiþjónustu, og lifi almennt lengur. Í úttektinni kemur fram að á Íslandi starfi um 160 sérfræðingar í heimilislækningum. Miðað sé við að hver heimilislæknir geti sinnt 1.200 einstaklingum og því nái starfandi heimilislæknar aðeins að þjónusta 192.000 manns, eða um helming íbúa landsins. Yrði aðeins gripið til þess að fjölga heimilislæknum þyrfti að fjölga þeim um 165 til viðbótar til að tryggja öllum þjónustu. Segir Viðskiptaráð að búast megi við fjölgun um 100 á næstu árum vegna lækna í sérnámi í heimilislækningum. Sú fjölgun muni ekki duga og því sé brýnt að grípa til aðgerða sem auka afköst heilsugæslustigsins. Ójöfn rekstrarskilyrði Á höfuðborgarsvæðinu eru 19 heilsugæslur. Þar af eru 15 á vegum hins opinbera, reknar af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og fjórar heilsugæslur einkareknar en þær sinna um 27% skráðra skjólstæðinga á höfuðborgarsvæðinu. Allar heilsugæslurnar eru fjármagnaðar í gegnum ríkissjóð með fjármögnunarlíkani heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu. Samningar ríkisins við mismunandi stöðvar eru þó ólíkir. Samningar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru í gegnum reglugerð en einkareknar heilsugæslur hafa beina samninga við Sjúkratryggingar. Viðskiptaráð segir að einkareknar heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu séu að jafnaði 8% hagkvæmari en þær heilsugæslur sem reknar eru af hinu opinbera, þrátt fyrir að einkareknar og opinberar heilsugæslur séu fjármagnaðar með sama fjármögnunarlíkani. Þá hafi einkareknar heilsugæslur um árabil skipað sér í efstu sæti þjónustukannana. Þrátt fyrir þetta búi einkareknar heilsugæslur við ýmsar takmarkanir umfram opinberar og Samkeppniseftirlitið hafi ítrekað veitt stjórnvöldum tilmæli vegna þessarar ójöfnu stöðu án sjáanlegs árangurs. Segir í úttektinni að Samkeppnisstofnun hafi fyrst gert slíkar athugasemdir í október 2017 og mælst til þess að staðan milli Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og einkarekinna stöðva yrði jöfnuð. Þessi tilmæli hafi verið áréttuð ítrekað, síðast í nóvember í fyrra. Þrjár tillögur Leggur Viðskiptaráð í úttektinni fram þrjár tillögur sem miði að bættri heilsugæsluþjónustu. Sú fyrsta er að rekstrarskilyrði heilsugæsla verði jöfnuð, óháð því hvort stöðvar séu reknar af hinu opinbera eða einkaaðilum. Í því felist m.a. að jafna kjör vegna rannsóknaþjónustu, samræma meðferð virðisaukaskatts og taka tillit til kostnaðar vegna sjúklingatryggingagjalda í fjármögnunarkerfi heilsugæslu. Þá verði miðlæg þjónusta, svo sem símaráðgjöf 1700-símans, klofin frá rekstri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Einnig verði tryggt jafnt aðgengi að sérnámslæknum í heimilislækningum og eftirlit samræmt óháð rekstrarformi. Þá leggur Viðskiptaráð til að samkeppni og fjölbreytni í rekstri heilsugæsla verði aukin og rekstur heilsugæslustöðva Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verði boðinn út í áföngum. Jafnframt verði tryggt að öll kaup Sjúkratrygginga Íslands á heilsugæsluþjónustu fari fram á grundvelli útboðs og samningsbundinna kröfulýsinga óháð rekstrarformi. Með því verði opnað fyrir fleiri rekstraraðila og fjölbreyttari rekstrarform. Ráðið leggur loks til að fjármögnun heilsugæsla verði í ríkari mæli tengd við árangur og raunverulega veitta þjónustu. Greiðslur til heilsugæsla verði í auknum mæli tengdar afköstum, aðgengi og gæðum þjónustu. Segir ráðið að fjármögnun ætti í ríkari mæli að fylgja skjólstæðingnum, þannig að stöðvar sem veita góða og aðgengilega þjónustu njóti þess í fjármögnunarkerfinu. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Árásin hrottaleg og gæsluvarðhald staðfest Bótox-svikaapótekið enn opið Líklegt að færð spillist á fjallvegum Hjón ákærð fyrir manndráp Bankað upp á hjá meistara Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB 110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ „Með alla anga úti fyrir okkar fólk“ Vatnsból í hættumat Segja víðtækar árásir hafnar Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar Norðanhríðaveður og gular viðvaranir Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Árásin hrottaleg og gæsluvarðhald staðfest Bótox-svikaapótekið enn opið Líklegt að færð spillist á fjallvegum Hjón ákærð fyrir manndráp Bankað upp á hjá meistara Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB 110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir „Ósatt, bara lygar“ Erfið akstursskilyrði víða á heiðum Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar Norðanhríðaveður og gular viðvaranir Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Andlát: Árni Árnason