Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir úttekt Viðskiptaráðs á heilsugæslum á höfuðborgarsvæðinu ekki endurspegla raunstöðu heilbrigðisþjónustu í dag. Hún segir úttektina byggða á gamalli þjónustukönnun sem taki ekki mið af breytingum sem orðið hafa á starfsemi heilsugæslunnar. Úttekt Viðskiptaráðs snýr að umgjörð og árangri í heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins. Samkvæmt henni draga ójöfn rekstrarskilyrði, lítil samkeppni og skakkir hvatar úr afköstum sem leiðir af sér langa bið og lakari þjónustu. Þar segir meðal annars að bið eftir heimilislækni sé að jafnaði 27 dagar ef miðað sé við næsta lausa almenna tíma hjá heimilislækni. „Við fögnum því náttúrulega alltaf þegar fólk hefur áhuga á rekstri heilbrigðiskerfisins. En þetta tekur ekki tillit til heilbrigðisþjónustu í dag,“ segir Sigríður Dóra. Að hennar sögn byggir úttektin á gamaldags viðmiðum þar sem aðgengi er metið út frá því hversu fljótt fólk frá tíma hjá lækni. Í dag sé þjónustan skipulögð með öðrum hætti þar sem bráð erindi eru sett í forgang og þeim sinnt við allra fyrsta tækifæri. „Svona punktstaða segir lítið“ Sigríður bætir því við að tölur um biðtíma í úttektinni séu misvísandi þar sem þær endurspegli einungis stöðuna á einum tímapunkti og gefi því óáreiðanlega mynd af raunverulegu aðgengi. „Þetta er bara punktstaða einn daginn. Það þarf miklu meira að skoða hvað er vandamálið og hvort þetta sé sama ástand og í næstu viku eða síðustu viku. Svona punktstaða segir rosa lítið.“ Taki ekki mið af breyttu verklagi Samkvæmt Sigríði hefur biðtími á heilsugæslum á höfuðborgarsvæðinu farið minnkandi og aðgengi batnað með breyttu verklagi. Hún segir úttekt Viðskiptaráðs ekki taka mið af þessari þróun. Sömuleiðis segir hún úttektina fara rangt með þegar komi að muninum á milli einkarekinna heilsugæslustöðva og heilsugæslustöðva á vegum hins opinbera. „Allar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu starfa samkvæmt sömu kröfulýsingu og sama fjármögnunarlíkani. Þar er enginn munur á. Upplýsingamiðstöð þjónar öllum jafnt með þjónustu og ráðgjöf um allt land, alveg óháð því hvar fólk er skráð.“