Innlent | mbl | 12.3.2026 | 17:52 Viðskiptaráð kynni sér heilbrigðisþjónustuna Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki „Við erum voðalega glöð með að einhver skuli sýna okkur áhuga en okkur finnst þetta ekki endurspegla heilbrigðisþjónustuna í dag,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún segir Viðskiptaráð þurfa að kynna sér heilbrigðisþjónustu eins og hún er í dag. Viðskiptaráð hefur gert úttekt á þjónustu heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Leiddi úttektin m.a. í ljós að meðalbiðtími eftir heilsugæslu væri fimmfalt lengri en fimm daga viðmið sem embætti landlæknis hefur sett. Aðeins tvær heilsugæslustöðvar náðu því viðmiði. Sigríður Dóra furðar sig á því að eingöngu sé horft á bókanlega tíma hjá læknum í úttektinni og alveg horft fram hjá því að samdægurserindi – öll bráðaerindi – séu afgreidd og bókuð af upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar. „Þannig að þú kemst að með brátt erindi, það er algjörlega horft fram hjá því. Svo verðum við að hætta að horfa á að allt snúist um tíma hjá lækni. Þetta miðast við það hvenær þú færð einhverja þjónustu – hvenær þú færð einhverja úrlausn þinna mála. Við erum að leggja miklu meira upp úr teymisvinnu í dag og ráðgjöf. Þannig að þetta segir ósköp lítið.“ Frétt af mbl.is Bið eftir læknatíma 27 dagar að meðaltali Eingöngu punktstaða Sigríður segir þá að eingöngu sé um punktstöðu að ræða. Það sé enginn sem segi að sama niðurstaða hefði fengist í síðustu viku eða eftir mánuð en biðtími á heilsugæslum var fenginn með símtölum á heilsugæslurnar 5. nóvember 2025. „Þetta segir bara akkúrat það sem grafið sýnir, að þennan dag var þetta staðan. Þetta getur hafa byggst á því að einhver læknir var fjarverandi, einhver unglæknir ekki kominn til starfa eða ekki byrjað að bóka á hann. Svo dettur inn læknir og þá er allt í einu hægt að fá tíma eftir tvo daga,“ segir Sigríður. Þá segir hún að taka þurfi tillit til þess að þennan dag í nóvember hafi geist mikil flensa, með verri flensum sem sjáist. Það hafi verið mikil veikindi og stöðvar heilsugæslunnar opnað meira af bráðatímum samkvæmt beiðni heilbrigðisráðuneytisins. Frétt af mbl.is Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Byggð á gömlum gildum Almennt segir Sigríður þann hluta úttektarinnar, sem snýr að biðtíma, byggðan á gömlum gildum en miklar breytingar hafa verið gerðar á þjónustu í heilsugæslu á undanförnum misserum. „Við erum að leggja áherslu á rétta þjónustu á réttum stað af réttum fagaðila á réttum tíma. Það þýðir að þú ert kannski ekki að komast að akkúrat þegar þér dettur í hug, heldur fer það eftir því hvað amar að þér. Okkur vantar fagfólk og við verðum að fara vel með þá auðlind sem fagfólkið er en við viljum svo sannarlega mæta fólkinu á réttum tíma.“ Frétt af mbl.is „Við skiljum mjög vel að fólk sé flækt í þessu“ Byggist ekki eingöngu á læknisviðtölum Sigríður segir aðferðafræði Viðskiptaráðs aðeins eina leið af mörgum til að gera könnun og þá segi niðurstaðan einfaldlega akkúrat það sem hún segi. „Hún segir þér ekkert um hvernig aðgengið er. Við vitum ekki hvort þeim sem hringdu hafi verið boðið eitthvað annað. Við vitum ekkert hvort það var spurt hvort um bráð veikindi væri að ræða eða hvort um barn væri að ræða. Þú getur alltaf hringt og fengið tíma fyrir barn. Það segir heldur ekki hvort þeim hafi verið boðinn símatími hjá hjúkrunarfræðingi með ráðgjöf um erindið. Þannig að þetta segir ósköp lítið. Þetta segir ekkert annað en að þennan daginn hafi þetta ástand verið.“ Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar sinnir öllum erindum og veitir faglega ráðgjöf fyrir allt landið. Sigríður segir mjög mikilvægt að það komi fram að þar fái allir sömu faglegu þjónustuna. Greiðir 15% af rekstrarkostnaði upplýsingamiðstöðvar Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins greiðir 15% af rekstrarkostnaði upplýsingamiðstöðvarinnar og skuldbindur sig í staðinn til að bjóða upp á samdægurstíma. Þannig segir Sigríður að fyrir samdægurstíma hjá heilsugæslunni hringi fólk í 1700, upplýsingasíma upplýsingamiðstöðvarinnar. Það eigi einnig við um ráðgjöf við bráðum veikindum úti á landi. Ef um eldra, krónískara vandamál eða mál sem kannski má bíða er að ræða segir Sigríður að fólk eigi að hringja í sína heilsugæslustöð eða senda erindi í Heilsuveru. Málið verði þá metið af hjúkrunarfræðingi eða lækni og kemst þá í farveg. „Þú heldur kannski að þú þurfir að hitta lækni en það er ekkert víst að læknir sé best til þess fallinn að hitta þig. Við erum með sjúkraþjálfara, félagsráðgjafa og þú veist, heilbrigðiskerfið í dag byggist ekki bara á læknisviðtölum.“ Frétt af mbl.is Öllum bráðum erindum sinnt Miklu fleiri læknar starfandi á heilsugæslustöðvum Í úttekt Viðskiptaráðs kemur fram að um 160 sérfræðingar í heimilislækningum séu starfandi á Íslandi og miðað við að hver heimilislæknir geti sinnt 1.200 einstaklingum nái þeir að þjónusta 192.000 manns eða um helming íbúa landsins. Sigríður segir miklu fleiri lækna starfandi á heilsugæslustöðvum. „Við erum með flottan faghóp sérnámslækna og unglækna til viðbótar við sérfræðinga í heimilislækningum.“ Forstjórinn setur á margvíslegan hátt út á framkvæmd úttektar Viðskiptaráðs. Meðal annars segir hún Viðskiptaráð í úttektinni vísa í gamla þjónustukönnun hjá Sjúkratryggingum Íslands. „Viðskiptaráð þarf bara að kynna sér heilbrigðisþjónustu í dag.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Viðskiptaráð kynni sér heilbrigðisþjónustuna Þrjú snjóflóð vestur á fjörðum Arsenal blandar sér í baráttuna við City Strong earthquake in Torfajökull glacier Ferðasýning Heklu haldin á laugardag Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum Fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Drónar féllu til jarðar skammt frá Dúbaí-flugvelli „Með alla anga úti fyrir okkar fólk“ Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Síminn að kaupa miðla Sýnar Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Viðskiptaráð kynni sér heilbrigðisþjónustuna Þrjú snjóflóð vestur á fjörðum Arsenal blandar sér í baráttuna við City Strong earthquake in Torfajökull glacier Ferðasýning Heklu haldin á laugardag Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum Borga ekki umferðarsektir Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Af hverju var dómurinn ómerktur? Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Síminn að kaupa miðla Sýnar Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir