Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Salmonella í nautahakki

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 28 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Salm­on­ella í nauta­hakki Fréttastofa RÚV Tvær framleiðslulotur af Bónus nautahakki hafa verið innkallaðar vegna gruns um Salmonellu. Lotunúmerin eru 105-6-106-04 og 105-6-107-01. Matvælastofnun varar við þessum tveimur framleiðslulotum. Hún segir að neytendur eigi ekki að neyta þessa nautahakks. Þess í stað eigi fólk að farga hakkinu eða skila því í búðina þar sem hakkið var keypt og fá það endurgreitt. Nautahakkið frá Bónus sem hefur verið innkallað. MAST Fyrir 41 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Sérð það aldrei gerast að strák­arn­ir gleym­ist“ Stjarnan hefur beðist afsökunar á því og sagt það mistök að engin stelpa hafi sést í myndböndum af TM mótinu í fótbolta, sem fram fór undanfarnar tvær helgar. Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna segja að það myndi aldrei gerast að strákar gleymist. Fyrir 50 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Enn er enginn full­trúi Íran farinn til frið­ar­við­ræðna – vopna­hlé rennur út annað kvöld Friðarviðræður milli Írans og Bandaríkjanna eru enn í óvissu. Varaforseti Bandaríkjanna fer til Pakistan í dag en enginn frá írönskum stjórnvöldum hefur lagt af stað þangað. Fyrir 50 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Efling vill bremsu á leigu­verð og verð­bólgu Stjórn Eflingar vill að leigubremsa verði tekin upp svo ekki sé hægt að hækka leigu í hverjum mánuði. Stjórnin segir að með þessu megi draga hratt úr verðbólgu. Fyrir 53 mínútumÍÞRÓTTIR Lyftingar Katla Björg reið á vaðið á EM í lyft­ing­um Einar Örn Jónsson Karla Björg Ketilsdóttir varð í þriðja sæti í B-hópi í 63 kílóa flokki á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í Batumi í Georgíu í morgun. Það má reikna með að hún verði þá í 15. sæti á heildina, þar sem hver hópur telur 12 keppendur og keppendur í A-hópnum eru allar með meiri þyngd en Katla Björg fyrir mótið. Hún lyfti 95 kílóum í snörun og jafnhenti svo 106 kílóum. Samtals lyfti hún því 195 kílóum en átti 200 kíló samtals fyrir mót. Ísland á fjóra keppendur á mótinu í Georgíu og næst á svið er Guðný Björk Stefánsdóttir í 69 kílóa flokki á morgun. Guðný Björk keppir í A-hóp. Eygló Fanndal Sturludóttir, Evrópumeistari, er frá vegna meiðsla. Katla Björg Ketilsdóttir Lyftingasamband Íslands Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Brenndi gömul jakka­föt á af­mæl­inu Brynjólfur Þór Guðmundsson Fatabrenna átti sér stað á Suðurlandi í gær. Þar var á ferð Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður og fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins. Hann átti 64 ára afmæli og fagnaði því þeim merka aldri sem Bítlarnir sungu um á sínum tíma. „Á þeirra tíma var sá aldur einhver endalok. Nú um stundir er heill kafli framundan,“ skrifar Sigurður Ingi á Facebook. Sigurður Ingi segist hafa ákveðið að kveðja fortíðina með táknrænum hætti og bjóða nýja tíma velkomna. „Eldurinn getur verið hreinsunareldur og upphaf. Brenndi þess vegna gömul jakkaföt og náttúran tók vel undir með fallegum norðurljósum.“ Fatabrenna Sigurðar Inga. Facebook / Sigurður Ingi Jóhannsson Facebook / Sigurður Ingi Jóhannsson Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp „Ég er með svo margar litlar hliðar sem ég tími ekki að sleppa takinu af“ Vigdís Hafliðadóttir segist ekki sakna þess að vera 23 ára, þegar lífið snerist um sífellda leit. Hún leikur í nýjum þáttum, Tuttugu og eitthvað, sem fjalla um þessi ár. Hún ber marga hatta og vill ekki festast innan ákveðins ramma. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Konan sem kunni bara að elda bjúgu Formaður samtakanna Matur saman gaman brást hin versta við í Vikunni með Gísla Marteini þegar bann borgarstjórnar við gjörunnum matvælum bar á góma. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Fólk vill halda fjar­lægð frá þeim“ Neikvæðar staðalmyndir, sem mála upp dökka mynd af einstaklingum sem hafa verið í fangelsi eru ríkjandi í íslensku samfélagi að mati prófessors í félagsfræði. Niðurstöður könnunar á fordómum gagnvart þeim sem hafa brotið af sér verða kynntar í dag. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Bíll valt á Hring­braut Brynjólfur Þór Guðmundsson Bíll valt á Hringbraut í Reykjavík í morgun. Einn var í bílnum. Ökumanninum varð ekki meira meint af en svo að hann kom sér sjálfur út úr bílnum eftir veltuna. Sjúkrabíll kom fljótlega á staðinn og huguðu sjúkraflutningamenn að bílstjóranum á vettvangi. Einhverjar tafir hafa orðið á umferð af þessum sökum þar sem akbrautum um Hringbraut til vesturs fækkaði meðan hugað var að bílstjóranum og þar til bíllinn verður fjarlægður. Slökkviliðsmenn að störfum við bílinn sem valt. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarmál Ít­ar­leg íbúa­könn­un vega­nesti næstu sveit­ar­stjórn­ar um fram­hald verk­efn­is­ins við Finna­fjörð Næstu skref sem tekin verða í Finnafjarðarverkefninu gætu ráðist í könnun á meðal íbúa í Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppi um afstöðu þeirra til verkefnisins. Raforkuþörf iðnaðarsvæðis og stórskipahafnar er 200 megavött að lágmarki. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Jón Pétur Zimsen annar mann­anna sem lenti í sjónum Björgunarsveitarmenn komu tveimur mönnum til hjálpar eftir að kajökum þeirra hvolfdi fyrir utan Kjalarnes. Jón Pétur Zimsen var annar mannanna. Líkamshiti þeirra var kominn í 32 gráður eftir hálftíma í sjónum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Svíar segja Rússa falsa hag­töl­ur Verðbólga í Rússlandi og hallarekstur ríkisins eru meiri en opinberar tölur gefa til kynna, segir leyniþjónusta sænska hersins. Hún telur verri fjárhag þó ekki breyta ákvörðun Rússa um að halda áfram stríðinu í Úkraínu. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Lyftingar Fjórir ís­lensk­ir kepp­end­ur á EM í ól­ympísk­um lyft­ing­um Evrópumótið í ólympískum lyftingum fer fram í Georgíu í vikunni. Fjórir íslenskir keppendur taka þátt á mótinu en ríkjandi Evrópumeistarinn, Eygló Fanndal Sturludóttir, er ekki þar á meðal. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Allt að átján stiga hiti suð­aust­an­til Útlit er fyrir hægan vind í dag og allt að átján stiga hita. Það hvessir þó norðvestantil og á Tröllaskaga þar sem vindur gæti farið í átján metra á sekúndu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Nýja dag­lýs­ing­in orðin virk í hluta Hval­fjarð­ar­ganga Markús Þ. Þórhallsson Kveikt hefur verið á hluta nýrrar daglýsingar við suðurenda Hvalfjarðarganga, þar sem hámarkshraði hefur verið lækkaður úr 70 kílómetrum á klukkustund niður í 50 á hálfs kílómetra kafla. Kveikt hefur verið á hluta nýrrar daglýsingar við suðurenda Hvalfjarðarganga. RÚV Það er gert vegna skertrar lýsingar í gangamunnanum að því er FÍB-fréttir greina frá. Göngin verða lokuð aðfaranætur virkra daga vegna framkvæmdanna sem hófust fyrir rúmri viku og er ætlað að standa til 29. maí. Opið verður fyrir umferð yfir daginn og aðfaranætur laugardags og sunnudags. Verktakafyrirtækið Rafmenn annast verkið, hafa þeir þegar tekið niður á fimmta hundrað lampa og sett upp 56 nýja í staðinn og dregið í 2.800 metra af nýjum strengjum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Kaj­a­kræð­ur­um bjarg­að köldum en ómeidd­um úr sjónum Markús Þ. Þórhallsson Björgunarsveitarmenn björguðu kajakræðurum úr sjónum við Reykjavík. RÚV / Magnús Hlynur Hreiðarsson Björgunarsveitarmenn komu í gær tveimur mönnum til bjargar sem veltu kajak í Grafarvogi. Þeir voru fluttir á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar, kaldir en ómeiddir, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglunni barst tilkynning um að einhver væri að skríða inn um glugga í heimahúsi í vesturhluta Reykjavíkur en það reyndist eiga sér eðlilegar skýringar. Lögreglumenn báðu húsráðanda í úthverfi að hafa aðeins lægra, höfðu afskipti af ökumönnum undir áhrifum og sektuðu tvo sem óku of hratt í Vesturborginni. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Lög­menn söngvar­ans d4vd lýsa yfir sak­leysi hans Lögmenn bandaríska D4vd hafa fyrir hans hönd lýst yfir sakleysi af morðinu á fjórtán ára gamalli stúlku. Illa útleikið lík hennar fannst síðasta haust í skotti bifreiðar í eigu söngvarans. Saksóknarar segja morðið til að hylma yfir kynferðisbrot. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Breska konungsfjölskyldan „Elsku mamma“ — Karl kon­ung­ur minn­ist móður sinnar þegar 100 ár eru liðin frá fæð­ingu hennar Karl Bretakonungur minnist Elísabetar II móður sinnar með mikilli hlýju í dag, þegar hún hefði orðið 100 ára. Á sama tíma verður kynnt lokaáætlun minnismerkis um þennan þjóðhöfðingja landsins sem lengst sat að völdum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Chavez-DeRe­m­er er hætt sem at­vinnu­vega­ráð­herra Trump-stjórn­ar­inn­ar Atvinnuvegaráðherra Bandaríkjanna hefur látið af embætti, þriðji kvenkyns ráðherrann á stuttum tíma. Afsagnar hennar hafði verið krafist lengi vegna óstjórnar og kynferðislegrar áreitni eiginmanns hennar og föður gagnvart starfsfólki. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Að­al­samn­inga­mað­ur Írana segist ekki vilja semja um frið undir sí­felld­um hót­un­um Banda­ríkja­manna Fátt bendir til að friður komist á milli Bandaríkjanna og Írans sem búa sig undir áframhaldandi átök þegar vopnahléi lýkur á morgun. Varaforseti Bandaríkjanna er sagður á leið til Pakistan. Aðalsamningamaður Írans segist ekki semja undir hótunum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Þrír drepn­ir í loft­árás á Gaza — 770 frá því vopna­hlé hófst Markús Þ. Þórhallsson Þrír voru drepnir í loftárás Ísraelshers nærri borginni Khan Younis á Gaza í kvöld, samkvæmt upplýsingum almannavarna Hamas. Ísraelskir skriðdrekar við landamærin að Líbanon. EPA / ATEF SAFADI Þrátt fyrir að vopnahlé hafi staðið síðan í október saka stríðandi fylkingar hvor aðra um sífelld brot á ákvæðum þess. Samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðuneytis Hamas á Gaza hafa ísraelskir hermenn drepið yfir 770 Palestínumenn frá því vopnahléð hófst. Sameinuðu þjóðirnar segjast treysta tölum ráðuneytisins. Á sama tíma hefur Ísraelsher greint frá drápi fimm hermanna. 21. apríl 2026 kl. 0:42INNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Skipt­ar skoð­an­ir á ís­l

Share this article