Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.4.2026 | 21:26 Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Alls hafa fjórar innkallanir á nautakjöti verið gerðar vegna gruns um salmonellusmit á þessu ári, en áður voru slíkar innkallanir nánast óþekktar. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson/MAST Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Deildarstjóri hjá Matvælastofnun segir það nýlundu að salmonella greinist í nautahakki hér á landi og ítrekar tilmæli stofnunarinnar um að steikja þurfi nautahakk í gegn til þess að koma í veg fyrir möguleg smit. Alls hafa fjórar innkallanir á nautakjöti verið gerðar vegna gruns um salmonellusmit á þessu ári, en áður voru slíkar innkallanir nánast óþekktar. „Það sem er óeðlilegt núna er að við erum að sjá röð af salmonelluinnköllunum í nautahakki sem bætist ofan á um tvær til sex innkallanir sem eru vanalega á ári,“ segir Katrín Guðjónsdóttir, deildarstjóri hjá MAST, í samtali við mbl.is. Stofnunin frábiðji fólki þó ekki að borða steikina sína þó hún sé ekki elduð í gegn, enda sé eðlismunur á nautakjöti og nautahakki. Frétt af mbl.is Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Frétt af mbl.is Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Smitin fundist í innfluttu kjöti Salmonellusýkingar í matvælum eru ekki sérlega tíðar hér á landi, og eru innkallanir vegna gruns um salmonellu í matvælum alla jafna um tvær til sex talsins á ári. Á árinu hafa hins vegar komið upp þrjú tilfelli af salmonellu í nautahakki, tvö þeirra í einu fyrirtæki og eitt í öðru, sem leitt hafa til ofangreindra innkallana. „Þau mál virðast ótengd og ólík, en við vitum enn ekki nóg til að draga ályktanir,“ segir Katrín og bætir því við að málin séu nú til skoðunar hjá MAST. Seinustu tvær innkallanir segir hún stafa af smiti í innfluttu kjöti sem innihaldið hafi bakteríu að nafni Salmonella Dublin. Sú baktería hefur ekki fundist í íslensku kjöti eða íslenskum nautgripum, en er vel þekkt í Evrópu. Fólki er frjálst að elda nautasteikina eftir sínu höfði að sögn Katrínar, en hakkið er annað mál. mbl.is/Árni Sæberg Eigi alltaf að steikja hakk í gegn Aðspurð um það hvort stofnunin hvetji til aukinnar varúðar við matreiðslu nautakjöts í ljósi þessarar þróunar segir Katrín það fara eftir því hvers konar nautakjöt um ræði, enda haldi salmonella-bakterían sig utan á nautavöðvum og fari ekki inn í vöðvann, líkt og hún geri í kjúklingi. „Hakk er eitthvað sem þú átt alltaf að steikja í gegn vegna þess að þegar kjötið er hakkað blandast ysta lagið saman við innsta lagið, en nautakjöt í vöðvum, til dæmis lund og heilir bitar, er eitthvað sem dugir að steikja bara að utanverðu,“ segir hún. Því sé það hættulaust að borða steik þó hún sé steikt „medium rare“ eða „rare“. „Við erum ekkert að frábiðja fólki frá því að borða steikina sína minna steikta, það er allt annað mál.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið Lundúnaliðið í toppmálum Forest yfir í einvígi ensku liðanna Sektaður fyrir að skoða myndskeið undir stýri Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sameiningar standa ekki fyrir dyrum Myndskeið: Rómantískur Drakúlaleikur á Alþingi Brjóta ítrekað af sér án raunverulegra afleiðinga Borgatbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Banaslys í Skorradalsvatni Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir „Ég segi nei“ Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Nýjast á mbl.is » Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið Lundúnaliðið í toppmálum Forest yfir í einvígi ensku liðanna Sektaður fyrir að skoða myndskeið undir stýri Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Legið fyrir í nokkurn tíma að ég er að verða 72 ára“ Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Vinna við umönnun barna en ná ekki að sjá um sín eigin Meira safnast en vonir stóðu til en spáin góð Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Banaslys í Skorradalsvatni Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir „Ég segi nei“ Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys

Share this article