Apple tilkynnti í gær um að Tim Cook, sem hefur gegnt stöðu forstjóra tæknirisans frá árinu frá árinu 2011, muni færa sig yfir í hlutverk stjórnarformanns þann 1. september síðastliðinn. John Termus, sem hefur stýrt vélbúnaðardeild (e. hardware engineering) félagsins, mun taka við sem forstjóri af Cook. Hlutabréfaverð Apple hefur lækkað lítillega, eða um 0,3%, í viðskiptum fyrir opnun markaða vestanhafs eftir tilkynninguna. Gengi hlutabréfa Apple hefur alls hækkað um 1.946% í 15 ára forstjóratíð Cook og þannig hækkað verulega umfram S&P 500 og Nasdaq 100 vísitölurnar. Markaðsvirði félagsins hefur farið úr 350 milljörðum dala í meira en 4 þúsund milljarða dala. Tekjur Apple námu rúmlega 100 milljörðum dala á ári þegar Cook tók við forstjórastarfinu. Hann hefur leidd félagið í gegnum ævintýrilega velgengni iPhone símanna en félagið þénar í dag meira en 200 milljarða dala af sölu snjallsímanna á ári hverju. Í nýlegu viðtali við WSJ sagði Cook að hann myndi veita arftaka sínum sömu ráð og hann fékk frá Steve Jobs á sínum tíma, að marka eigin stefnu um framhaldið fremur en að hugsa um hvað forverar sínir myndu gera í sömu sporum. „Þú getur lamast ef þú reynir að setja þig inn í hugsunarhátt einhvers annars,“ sagði Cook. „Ég myndi segja: Vertu þú sjálfur. Mótaðu skýra Pólstjörnu um gildi fyrirtækisins. Því ef gildin eru rétt og þú heldur Pólstjörnunni skýrt í sjónmáli – þú gætir villst aðeins af leið - en að lokum finnurðu aftur réttu brautina. Ég hef alltaf komist að því að það er satt.“ Forstjóraskiptin koma á sama tíma og fjárfestar hafa lýst yfir áhyggjum um að Apple hafi dregist aftur úr öðrum tæknirisum í gervigreindarkapphlaupin.