Háskólinn í Reykjavík og Festi hafa skrifað undir samstarfssamning um verkefnið Strákar og stálp í háskóla. Festi er nýr bakhjarl verkefnisins ásamt JBT Marel sem kom að stofnun verkefnisins með HR. Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi, segist stolt af því að styðja við verkefnið en gögn sýna að drengir séu í auknum mæli að dragast aftur úr í námi og sækja sér síður framhaldsmenntun. „Það er þróun sem við verðum að taka alvarlega og bregðast við. Með verkefnum sem þessu getum við vonandi kveikt frekari áhuga, aukið sjálfstraust og sýnt skýrt fram á þau fjölbreyttu tækifæri og leiðir í lífinu sem menntun opnar fyrir. Fyrir Festi er þetta ekki aðeins samfélagslegt verkefni heldur einnig fjárfesting í framtíðinni, í hæfni, nýsköpun og öflugum mannauði sem mun móta íslenskt atvinnulíf til lengri tíma.“ Sjá einnig Festi verður aðalstyrktaraðili FKA Strákar og stálp í háskóla fer fram í maí en þá er strákum og stálpum í 9. bekk í grunnskóla boðið í Háskólann í Reykjavík til að veita innsýn í háskólaumhverfið, kynna fyrirmyndir og þau tækifæri sem bjóðast á vinnumarkaði að námi loknu.