Innlent | mbl | 21.4.2026 | 15:00 Getur aukið aðgengi að nýjum lyfjum á Íslandi Alma Möller flutti myndbandsávarp. Ljósmynd/Anton Brink Setja bókamerki Boðuð breyting heilbrigðisyfirvalda á viðmiðum við verðlagningu lyfja getur aukið aðgengi að nýjum lyfjum á Íslandi. Þetta kemur fram á 20 ára afmælisráðstefnu Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi, sem nú fer fram á Hilton Nordica undir yfirskriftinni: Hvað ræður í lyfjamálum – vísindin, peningarnir eða pólitíkin? Þar er rætt um fjármögnun heilbrigðiskerfisins með áherslu á lyfjamál, forgangsröðun opinbers fjármagns, aðgengi sjúklinga að meðferð og hvernig Ísland stendur í samanburði við önnur Norðurlönd. Ísland lengi verið eftirbátur nágrannaþjóða Alma Möller heilbrigðisráðherra ætlaði að mæta á ráðstefnuna og flytja þar ávarp en komst ekki. Þess í stað sendi hún frá sér myndbandsávarp. Fram kom í máli hennar að í ákvörðunum um lyfjaverð á Íslandi yrði nú í auknum mæli miðað við meðalverð á Norðurlöndum, í stað þess að miða við lægsta verð. Ákvörðunin væri skýrt merki um aukinn vilja heilbrigðisyfirvalda til að bæta skilyrði fyrir markaðssetningu nýrra lyfja hér á landi. Ísland hefði lengi verið eftirbátur nágrannaþjóðanna þegar kemur að upptöku nýjustu lyfja. Frá ráðstefnunni. Ljósmynd/Anton Brink „Ef við setjum verðið of lágt getur það dregið úr hvata fyrirtækja til að koma með lyf hingað til lands. Með því að horfa til meðalverðs Norðurlanda erum við að leitast við að skapa jafnvægi milli kostnaðar og aðgengis, milli ábyrgðar og framfara, og milli þess að vera samkeppnishæf sem markaður en á sama tíma skynsöm í ráðstöfun fjármuna. Þetta eru skref í átt að raunhæfari og sjálfbærari nálgun,“ er haft eftir Ölmu Möller í tilkynningu. „Mjög mikilvæg stefnubreyting“ Þar kemur fram að samkvæmt nýjustu könnun EFPIA, Evrópusamtaka frumlyfjaframleiðenda, hafi Ísland einungis tekið upp 34 prósent nýrra lyfja sem skráð voru í Evrópu á tilteknu árabili. Til samanburðar hafði Þýskaland tekið 90 prósent lyfjanna í notkun og Danmörk 60 prósent. „Ákvörðun stjórnvalda eftir hrun um að miða ávallt við lægsta verð á Norðurlöndum hefur verið raunveruleg markaðshindrun fyrir ný lyf, bæði vegna áhrifa á verðmyndun í öðrum löndum og vegna annars tilkostnaðar. Ísland er örmarkaður sem engu að síður lýtur sömu kröfum og stór ríki. Yfirlýsing ráðherra er því mjög mikilvæg stefnubreyting sem við fögnum,“ er haft eftir Pétri Magnússyni, framkvæmdastjóra Frumtaka. Jafnframt bendir hann á að bættu aðgengi að nýjustu lyfjum fylgi víðtækur samfélagslegur ávinningur, meðal annars með því að draga úr álagi á heilbrigðiskerfið og veikindatengdum fjarvistum. Hefur engin áhrif á útboð og innkaupaferla Landspítalans Í tilkynningunni kemur fram að mat Frumtaka sé að kostnaðaráhrif breytingarinnar verði takmörkuð og að hluti þeirra lyfja sem ekki hafi fengist skráð hafi engu að síður verið notaður í gegnum undanþágukerfi, oft með meiri kostnaði en skráning hefði haft í för með sér. Þá hafi breytingin engin áhrif á útboð og innkaupaferla Landspítalans. Að loknu myndbandsávarpi ráðherra tóku við erindi frá Ragnhildi Reynisdóttur, stjórnarformanni Frumtaka, Gylfa Ólafssyni heilsuhagfræðingi, Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins, og Steinunni Þórðardóttur, formanni Læknafélags Íslands. Þá stýrðu Jakob Falur Garðarsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Frumtaka, og Ragnar Freyr Ingvarsson læknir pallborðsumræðum með frummælendum og alþingismönnunum Örnu Láru Jónsdóttur og Ólafi Adolfssyni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Svona tók FH yfir grannaslaginn Getur aukið aðgengi að nýjum lyfjum á Íslandi Hraunar yfir gamla United-manninn Þórdís þakkaði fyrir sig Skólahreysti og Krónan í samstarf Umræðan Homo Reykjavicus Líkami Krists Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Dónaskapur og ruddaleg framkoma ógn við lýðræðið „Öfgakennd forsjárhyggja“ Fjárveitingavaldið þarf að hlusta Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hiti gæti náð allt að 20 stigum Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Ragnar vill breyta lögum „Öfgakennd forsjárhyggja“ Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Svona tók FH yfir grannaslaginn Getur aukið aðgengi að nýjum lyfjum á Íslandi Hraunar yfir gamla United-manninn Þórdís þakkaði fyrir sig Skólahreysti og Krónan í samstarf Umræðan Homo Reykjavicus Líkami Krists Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bíða samþykkis stjórnvalda Veiðar á langreyði áformaðar í sumar Bílvelta á Hringbraut „Öfgakennd forsjárhyggja“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hiti gæti náð allt að 20 stigum Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Ragnar vill breyta lögum „Öfgakennd forsjárhyggja“ Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils