Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Barist fyrir breytingunum í nærri tvo áratugi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.4.2026 | 18:05 Barist fyrir breytingunum í nærri tvo áratugi Frá fundinum. mbl.is/Karítas Setja bókamerki „Þetta er mjög mikilvæg og markviss stefnubreyting sem er auðvitað okkar heilbrigðiskerfi og almenningi í landinu í hag.“ Þetta segir Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi, um boðaða breytingu heilbrigðisyfirvalda á viðmiðum við verðlagningu lyfja. Greint var frá því fyrr í dag að hin fyrirhugaða breyting geti aukið aðgengi að nýjum lyfjum á Íslandi en breytingin snýr að því að horft verði til meðalverðs Norðurlanda í stað þess að miða við lægsta verð, sem ákvörðun var tekin um að gera eftir hrunið 2008. Frétt af mbl.is Getur aukið aðgengi að nýjum lyfjum á Íslandi Barist fyrir breytingum í nærri tvo áratugi „Við höfum barist fyrir breytingum á þessu síðan þetta var í rauninni sett á og bent á, eins og fram kom kannski í máli [Ölmu Möller] ráðherra, að þetta er gríðarlega mikilvægt af því við erum lítið land og hreinlega örmarkaður í alþjóðlegu samhengi. Þess vegna er mikilvægt að allir átti sig á því að okkar markaður lýtur ekki sömu lögmálum og almennir markaðir,“ segir Pétur í samtali við mbl.is og heldur áfram: „Þess vegna er mikil hætta á því, eins og raunin virðist hafa verið, ef það er lágverðsstefna hér á landi, að þá aukist líkurnar á því að alþjóðleg lyfjafyrirtæki vilji ekki markaðssetja ný lyf hér á landi. Þar af leiðandi koma þau síðar en þarf fyrir sjúklingana okkar sem þurfa á þeim að halda og það er náttúrulega mjög slæmt.“ Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka. mbl.is/Eggert Jóhannesson Formaður Læknafélagsins fagnar Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segist fagna breytingunni gríðarlega. „Ég held að þessi regla, sem að því að mér skilst hefur verið viðmið frá hruninu og verið ákveðin viðbrögð við hruninu, hafi orðið þess valdandi að lyf séu að koma seinna inn á markaðinn hér.“ Fram kemur í samtali Steinunnar við mbl.is að tilfinning lækna hér á landi hafi verið sú að kerfið hér á landi hafi verið um 6-8 árum á eftir öðrum Evrópulöndum. „Íslenskir læknar hafa margir talað um að við séum svona sirka á árinu 2018. Það eru kannski engin nákvæm vísindi á bak við það en það er nokkurn veginn tilfinningin. Þetta er að sjálfsögðu að hluta til ástæðan en hluti af ástæðunni er líka að við erum örmarkaður og það í sjálfu sér gerir þetta flóknara fyrir okkur; að það þurfi að semja við okkur sérstaklega. Við erum kannski ekki fyrst í röðinni, þannig að maður hugsar að ef við hefðum aðgang að stærri markaðssvæðum eða meiri samvinnu, t.d. við hin Norðurlöndin, myndi það gera heilmikið fyrir okkur hvað þetta varðar.“ Megi ekki gleyma hvað lyf geti gert fyrir fólk Þá nefnir Steinunn að fyrir lækna hér á landi sem sinni sjúklingum daglega og hafi jafnvel starfað erlendis sé það t.a.m. óþægileg upplifun þegar þeir finni að þeir geti ekki boðið upp á nýjustu og öflugustu meðferðirnar. „Þetta er það sem læknar hafa verið að kvarta undan og vilja líka bara fá sæti við borðið meira í stefnumótun þessa málaflokks.“ Þá segir hún hina fyrirhuguðu breytingu klárlega bera með sér samfélagslegan ávinning. „Ég veit að í þessum lyfjageira er horft á heildarmyndina. Það er ekki bara verið að horfa á kostnað, heldur líka hvað þú ert að fá fyrir peningana og auðvitað þurfum við að fara vel með okkar skattfé, en við megum ekki gleyma því heldur hvað þessi nýju lyf eru að gera fyrir fólk.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ekkert nýtt að eldstöð sé í nágrenni bæjarins Tindastóll – Stjarnan kl. 19.15, bein lýsing Einn sá eftirsóttasti á leið til Þýskalands? Barist fyrir breytingunum í nærri tvo áratugi Björg: „Þessu ætlum við að snúa við“ Umræðan Homo Reykjavicus Strandveiði í kvóta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þórdís þakkaði fyrir sig Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás á Akureyri Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni „Flestir sammála um að orðalagið sé óskýrt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Nýjast á mbl.is » Ekkert nýtt að eldstöð sé í nágrenni bæjarins Tindastóll – Stjarnan kl. 19.15, bein lýsing Einn sá eftirsóttasti á leið til Þýskalands? Barist fyrir breytingunum í nærri tvo áratugi Björg: „Þessu ætlum við að snúa við“ Umræðan Homo Reykjavicus Strandveiði í kvóta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árni tekur sæti Þórdísar: „Þetta verður gaman“ Kostnaðarsamt ójafnvægi Þórdís þakkaði fyrir sig „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils

Share this article