Bifreið valt á hliðina eftir tveggja bíla árekstur í Ártúnsbrekku síðdegis, segir varðstjóri stoðdeildar hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann lýsir árekstrinum sem minni háttar og segir ökumann bílsins sem valt hafa komist út úr honum upp á eigin spýtur. Einn dælubíll og tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Enginn var þó fluttur á sjúkrahús. Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir að umferðartafir muni vara á meðan viðbragðsaðilar starfa á vettvangi. Umferð verði að vonum komin í eðlilegt horf upp úr korter yfir 17:00. Mynd úr safni.RÚV / Ragnar Visage Fréttin hefur verið uppfærð.