Fjármála- og efnahagsráðherra boðaði undir lok síðasta árs umdeildar breytingar sem snerta bifreiðaeigendur, en breytingar á kílómetragjaldi og hækkun vörugjalda tóku gildi um áramótin. Samkvæmt könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið virðast landsmenn almennt óánægðir með breytingarnar. Spurt var annars vegar hvort þátttakendur væru ánægðir eða óánægðir með fyrirkomulag við innheimtu kílómetragjalds á bifreiðar. Fjárhæð gjaldsins fer eftir þyngd ökutækisins en fyrir fólksbíla og jeppa upp að 3.500 tonnum er gjaldið 6,95 krónur á hvern kílómetra, og fer svo stighækkandi eftir því sem ökutækin eru þyngri. Reiknað var með að breytingin myndi skila ríkissjóði um 4 milljörðum króna í tekjur. Alls voru 51,7% óánægð með fyrirkomulag um innheimtu kílómetragjalds, þar af 34,8% mjög óánægð og 16,9% frekar óánægð. Alls voru 19,7% ánægð, þar af 12,6% frekar ánægð en einungis 7,1% frekar ánægð. 28,6% svöruðu hvorki né. Ef aðeins er tekið tillit til þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar voru 72,4% óánægð en 27,6% ánægð. Andstaðan var mun meiri þegar spurt var um hækkun vörugjalda. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu , sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .