Fjármála- og efnahagsráðherra boðaði undir lok síðasta árs umdeildar breytingar sem snerta bifreiðaeigendur. Annars vegar var um að ræða kílómetragjald á öll ökutæki og hins vegar hækkun vörugjalda á ökutæki sem ganga fyrir jarðeldsneyti. Breytingar á vörugjaldi ökutækja voru hluti af svokölluðum bandormi fjárlaga fyrir árið 2026, sem samþykktur var um miðjan desember 2025. Vörugjald á hreina rafbíla var afnumið en sérstakt vörugjald bensín- og dísilbíla auk tengiltvinnbíla var hækkað. Miðað var við að hækkunin myndi skila ríkissjóði 7,5 milljörðum aukalega í tekjur, sem er um 66% hækkun. Í könnun Gallup var bæði spurt út í kílómetragjaldið og hækkun vörugjalda. Hvað kílómetragjaldið varðar voru 72,4% óánægð en 27,6% ánægð ef aðeins er tekið tillit til þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar. Andstaðan var meiri þegar kemur að hækkun vörugjalda varðar en 63,9% voru óánægð, þar af 48,4% mjög óánægð og 15,5% frekar óánægð. Á móti kemur að 11,9% voru ánægð, þar af 4,7% mjög ánægð og 7,2% frekar ánægð. 24,2% svöruðu hvorki né. Af þeim sem tóku afstöðu voru 84,3% óánægð og 15,7% ánægð. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .