Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Umtalað meðferðarheimili færist nær því að verða að veruleika

  • What: The Garðabær town council has authorized negotiations with the state regarding property exchanges to facilitate the construction of a long-awaited treatment center.
  • Impact: The agreement involves the state relinquishing Sunnuhvoll in exchange for the Friðarvellir plot.
Read Full Article →

Bæjarráð Garðabæjar veitti Almari Guðmundssyni bæjarstjóra í morgun umboð til að semja við ríkið um eignaskipti sem eru forsenda fyrir því að langþráð meðferðarheimili verði reist í bænum. Viljayfirlýsing um meðferðarheimili fyrir 15-17 ára börn var undirrituð 2018 og þá var stefnt að því að framkvæmdir hæfust 2020. Ekkert hefur orðið af því en nú virðist styttast í framkvæmdir. Bæjarráð Garðabæjar samþykkti í morgun að bæjarstjóri semji við fjármála- og efnahagsráðuneytið um að ríkið afsali sér Sunnuhvoli, sem stendur við Spítalaveg 2, og fái í staðinn lóðina Friðarvelli með byggingarheimildum í endurgjald. Bæjarráð samþykkti um leið að hefja undirbúning gatnaframkvæmda vegna byggingaráformanna.

Share this article