Það sér strax fyrir endann á snarpri en góðri kolmunnavertíð íslenska uppsjávarflotans. Mikill kvótaniðurskurður er í kolmunna á yfirstandandi fiskveiðiári. Kvótinn er nú 170 þúsund tonn en var rúmlega 300 þúsund tonn á síðasta fiskveiðiári. Birkir Hreinsson, skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA, fyllti skipið með áhöfn sinni á þremur dögum og áætlar að landa fullfermi, 3.200 tonnum, á Fáskrúðsfirði í hádeginu. Áður hafði skipið komið fullfermi að landi og kvótinn er að klárast. „Það hefur verið fínasta veiði hérna á gráa svæðinu milli Skotlands og Færeyja. Við erum með tæp 3.200 tonn og vorum ríflega þrjá sólarhringa á veiðum. Þetta er fínasti fiskur en hann fer ekki til manneldis. Færeyingar hafa verið að taka til sín minni skammta til manneldisvinnslu en við bræðum fiskinn,“ segir Birkir. Hann sagði þessa kolmunnavertíð með minna móti en oftast áður. Nú sé framundan biðstaða þar til farið verður á makrílveiðar seinna í sumar hugsanlega um mánaðamótin júlí-ágúst. Þá verður væntanlega farið austur að Noregslínu og í Síldarsmuguna. Birkir Hreinsson með dótturdóttur sinni, Matthildi Margréti, í brúnni á Vilhelm Þorsteinssyni. Mynd/aðsend „Best væri ef makríll gengi inn í íslenska lögsögu en það hefur dregið úr makrílgengd til Íslands á síðustu árum. Það voru skemmtilegir tímar þegar makríll byrjaði óvænt að ganga inn í íslensku lögsöguna í talsverði magni árin 2007 og 2008. Þá var stofninn gríðarlega stór og vantaði meira hafsvæði til þess að komast í æti. Magnið sem hingað gekk jókst stöðugt þar til einhverju hámarki var náð. Þá fór að draga úr þessu aftur fyrir um það bil fjórum árum.“ Nú eru áhyggjur af ástandi makrílstofnsins og Birkir bendir á að veitt hafi verið umtalsvert yfir ráðgjöf síðustu árin. Kvóti Íslendinga á síðasta ári var 125 þúsund tonn en Alþjóðahafrannsóknaráðið kynnti í lok síðasta árs ráðgjöf sína um 70% samdrátt í veiðum á makríl. Makrílkvóti Íslendinga verður þannig ekki nema 29 þúsund tonn á þessu ári.