Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bygginga­markaður kominn í al­var­legan hæga­gang

Read Full Article →

Staða byggingarverktaka þrengist samfara hægri sölu nýrra eigna. Hljóðið er þungt í þeim verktökum sem Viðskiptablaðið hefur rætt við. Ekki bara er sala nýrra eigna dræm heldur eru vextir háir og miðað við stöðuna í dag er ekki útlit fyrir að þeir séu að lækka í bráð. Þá hafa verktakar áhyggjur af því að búið sé að útiloka marga kaupendur með því að þrengja greiðslumat íbúðalána. Þetta þýði sem dæmi að leigjendur eigi erfitt með komast inn á íbúðamarkaðinn, jafnvel þó þeir séu að greiða hærri fjárhæð í leigu en sem nemur væntri afborgun nýs íbúðaláns. Einn verktakinn sagði óvissuna svo mikla að ómögulegt væri að gera áætlanir ár fram í tímann, raunar væri varla hægt að gera þriggja mánaða áætlun. Um leið og Seðlabankinn hækki vexti þá hætti síminn að hringja. Staðan sé því mjög erfið og miðað við orðræðuna, að Seðlabankinn muni hækka vexti enn frekar í byrjun í sumars, sé ekki útlit fyrir að staðan muni lagast á næstunni. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir stöðuna í byggingageiranum orðna alvarlega. © Morgunblaðið/Eggert (Morgunblaðið/Eggert) Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, tekur undir áhyggjur byggingarverktaka. „Byggingamarkaðurinn er kominn í alvarlegan hægagang eftir fjögurra ára vaxtarskeið,“ segir Sigurður. „Efnahagsumhverfi greinarinnar hefur versnað hratt og samdráttarmerkin eru sérstaklega skýr í húsnæðisuppbyggingu." Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article