Innlent | Morgunblaðið | 22.4.2026 | 10:07 Veigamikið framsal ríkisvalds Álitsgerðin var unnin að beiðni utanríkismálanefndar Alþingis. mbl.isEyþór Árnason Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB „Er eitthvað um að semja?“ Leyndardómur aðlögunarinnar Óljósir samningar um aðlögun „Flestir sammála um að orðalagið sé óskýrt“ Tókust á um ESB: „Ég kalla þetta þvælu“ » Fleiri tengdar fréttir Ísland getur ekki gengið í Evrópusambandið (ESB) án víðtækra stjórnarskrárbreytinga, enda hefði aðild óhjákvæmilega víðtækt og veigamikið framsal ríkisvalds úr landi í för með sér. Það næði til allra þriggja greina ríkisvaldsins, löggjafar-, framkvæmda- og dómsvalds. Þetta kemur fram í álitsgerð Lagastofnunar Háskóla Íslands um nauðsyn stjórnarskrárbreytinga í tengslum við mögulega aðild íslenska ríkisins að Evrópusambandinu, leiði þjóðaratkvæðagreiðsla til aðildarviðræðna og aðildarsamnings, sem samþykktur væri í annarri atkvæðagreiðslu. Álitsgerðin var unnin að beiðni utanríkismálanefndar Alþingis og birt í gær. Hana unnu Arnaldur Hjartarson, aðjunkt í Evrópurétti, og Hafsteinn Þór Hauksson, dósent í stjórnskipunarrétti. Framsal á fullveldi Þar er komist að þeirri niðurstöðu að „íslenska ríkið geti ekki gerst aðili að Evrópusambandinu að óbreyttri stjórnarskrá“, enda sé ESB ekki hefðbundið milliríkjasamstarf heldur yfirþjóðlegt kerfi, þar sem aðildarríki framselja hluta af fullveldi sínu til sameiginlegra stofnana. Rakið er að reglur sambandsréttar geti haft bein lagaáhrif í aðildarríkjum og gangi framar landsrétti þegar á reyni. Það eigi jafnvel við um stjórnarskrárákvæði. Þá geti stofnanir sambandsins sett reglur sem taki gildi án sérstakrar lögfestingar í aðildarríkjum og bundið bæði ríki og borgara. Þetta valdaframsal allra þriggja þátta ríkisvaldsins er talið ganga langt umfram þau mörk sem heimil þykja að íslenskum stjórnskipunarrétti. Vísað er til takmarkaðs valdaframsals í tengslum við EES-samninginn, en það sé háð ströngum skilyrðum, svo sem að framsalið sé afmarkað og ekki verulega íþyngjandi. Aðild að ESB uppfylli hins vegar ekki þau skilyrði. Í álitsgerðinni er jafnframt bent á að aðildarríki geti þurft að lúta lagasetningu sem þau hafi sjálf verið andvíg, þar sem ákvarðanir eru í mörgum tilvikum teknar í krafti meirihluta innan ESB. Takmarkanir á sjálfstæði Þá beri dómstólum aðildarríkja að beita reglum sambandsréttar fremur en innlendum lögum rekist þau á. Slíkt feli í sér verulegar takmarkanir á sjálfstæði ríkisins í lagasetningu og réttarframkvæmd. Niðurstaðan er því, að mati höfunda, að lýðveldisstjórnarskráin í núverandi mynd standi „tvímælalaust í vegi“ fyrir aðild Íslands að ESB. Spurningin um aðildarviðræður snúist ekki einungis um pólitíska afstöðu til aðildar heldur einnig um grundvallarbreytingu á stjórnskipan landsins. Álitsgerðin er þannig skýr um að jafnvel þótt ríkur pólitískur vilji væri fyrir hendi til að ganga í ESB, yrði ekki ráðist í slíkt án þess að kjósendur og löggjafinn tækju einnig afstöðu til breytinga á stjórnarskránni, sem þá heimilaði slíkt valdaframsal með beinum hætti. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB „Er eitthvað um að semja?“ Leyndardómur aðlögunarinnar Óljósir samningar um aðlögun „Flestir sammála um að orðalagið sé óskýrt“ Tókust á um ESB: „Ég kalla þetta þvælu“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Leit hafin að nýju að ferðamanninum Í fyrsta skipti í 114 ár hjá Chelsea Veigamikið framsal ríkisvalds X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Óvænt úrslit og jafnt í tveimur einvígum Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Af hverju fólk festist í afbrotum“ Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás á Akureyri Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Þegar byrjað að treysta varnirnar Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Vinsælum veitingastöðum lokað X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Leit hafin að nýju að ferðamanninum Í fyrsta skipti í 114 ár hjá Chelsea Veigamikið framsal ríkisvalds X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Óvænt úrslit og jafnt í tveimur einvígum Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þegar byrjað að treysta varnirnar Leyndardómur aðlögunarinnar „Af hverju fólk festist í afbrotum“ „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Þegar byrjað að treysta varnirnar Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Vinsælum veitingastöðum lokað X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set