Innlent | mbl | 22.4.2026 | 10:34 Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Ríkisendurskoðun tekur undir með þeim fjölmörgu viðmælendum embættisins sem telja varnargarðana við Svartsengi og Grindavík hafa til þessa sannað gildi sitt sem vörn gegn hraunrennsli. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Ekkert nýtt að eldstöð sé í nágrenni bæjarins Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Kristrún boðuð á fund Grindvíkinga Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi » Fleiri tengdar fréttir Ríkisendurskoðun segir að embætti ríkislögreglustjóra hafi ekki haft nauðsynlega þekkingu og burði til að fara með jafn umfangsmiklar og flóknar verklegar framkvæmdir og lög um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga kváðu á um. Gögn málsins gefa til kynna að verkefnið hafi af ýmsum ástæðum reynst embættinu ofviða. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar sem ber heitið Varnargarðar á Reykjanesskaga: stjórnsýsla, kostnaður og ábyrgð . Skýrslan er ítarleg og telur yfir 50 blaðsíður. Hún var kynnt á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í morgun. Þar kemur sömuleiðis fram að fyrirkomulag um verka- og ábyrgðarskiptingu hafi verið óskýrt og að óháð mat á tillögum hafi ekki farið fram. Í skýrslunni segir jafnframt að varnargarður hafi verið hækkaður án aðkomu ráðherra. Ríkisendurskoðun segir að dómsmálaráðherra hafi á grundvelli laga um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga verið heimilt, að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra, að taka ákvarðanir um nauðsynlegar framkvæmdir í þágu almannavarna. Ákvarðanir skyldu miða að því að koma í veg fyrir að mikilvægir innviðir og aðrir almannahagsmunir yrðu fyrir tjóni af völdum náttúruvár. Í svörum ríkislögreglustjóra benti embættið á að starfsmenn þess búa ekki yfir nauðsynlegri sérfræðiþekkingu er varða umfangsmiklar verklegar framkvæmdir á borð við varnargarða. Eðlilegra sé því að aðilar sem hafi þekkingu og reynslu af stórum framkvæmdum sem krefjast hönnunar, verkstjórnunar og flókins undirbúnings fari með slík verkefni. Dómsmálaráðherra bárust 11 tillögur á 18 mánuðum Frá nóvember 2023 til maí 2025 bárust dómsmálaráðherra 11 tillögur frá ríkislögreglustjóra og tók ráðherra jafnmargar ákvarðanir um að heimila uppbyggingu varnargarða. Þá segir að ríkislögreglustjóra hafi samkvæmt lögunum borið að fara með framkvæmd aðgerða. Hlutverk ríkislögreglustjóra við gerð varnargarðanna hafi þó aðallega falist í því að embættið hafi lagt fram tillögur að varnaraðgerðum til ráðherra. Tillögurnar byggðu á minnisblöðum hönnunar- og framkvæmdateymis vinnuhóps um varnir mikilvægra innviða á Reykjanesskaga (innviðahópsins) um gerð varnargarða við Svartsengi og Grindavík. „Það er niðurstaða Ríkisendurskoðunar að ríkislögreglustjóri hafi ekki haft nauðsynlega þekkingu og burði til að fara með jafn umfangsmiklar og flóknar verklegar framkvæmdir og lög nr. 84/2023 kváðu á um. Gögn málsins gefa til kynna að verkefnið hafi af ýmsum ástæðum reynst embætti ríkislögreglustjóra ofviða,“ segir í niðurstöðukafla skýrslunnar. Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að gögn málsins gefi til kynna að verkefnið hafi af ýmsum ástæðum reynst embætti ríkislögreglustjóra ofviða. mbl.is/Eggert Jóhannesson Vegagerðin hafði einungis umsjón með afmörkuðum þáttum Þá segir að ríkislögreglustjóri hafi gert samkomulag við Vegagerðina í desember 2023 um að stofnunin yrði verkkaupi varnargarðanna fyrir hönd ríkisins og tæki að sér að sjá um framkvæmdir í samvinnu við embættið. Þrátt fyrir það hafði Vegagerðin einungis umsjón með afmörkuðum þáttum framkvæmdanna, þ.m.t. samningum við verktaka, verkbókhaldi og greiðslu reikninga. Hönnunar- og framkvæmdateymi innviðahópsins, þ.e. verkfræðistofurnar Verkís og Efla, hafði umsjón með hraunflæðihermunum, hönnun varnargarðanna og uppbyggingu þeirra. Fram kemur að hönnunar- og framkvæmdateymi innviðahópsins hafi alls skilað 13 minnisblöðum til ríkislögreglustjóra um gerð varnargarða. Þá hafi ein tillaga til viðbótar verið um hækkun varnargarðs í neyðarviðbragði send ríkislögreglustjóra með tölvupósti. Í minnisblöðunum voru gerðar tillögur að nýjum varnargörðum eða hækkun/lengingu fyrirliggjandi garða. „Ríkisendurskoðun tekur undir með þeim fjölmörgu viðmælendum embættisins sem telja varnargarðana við Svartsengi og Grindavík hafa til þessa sannað gildi sitt sem vörn gegn hraunrennsli. Verkfræðingar, verktakar, Vegagerðin og aðrir sem komu að hönnun varnargarðanna eða verklegum framkvæmdum unnu þrekvirki við oft krefjandi aðstæður,“ er tekið fram í skýrslunni. Í júní 2025 ákvað Ríkisendurskoðun að hefja að eigin frumkvæði stjórnsýsluúttekt á því hvort hagkvæmni og skilvirkni hafi verið gætt við undirbúning og gerð varnargarða á Reykjanesskaga og hvort þeir hafi skilað tilætluðum árangri. mbl.is/Eyþór Óskýrt fyrirkomulag um verka- og ábyrgðarskiptingu Einnig er sagt frá því að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Náttúruhamfaratrygging Íslands hafi árið 2021 átt frumkvæði að stofnun vinnuhóps um varnir mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, innviðahópsins svokallaða, sem hafi verið kallaður reglulega saman í öndverðu. Hópurinn sinnti ráðgjafarhlutverki vegna varna á svæðinu. Árin 2021–2025 hafi hópurinn verið samansettur af fulltrúum verkfræðistofanna Verkís og Eflu, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands. Fulltrúar almannavarnadeildar sátu suma fundi hópsins en Verkís hafði í umboði deildarinnar umsjón með skipulagi funda, fundarstjórn og ritun fundargerða, ásamt því að halda utan um öll vinnugögn hópsins og hönnunar- og framkvæmdateymisins. Í skýrslunni kemur fram að samkvæmt samkomulagi ríkislögreglustjóra og Vegagerðarinnar hafi stofnunin átt að vera þátttakandi í innviðahópnum. Þrátt fyrir það hafi Vegagerðin ekki átt fastan fulltrúa í hópnum. mbl.is/sisi Fulltrúar HÍ og VÍ ekki hluti af teyminu Bent er á að fulltrúar Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands í innviðahópnum hafi ekki setið í hönnunar- og framkvæmdateymi hans. Á fundum Ríkisendurskoðunar með þeim kom fram að þeir hafi í mörgum tilfellum ekki séð tillögur teymisins til ríkislögreglustjóra um uppbyggingu varnargarða fyrr en eftir að ákvörðun dómsmálaráðherra lá fyrir og/eða framkvæmdir voru hafnar. Tekið er fram að innviðahópurinn hafi ekki verið skipaður með formlegum hætti, þ.e. ekki liggi fyrir erindisbréf til grundvallar störfum hans. Embætti ríkislögreglustjóra skilgreindi hvorki formlegt hlutverk hópsins og markmið gagnvart stjórnvöldum, né hlutverk einstakra aðila innan hans. Þá voru engin tímamörk sett um starfsemina. Engir samningar liggja fyrir við umræddar verkfræðistofur, sem mönnuðu hönnunar- og framkvæmdateymið, um aðkomu þeirra að framkvæmdum, ábyrgð þjónustusala, tímaverð, o.s.frv. Embættið leitaði ekki til annarra verkfræðistofa við myndun innviðahópsins eða eftir að eldgosahrinan við Sundhnúkagíga hófst árið 2023. Bent er á að fulltrúar Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands í innviðahópnum hafi ekki setið í hönnunar- og framkvæmdateymi hans. Á fundum Ríkisendurskoðunar með þeim kom fram að þeir hafi í mörgum tilfellum ekki séð tillögur teymisins til ríkislögreglustjóra um uppbyggingu varnargarða fyrr en eftir að ákvörðun dómsmálaráðherra lá fyrir og/eða framkvæmdir voru hafnar. mbl.is/Eyþór Ekki farið eftir verka- og ábyrgðaskiptingu Enn fremur segir að samkvæmt samkomulagi ríkislögreglustjóra og Vegagerðarinnar hafi stofnunin átt að vera þátttakandi í innviðahópnum. Þrátt fyrir það hafi hún ekki átt fastan fulltrúa í hópnum. Þetta sé eitt dæmi af fleirum um að ekki hafi verið farið eftir þeirri verka- og ábyrgðarskiptingu sem kveðið hafi verið á um í samkomulaginu. Þá megi nefna að Vegagerðin greiddi hvorki allan framkvæmdakostnað verksins né sá um alla samninga við verkfræðistofur eins og til stóð. Embætti ríkislögreglustjóra greiddi Verkís fyrir verkefnisstjórn varnargarðanna, hönnunarvinnu og hraunhermun. „Ríkisendurskoðun telur að ríkislögreglustjóri hefði þurft að skilgreina með mun skýrari hætti en gert var verkaskiptingu og ábyrgð einstakra aðila við uppbyggingu varnargarðanna. Óumdeilt er að ríkislögreglustjóri og aðrir sem komu að framkvæmdum við varnargarðana voru oft undir mikilli tímapressu þar sem sinna þurfti mörgum krefjandi verkefnum á skömmum tíma. Ríkisendurskoðun telur það hafa verið skynsama ráðstöfun þegar ríkislögreglustjóri fól Vegagerðinni hlutverk verkkaupa ríkisins. Vegagerðin búi yfir sérþekkingu á verklegum framkvæmdum, samningagerð vegna þeirra og fjárhagslegri umsýslu framkvæmda af álíka stærðargráðu. Enga slíka sérþekkingu sé að finna hjá ríkislögreglustjóra. Vegagerðin hafi því verið betur til þess fallin að gæta hagsmuna ríkissjóðs. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þarf að liggja skýrt fyrir hver fari með framkvæmd aðgerða Þegar ákvæði um nauðsynlegar framkvæmdir í lögum nr. 84/2023 féllu úr gildi 1. janúar 2026, rúmum tveimur árum eftir að kvikusöfnunar varð fyrst vart á Svartsengissvæðinu, hafði embætti ríkislögreglustjóra aftur á móti haft nægan tíma til að skilgreina með skýrum hætti verkaskiptingu og ábyrgð einstakra aðila,“ segir í skýrslunni. Ríkisendurskoðun bendir á að það sé talið líklegt að fleiri eldstöðvakerfi á Reykjanesskaga geti bært á sér á næstu árum og áratugum. Ef og þegar þetta gerist þurfi að liggja skýrt fyrir hver fari með framkvæmd aðgerða og hlutverk við að leiða saman ólíka aðila og samræma aðgerðir við verklegar framkvæmdir á borð við uppbyggingu varnargarða. Skýrslan var kynnt stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun. Vegagerðin betur til þess fallin að gæta hagsmuna ríkissjóðs. Þá telur Ríkisendurskoðun það hafa verið skynsama ráðstöfun þegar ríkislögreglustjóri hafi falið Vegagerðinni hlutverk verkkaupa ríkisins. Vegagerðin búi yfir sérþekkingu á verklegum framkvæmdum, samningagerð vegna þeirra og fjárhagslegri umsýslu framkvæmda af álíka stærðargráðu. Enga slíka sérþekkingu sé að finna hjá ríkislögreglustjóra. Vegagerðin hafi því verið betur til þess fallin að gæta hagsmuna ríkissjóðs. „Áðu